Ekki beint skúbb ... en samt ... kvenleg umræðuefni, textamisskilningur og fleira

Vikan var að koma í hús og á einni opnunni má finna fjölmörg textabrot úr vinsælum lögum ... og síðan kolrangan texta sem fólk syngur óafvitandi með. Stelpurnar á Gestgjafanum grétu úr hlátri yfir greininni og kannski ekkert skrýtið. Dæmi:

Madonna like a virginALELDA með Nýdönsk: Rétt lína: Alelda, sáldrandi prjáli ... Misskilningur: Að elda, sjálfan þig bjáni.

LIKE A VIRGIN með Madonnu: Rétt lína: Like a virgin, touched for the very first time. Misskilningur: Like a virgin, touched for the thirty-first time.

Og svona 30 bráðfyndin atriði í viðbót ... Ég söng alltaf í gamla daga: Í bláum skugga, við brosum um braut (þótt ég hafi ekki skilið nokkuð í því) en þetta á víst að vera Í bláum skugga, við broshýran reyr ... eða er það ekki? 

Þegar Úlfar kokkur kom í vinnuna áðan sagði ég honum að Ylfa Ósk, tíkin hans, væri í tryllri ástarsorg, hún væri ekki bara svona sjúk í ... þið vitið, eftir að hafa hitt sæta hundinn á Akureyri og átt með honum unaðsstundir. Benti honum á að þessi hundategund væri einfarar og afar tryggir maka sínum, svona eins og svanir .... Úlli fékk hláturskast og sagði mér frá minnst 10 "tengdasonum" af öllum stærðum og gerðum sem hann hefði eignast í gær og fyrradag. Þeir standa hinum megin við girðinguna umhverfis húsið og mæna á Ylfu og gera sig tælandi ... Ylfa er víst lítið skárri ef ég skil Úlla rétt.

MorgunverðurÉg samdi frið við kokkinn í morgun. Hann manaði mig til að fá mér venjulega skammtinn minn af kotasælu og grænmeti til að hann sæi með eigin augum yfir hverju ég nöldraði (eða mörg hundruð prósenta hækkun á morgunverðinum í gær). Hann horfði smástund á þetta, bað mig um að fá mér aðeins meira grænmeti og  verðlagði þetta svo á 80 krónur, sem er bara 100% hækkun, ekki mörghundruð prósent eins og í gær. Hann þyrfti að geta borgað ballettíma fyrir dóttur sína, borgað fólki laun, borgað rafmagn og slíkt. Við skildum í mestu vinsemd. Hugsa sér hvað krepputalið hefur gert manni, nú nöldrum við kokkurinn yfir nokkrum krónum, t.d. verði einnar gúrkusneiðar ... Helvítið hann doktor Gunni, eða okursíðan hans, ég er orðin algjör nánös og sífellt hrædd um að verið sé að svíkja mig. Ekki hefði mér, fyrrum greifanum, komið það til hugar fyrir nokkrum mánuðum. Ætla að gera eins og Björk, samstarfskona mín, og taka bara með mér nesti í framtíðinni.

Snuðrað í saumóVið Björk töluðum einmitt svolítið um aumingja Baggio í morgun, eða þegar hann brenndi af skoti fyrir Ítala í vítaspyrnukeppni úrslitaleiksins í HM um árið og það þýddi sigur Brasilíu. Ef karlmenn halda virkilega að við konur tölum bara um tíðahringinn, mataruppskriftir og barnauppeldi þá leiðréttist það hér með. Við þurfum ekki að láta klína saumaklúbbaheiti á spennuþætti til að fást til að horfa á þá ... Ó, strákar, það þýðir ekki að lesa bara Cosmo og halda að þið skiljið okkur. Lesið frekar Vikuna ... ónei, það er saumaklúbbablað sem fylgir henni núna, argggggg. Djöfull var þetta gott á mig. Alveg eins og þátturinn sem Stöð 2 auglýsir grimmt sem saumaklúbbaþátt, Woman´s Murder Club. Sonurinn spurði mig um daginn hvort ég ætlaði ekki að horfa en ég svaraði því til að mig langaði ekki til að horfa á samsull af majónesi, saumaskap og slúðri ... eins og karlar sjá saumaklúbba fyrir sér ... og með dassi af grimmilegum fjöldamorðum sem þær leysa á háum hælum á meðan þær sofa hjá samstarfsmönnunum og svona .... Sonurinn starði á mig. „Þetta er ekkert þannig þáttur, bara rosalega spennandi sakamálaþáttur,“ sagði hann. Þannig að fordómar mínir vegna viðbjóðslegra auglýsinganna á þáttunum hafa kannski haft af mér góða skemmtun á sunnudagskvöldum. Mér fannst eitthvað niðrandi við þær þótt mér finnist ekkert niðrandi við saumaklúbba, æ, einhvern veginn verið að troða okkur konum öllum í sama farið.

Jon StewartSvo er ég með geggjaðar fréttir!!!! The Daily Show, einn umtalaðist og verðlaunaðasti, beittasti og fyndnasti spjallþáttur ever með Jon Stewart hefst á Stöð 2 kl. 22.35 þriðjudaginn 9. september. Ég er búin að marggráta yfir því að við höfum bara Jay Leno ... sem ég missti nett álit á eftir 11/9 2001 þegar hann gerði grín að fátæka fólkinu í Afghanistan og á þátt í því með fleirum að koma því inn hjá fólki að allir múslimar séu hryðjuverkamenn ... En Jon Stewart verður reyndar ekki "daily", heldur bara á þriðjudögum í Global Edition. Hvað næst? Verður lífið fullkomið og við fáum Conan O´Brien ... sem er t.d. 100 sinnum fyndnari en Leno?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marilyn

Við fáum conan þegar Leno hættir - sem verður fljótlega, hann er amk. búinn að ákveða daginn, man bara ekki hvaða dagur það var.

En það er spurning hvort hann verði jafn fyndinn (eða fái að vera jafn fyndinn) þegar hann er svona snemma um kvöld í USA - þá má víst ekki vera of fyndinn.  

Marilyn, 27.8.2008 kl. 13:45

2 Smámynd: Agný

bara svona smá innlitskvitt...en ja líka svona að tékka ..þar sem mig minnir að þú sért kattavina kona mikil...(þú ert vonandi ekki "komin í hundana"  ) þá er ég alveg að drukkna í kettlingum ..eins og getur séð á einhverjum bloggfærslum hjá mér undanfarið.Heil 9 stk sem vantar heimili.....Ef að þú veist um einhvern/einhverja sem eru kattavænt fólk....Bið svo bara að heilsa þér úr Nesinu...svona mjá kveðja...

Agný, 27.8.2008 kl. 14:27

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ja, vonandi, vonandi ... Agný. Gömul skólasystir mín og bloggvinkona sagði hér í kommentakerfinu nýlega að hún þyrfti að losna við hund á gott heimili ... og önnur bloggvinkona hafði samband við hana. Nú er sú síðarnefnda orðin hamingjusamur eigandi að fallegum hundi. Allt getur gerst. Hvað eru kettlingarnir gamlir?

Marilyn, það er ekki hægt að bíða til 2009 eftir að fá Conan .... og líklega verður hann "geltur" svolítið þegar hann tekur við þættinum af Leno.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.8.2008 kl. 14:57

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Daily show, daily show, rosalega góðar fréttir. En samhryggist þér út af kaffiruglinu okurdýra (næsta blogg á undan), ekki fyndið!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 27.8.2008 kl. 15:30

5 identicon

Hehe frábær textamiskilningur :D

Það má síðan til gamans geta fyrst þú kemur inn á þessa skemtilegu viðbót í dagskrárflóruna, að á Stöð 2 í September hefst framhaldsþáttur sem heitir Terminator - The Sarah Connor Cronicles. Þátturinn fjallar um Söru og John Connor og baráttu þeirra við að bjarga heiminum undan tölvum og tortímendum. (Terminator).

Ég hef séð fyrstu 5 þættina á netinu og ég get lofað því að þetta eru með betri þáttum sem gerðir hafa verið í lengri tíma.

Þá er það komið til skila! :)

Góðar stundir.

Businn (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 20:08

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Skildi þessi litla hafa hitt þekktasta smáhund bloggheimsins, er einmitt er búsettur hér nyrðra, Voffilíus hennar Svölu J.?

svei mér ef þetta er ekki efni í eina litla lífsreynslusögu, mín ástkæra Himnaríkisdrotting og með þessu líka óvenjulega sniðinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.8.2008 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 235
  • Sl. sólarhring: 383
  • Sl. viku: 1752
  • Frá upphafi: 1453627

Annað

  • Innlit í dag: 205
  • Innlit sl. viku: 1454
  • Gestir í dag: 202
  • IP-tölur í dag: 199

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Cartman
  • Cartman
  • Ömmukaffi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband