Lestur, vinna, spælandi kökuferð og blessað boldið

GönginHér í himnaríki hefur bara verið unnið og lesið. Las skemmtilega barnabók, svolítið óvenjulega, Funhildur heitir hún, er búin með Guðmund Andra, dásamleg bók alveg, er svo með tvær í takinu núna, glæpasöguna góðu eftir Jón Hall og ævintýralega unglingabók sem heitir Göngin. Ég hef varla tíma til að vera til, hvað þá hafa magasár yfir kreppunni. Aumingja sjónvarpið, ég vanræki það þvílíkt, eins og bloggið, en ekki boldið. Og auðvitað ekki Kiljuna sem var mjög skemmtileg að vanda í kvöld.

KakaSvo var ég aðeins á ferðinni í dag með ljósmyndara sem myndaði glæstar tertur í kökublaðið okkar sem er í undirbúningi en þar sem voru döðlur í öllum kökunum og hnetur, möndlur og rúsínur, ásamt döðlum í einni var þetta ekki fitandi ferð. Síður en svo, eiginlega bara frekar spælandi kökuferð.

 

TaylorLitla stúlkan með engilsásjónuna, Alexandría, eyðilagði brúðkaup föður síns, Thorne, og væntanlegrar stjúpmóður, geðlæknisins Taylor, (sem drap óvart mömmu hennar með því að keyra drukkin á hana) með því að klippa brúðarkjólinn í tætlur sem fattaðist nokkrum mínútum fyrir athöfnina. Hún fékk faðmlag fyrir og var sagt að hún væri bara ekki tilbúin. Ef þarna er ekki verið að búa til fjöldamorðingja framtíðar þá veit ég ekki hvað. Forrester-fjölskyldan hélt blaðamannafund og sagði frá nýstofnaða tískufyrirtækinu og Nick, sem á núna gamla Forrester-fyrirtækið, horfði stjarfur af reiði á þetta í sjónvarpinu. Hann sagði mömmu sinni að hann ætlaði að ná sér niðri á þeim með afdrifaríkum hætti. Svo man ég eiginlega ekki meira. Nú er það bara upp í rúm að sofa og hlakka til spennandi strætóferðar í fyrramálið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Gurrí góð í bakinu,

gengst nú upp í skakinu

Er með TVÆR í takinu,

tilbúnar á lakinu!?

Gaman að þú sért sátt við Andra frænda!

West Ham tapaði fyrir M.U. Slæmt!

Duflkveðjur!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.10.2008 kl. 00:57

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hmmm, eru kökurnar sem myndirnar eru af sem sagt ætar (fyrir aðra en hnetu-, möndlu- og döðluhatara?). Ég man nefnilega þá tíð á vikunni að allur góður matur og eflaust kökur líka, voru pensluð með einhverju ógeði til þess að láta það líta betur út á mynd. Hrmmppppfff! Og svo er auðvitað skemmtilegasti kökublaðsbrandarinn þegar ég lag leiðréttingu á kökublaðinu eitthvað á þessa leið: Á bls. x. á að vera 100 g af hveiti, ekki 1000 g, á bls. x. vantaði 1 msk lyftduft, í kornflekskökunum átti að vera 3 bollar af kornflexti (o.s.frv. þetta með kornflexið og lyftiduftið var þarna alla vega og líka rangt, mjög rangt, magn af hveiti - þarf að finna þetta við tækifæri).

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.10.2008 kl. 01:03

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þessar leiðréttingar eru EKKI frá mínum tíma á Vikunni, heldur talsvert fyrr, og einmitt ÞESS VEGNA sem það er fyndið.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.10.2008 kl. 01:04

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhaahha, kakan sem er á myndinni er rammstolinn af google, Lemon Cake, hét hún þar, ... og okkur á Vikunni myndi ekki detta í hug að pensla þær með einhverjum óbjóði til að þær líti betur út, ekki séns. Annað hvernig við förum með okkur ... til að gera okkur sæta!

Já, slæmt hvernig leikurinn fór, Magnús.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.10.2008 kl. 07:27

5 identicon

Hm, ekki bloggað í sextíu klukkustundir? Það bara allt að fara til fjandans á Los Klakos, hm.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 12:09

6 Smámynd: www.zordis.com

Eina sneið takk!!! Sé bara þessa geðveiku hnallþóru ...

www.zordis.com, 30.10.2008 kl. 15:59

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Er einmitt á leiðinni heim í kvöld með Göngin og fleiri bækur með mér. Hann var svo freistandi bunkinn á borðinu hans Kristjáns að ég lofaði að skrifa um bækur fengi ég þær lánaðar.

Helga Magnúsdóttir, 30.10.2008 kl. 18:09

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús knús og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.10.2008 kl. 19:36

9 identicon

Elskku kona. Ég lofa því að baka einhvern tíma handa þér dísæta djöflatertu með mergjuðm marengs og ekki svo mikið sem hugsa um rúsínur eða hnetur eða döðlur eða möndlur á meðan ég stend yfir hrærivélinni!

Anna Lára Steindal (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 264
  • Sl. sólarhring: 289
  • Sl. viku: 2403
  • Frá upphafi: 1452139

Annað

  • Innlit í dag: 212
  • Innlit sl. viku: 1959
  • Gestir í dag: 206
  • IP-tölur í dag: 204

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband