Heimsókn á föstudegi

SpádómarDyrabjallan hringdi. Ég ákvað að láta sem ég heyrði það ekki, dauðskelfd eftir að hafa verið á Facebook. Skömmu seinna var barið að dyrum, einhver hafði greinilega brotið dyrnar niðri, eða hringt hjá fleiri íbúum. 

„Hver er þetta?“ spurði ég. Röddin titraði.

„Þetta er ég, Inga, vinkona þín í næsta húsi,“ var svarað.

„Geturðu sannað það?“

„Æ, Gurrí með einföldu, þetta er bara ég, hvað er í gangi?“

 

Ég opnaði dyrnar og mér til mikils léttis sá ég að þetta var Inga.

„Ég hélt að Bill og Melinda Gates væru að sækja mig. Þau eiga mig. Þau eiga örflögurnar sem sprautað var í mig á miðvikudaginn sem þýðir að þau eiga í mér erfðamengið, í raun hvern blóðdropa, allt DNA-ið, það hafa víst fallið dómar um það í Bandaríkjunum, ég sá það á Facebook áðan,“ sagði ég óðamála.

„Fékkstu ekki AstraZeneca?“ spurði Inga rólega en mér fannst gæta hálfgerðrar öfundar í rödd hennar en það hlaut að vera ímyndun, á ekki fæserinn að vera svo góður?

„Jú!“ sagði ég.

„Held að Gates-hjónin hafi nú bara fjármagnað Pfizer-bóluefnið, svo einhver annar á þig,“ sagði Inga hugsandi og settist við borðstofuborðið. Kettirnir létu ekki sjá sig sem var óvenjulegt þegar Inga kom í heimsókn. Hún hélt áfram, nú allt í einu með ógnandi röddu: „Ég fékk Pfizer ... og mér var falið að sækja þig,“ Hún hló illskulega og ég áttaði mig á því að þetta var í raun ekki yndilega Inga mín, heldur eitthvað annað. „Hjónin vilja fá þig til sín ekki síðar en í kvöld. Þyrlan kemur eftir korter, einkaþotan bíður á Reykjavíkurflugvelli. Þau langar í djúsí steik í kvö-“

„Ætla þau að borða mig?“

„Er ekki allt í lagi með þig? Með öllum þessum örflögum yrði það eins og að bryðja högl.“ Inga hryllti sig og hélt afram: „Þau langar einfaldlega að fá þig í mat, heyra fréttir frá Íslandi og af Íslendingum sem þau eiga svo stóran part í, en því miður ekki þig, þú varst svo fjandi heilbrigð, á réttum aldri og ekki framlínustarfsmaður eða með undirliggjandi. Þú ert líka svo mikill áhrifavaldur á Moggablgginu, fólk er farið að trúa á þig. Ertu ekki farin að fá skyr og páskaegg og svona til að skrifa um?“

 

Ég hristi höfuðið og gat ekki haldið aftur af nokkrum tárum sem runnu niður fagrar kinnar mínar, mjög sléttar miðað við aldur. Þetta var svolítið viðkvæmt, þetta með skyrið.

Inga hélt áfram: „Það er önnur flott kona sem bloggar en hún hefur þegar séð í gegnum allt saman og það fyrir löngu. Hjónin hrifust af sakleysi þínu og trúgirni ... og þau langar líka í spá, taktu tarotspilin með.“ 

„Hei, ég er löngu, löngu hætt ... og sjá í gegnum hvað?“

„Þau vilja þetta og orð þeirra eru lög - þau þurfa sönnun í gegnum spádóm þinn um að heimsyfirráð séu handan við hornið.“

„Já, en hvað græða þau á því að-“ Ég komst ekki lengra.

„Svona spyr maður ekki, bíddu aðeins,“ ég sá á svip Ingu að hún var að rífast við einhvern í huganum. Þessar örflögur eru greinilega soldið sniðugar. 

„Hei, þau vilja víst tala við hina, þeim finnst meira ögrandi að reyna að snúa henni en spjalla við þig, þú ert of vitlaus, finnst þeim, já, og hin kann nefnilega líka að spá.“

„Ég er löngu hætt að spá og maður á ekki að trú-“

„Skiptir engu, áttu kaffi handa mér áður en ég dríf mig með þyrlunni suður?“

„Já, auðvitað.“

„Viltu kannski koma með?“

 

Ég ætlaði að svara neitandi, hef mínum skyldum að gegna, ekki síst við bloggið ... en svo fann ég þægilegan straum aftan í hnakkanum, eins og eitthvað væri að virkjast. Jú, ég vildi fara með. Ég eins og vissi að það væri hið eina rétta. Ég fann líka á mér að ég gæti haldið áfram að blogga með hugarorkunni, þótt ég væri hvergi nálægt tölvu. Á endanum fæ ég skyr til að smakka og skrifa um, ég veit það. Hvernig veit ég það? Þið skiljið það eftir bólusetningu. 

Það kom líka til mín að allt eigulegasta fólkið fær AstraZeneca-bóluefnið. Brátt fæ ég að vita hvert hlutverk mitt verður. Eina sem ég veit er að ég á ekki aðeins að halda áfram að vera sæt, heldur eitthvað annað og meira.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 70
  • Sl. sólarhring: 289
  • Sl. viku: 2029
  • Frá upphafi: 1452229

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 1637
  • Gestir í dag: 64
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband