Af rjómatertu og sjokkerandi flugferð

Gluggalaust í flugvelAf hverju geri ég þetta alltaf ... eða er með allt of mikið með kaffinu þegar koma gestir? Í dag mættu tvær góðar vinkonur, önnur alla leið frá Bandaríkjunum (kom reyndar í des.) og hin úr Reykjavík (en samt ágæt). 

Ég ofmet iðulega magamál annarra og það hefði verið meira en nóg að bjóða upp á hálfa rjómatertu. En nei, ég keypti tvo hvíta botna, frysti annan, skellti kokteilávöxtum á hinn, gerði búðing úr hinum nýju Royal-bananasplittdásamlegheitum sem eins og sumt annað gott er ekki komið til að vera ... síðan rjóma á hliðarnar.

Þetta hefði dugað þremur flottum kerlum, meira að segja verið of mikið. En ... ég keypti líka súkkulaðitertu, hafði ekki tíma til að baka, og þeytti rjóma með. Einnig var ég með flatkökur, rúgbrauð og kvöldbollur (Costco, úr frysti). Hangikjöt, kindakæfu, rúllupylsu og hið guðdómlega Önnu Mörtu-pestó sem ég hafði keypt í Hagkaup. Á kantinum voru svo tvær rúllur af smákökudeigi síðan um jól (rennur út sumar 2021) og ég gleymdi að baka þá, sem ég var að hugsa um að skella inn í ofninn ef ég sæi að þetta dygði ekki.

Þú áttir ekki að hafa neitt fyrir okkur,“ skræktu vinkonurnar hissa (en glaðar) þegar ég setti rjómatertuna á borð, mína fyrstu rjómatertu í áratugi. Ameríkuvinkonan elskar allt gamaldags íslenskt og þegar ég hef farið í heimsókn westur til hennar hef ég gripið með mér efnavopn á borð við súrhval og eitthvað kæst. Alltaf er ég samt jafnhrædd um að verða handtekin á flugvellinum í Seattle. Maðurinn hennar biður um bingókúlur. 

Ég heimsótti þau hjónin jólin 2019 en þá voru tollverðirnir á svínakjötsveiðum svo ég komst inn með hangikjöt, flatkökur, súrhval, kæstan hákarl, kindakæfu, Ora-grænar og laufabrauð - með því að segjast vera með smoked lamb og áður en ég gat farið að telja upp hitt var ég boðin velkomin til Bandaríkjanna ... 

Óheppið fólk (frá Keflavík) sem við hittum hlakkaði til að borða hamborgarhrygg með Kanada-bróður á aðfangadagskvöld en varð að kaupa eitthvað annað í matinn - komst þó inn með kæstu skötuna, þar setti ég mörkin, og eiginmaður vinkonu minnar eflaust líka, hefði hann grunað að hún bæði um slíkt. Hann neitar til dæmis að kyssa hana í marga daga eftir að ég kem í heimsókn, eða þar til kæsti hákarlinn er búinn.

Ferðin vestur um haf tók tæpa átta klukkutíma og ég er enn brjáluð út í Icelandair fyrir að láta mig borga fullt verð fyrir sæti án glugga (sjá átakanlega ljósmynd hér ofar)... Má það bara? Við fóstursonurinn sátum sársvekkt en fólkið í kringum okkur kunni ekki að meta gluggana sem það hafði, dró hlífina niður jafnvel eða svaf eins og skepnur. Eitt það skemmtilegasta sem ég veit er að fljúga og hluti af töfrunum er að horfa út um gluggann í flugtaki og lendingu - og þess á milli.

 

Fyrsta AmeríkuferðinHálfri rjómatertu síðar og góðu spjalli kvöddu vinkonurnar en mér tókst að skella heilmörgu gamaldags góðmeti í poka og senda Ameríkuvinkonuna með heim en hún verður eitthvað lengur á landinu. Svo var Inga vinkona svo sæt að stökkva yfir til mín um kvöldmatarleyti og aðstoða með rjómatertuna sem enn er ein sneið eftir af.

 

 

Neðri myndin er frá New York, í fyrstu ferðinni til USA, að mig minnir 1991. Einn morguninn sat ég á veitingastað og smakkaði í fyrsta sinn beyglu og drakk cappuccino með þegar enginn annar en Dustin Hoffman atvinnuleikari gekk fram hjá. Við Íslendingarnir létum eins og við sæjum hann ekki.

 

Það var eiginlega enn merkilegra í næstu ferð á eftir, kannski átta árum seinna, á skólaferðalagi (hagnýtrar fjölmiðlunar) að rekast á Valgeir Guðjónsson tónlistarmann á labbinu í Washington-borg.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 186
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 172
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband