Veit ekki að hún er mamman ... bold

Bold1Margt hefur gengið á í boldinu en ég verð að upplýsa  um að heilu árin hafa dottið út hjá mér en eftir að ég gjóaði augum á þetta fyrir nokkrum vikum varð ekki aftur snúið.

Ég þekki ekki alveg allar nýju persónurnar og gæti mögulega ruglað saman nöfnum. Afsakið fyrirfram.

 

 

MYND: Hope með barnið sem hún laðast undarlega mikið að.

 

 

Hér áður fyrr börðust Taylor og Brooke um Ridge - og nú hefur Brooke vinninginn, er harðgift honum. Dætur þeirra, Steffí (dóttir Ridge og Taylor) og Hope (dóttir Brooke) hafa lengi barist um Liam, son hins ríka Bills. 

Svo fór að Liam gerði þær báðar óléttar en það liðu alveg nokkrir mánuðir á milli samt.

Steffí og Liam höfðu verið mjög hamingjusöm en þegar hann sá grilla í faðernispróf ofan í tösku hennar viðurkenndi hún að hafa sofið hjá Bill, pabba Liams, nokkru fyrr, eða þegar þau urðu ósátt (skilst mér). Liam varð mjög sár og þar sem karlarnir í boldinu geta ekki verið kvenmannslausir fór hann til Hope en þau tvö höfðu reynt án árangurs mörgum sinnum að giftast en alltaf eitthvað komið í veg fyrir það, eins og Steffí. Hún varð ólétt, þau giftust. 

Dóttir Steffíar kom í heiminn og Liam sinnir föðurskyldunum vel. Steffí syrgir auðvitað fyrrum eiginmanninn, hún meira lenti í þessu framhjáhaldi með tengdapabbanum ...  

Taylor, mamma Steffíar og fyrrum eiginkona Ridge, geðlæknirinn með varirnar, hefur átt bágt í nokkur ár, aðallega vegna ofdrykkju og ýmissa ofbelisverka sem fjölskyldan hefur þaggað niður að mestu. Hún ók full á Dörlu á sínum tíma og ætlaði svo að giftast ekklinum, Thorne, til að bæta fyrir það en dóttir Thorne og Dörlu klippti brúðarkjólinn í tætlur. Ég spáði því þá, meira að segja hér á blogginu, að þarna gæti mögulega verið tilvonandi fjöldamorðingi á ferð ef ekkert yrði að gert, og hafði næstum því rétt fyrir mér.

Já, Taylor kynnist nýlega lækni sem er spilasjúkur og skuldar stórfé, ef hann borgar ekki mun dóttir hans fá fyrir ferðina. Um svipað leyti fer Taylor að svipast um eftir barni fyrir Steffí til að ættleiða svo dóttirin verði ekki einbirni og leggur inn orð hjá lækninum. 

Bold2Þessi læknir, fyrir algjöra tilviljun, tekur á móti barni Hope og Liams, í brjáluðu veðri á sumarleyfiseyju en Liam komst ekki í tæka tíð. Tvö börn fæddust þessa nótt, annað andvana og móðirin lét sig hverfa ... Svo læknirinn segir Hope að barn hennar hafi ekki lifað af, selur Taylor það og fær vinkonu sína til að þykjast vera mamman sem vill gefa Steffí barn sitt til ættleiðingar. 

Hann borgar skuldina, Steffí fær barn en Hope syrgir sitt. Hún nær þó undraverðu sambandi við ættleiddu dóttur Steffíar og sárin byrja að gróa ... 

Dóttir læknisins, sem einhvern veginn tengist Steffi og Hope, vinnur sennilega fyrir Forrester-fjölskylduna, kemst að þessu, gengur á vinkonu pabbans sem þóttist vera móðirin, og fær að vita hið sanna.

Pabbi hennar grátbiður hana um að segja ekki sannleikann - þá lendi hann í fangelsi og líka vinkona hans. Hope fái þó að umgangast dótturina þótt hún viti ekki að hún sé rétta móðirin ... 

Mig grunar að þetta komist upp fljótlega.

NEÐRI MYNDIN er af lækninum tala við dótturina fokreiðu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta Gurrý mín. Meira svona takk

Anna Kristine Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2021 kl. 12:18

2 identicon

Gurrí hvernig í ósköpunum ferð að halda utan um allt þetta fólk? Ég varð bara ruglaðari eftir því sem ég las meira.Reyndar verður það að viðurkennast að ég hef aldrei horft á einn einasta þátt.

Margrét Fafin Thorsteinson (IP-tala skráð) 4.2.2021 kl. 14:40

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mín kæra frú Fafin. Ég man sumt, annað ekki, og veit t.d. ekki hvaða hlutverki hún gegnir, þarna dóttir læknisins ... veit bara helstu nöfnin. En í alvöru, það er hægt að taka sér frí frá þáttunum um hríð, líklega hef ég tekið of langa pásu fyrst ég veit svona lítið um þetta fólk þarna á neðri myndinni.

Guðríður Haraldsdóttir, 4.2.2021 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 421
  • Frá upphafi: 1445648

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 367
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband