Átakanleg kálfasteik

Gos gosEldgosið sýndi sig sæmilega vel í dag, eða eins og sjálfur Ómar Ragnarsson orðaði það: „... gufubólstur sem myndast við það að heitt loft streymir upp í kaldara loft og þéttist.“

Í gærkvöldi þegar ég sat við tölvuna hlustaði ég á útvarpið með öðru eyranu. Lagði betur við hlustir þegar maður sem virtist í fyrstu vera í viðtali, fór að tala um að hann hefði nánast farið óvart út í fjárhús seinna þennan dag og þá séð að blessuð kindin var búin að bera þremur lömbum. „Svo þurfti ég nú að láta slátra henni ...“

Ég fékk sjokk, stökk á fætur og slökkti á útvarpinu, þetta var of harðneskjulegt á laugardagskvöldi, hvað var þessi maður að gera í útvarpinu mínu?

Ég lagðist í rannsóknarvinnu og komst að því að þetta var reyndar létta og káta allir í stuði-næturvaktin (ekki samt ætluð viðkvæmum), þáttur þar sem landsmenn fá að hringja inn, biðja um óskalag og spjalla við útvarpsmanninn.

En kannski fékk sagan góðan endi (held samt ekki) og lömbin þrjú lifðu hamingjusöm upp frá því (held samt ekki). En það fæ ég aldrei að vita fyrst ég slökkti.

Ég lærði vissulega eftir fyrsta sumarið í sveitinni í gamla daga að vingast ekki við kálfana, vera góð við þá en mynda ekki tilfinningatengsl, maður gat nefnilega lent í því að þurfa að borða þá næsta sunnudag með Ora-grænum og rabarbarasultu. 

Stori kroppurRás 2 bætti mjög vel fyrir hrylling gærkvöldsins með frábærri dagskrá í dag, sunnudag. Spennandi spurningaþáttur rétt fyrir hádegi, svo var vinsældalisti fyrir aldraða,  (ein vika á síðustu öld var tekin fyrir, lagið Firestarter var í fyrsta sæti, Oasis í c.a. þriðja o.s.frv., dásamlegt), svo var hin frábæra, frábæra Andrea með þátt og nú er Tvíhöfði í gangi.

Vinkona mín kíkti í kaffi í dag, hún ætlar að gosinu á morgun eða hinn. Henni var sagt að þyrluvélarhljóðin skemmdu upplifun fólks sem langaði að heyra drunurnar í gosinu. Hún heyrði líka að sumir / einhverjir foreldrar sendu börn sín út á storknað hraunið til að sækja heimilisdrónann sem lenti óvart þar ... Sumir eru greinilega ekkert fyrir börn.

Elsku frábæri Davíð frændi á afmæli í dag, rétt rúmlega þrítugur - til hamingju. (Hættu að hlusta á hlaðvörp, farðu að lesa blogg, drengur!) 

Neðri myndin er tekin úti í sveit en þarna var ég orðin talsvert eldri en sá krakki sem neyddist til að borða vini sína, kálfana, í sunnudagsmatinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í minni sveit voru kálfarnir skotnir með gömlum herriffli. Engin miskunn hjá Magnúsi. cool

Þegiðu Magnús! - Spriklur - Myndband

Þorsteinn Briem, 29.3.2021 kl. 12:36

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Líka í minni sveit ... alla vega heimaslátrað.

Guðríður Haraldsdóttir, 29.3.2021 kl. 14:31

3 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Hélt að enn ein surprise fréttin væri komin í andlitið á mér þegar ég kom heim í gærkvöldi og las frétt um gosstrók sem Ómar Ragnars. tók mynd af. Hélt að nýtt gos væri hafið einhversstaðar. Vissi ekki að 'Kvígugosið' framleiddi gosstrók. Kalla gosið þessu gælunafni, þar sem það stendur fyrir framan Stóra-Hrút. Svo er til Litli-Hrútur og nú er fædd lítil kvíga.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 29.3.2021 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 364
  • Sl. viku: 2145
  • Frá upphafi: 1451881

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1753
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband