Óvænt tískutrend

Fjarstýrð vifta bjargar lífumHamingjan yfir covid-afléttingum hefur nú síast inn og bara það að þurfa ekki að bera grímu í strætó er dásamlegt, svona ef ég hugsa út frá sjálfri mér - en grímur fela nú samt hrukkur, ég finn strax mun, fékk mun meiri athygli við kæliborðið í Einarsbúð þegar grímuskyldan stóð sem hæst, svo var alltaf vínlykt af fólki (spritt) sem minnti á sukk og svínarí sem þá var bannað.

Hitinn fór í óbærilegar 12 gráður í dag. Þegar ég settist fyrir framan fyrri EM-leik dagsins, tók ég fjarstýrðu viftuna með og hún bjargaði lífi mínu, takk, Costco. Mér skilst að hafi ríkt gríðarleg stemning á Laugaveginum í Reykjavík í góða veðrinu í dag, Laugavegi sem sumt bílafólk segir að sé ávallt mannlaus ... hér á Skaganum var heilmikið líf og fjör skilst mér, eða á Laugavegi okkar Akurnesinga, Kirkjubraut, eins og sést á meðfylgjandi rammstolinni mynd hér neðar, þar sést GAMLA KAUPFÉLAGIÐ sem býður upp á Akraborgarann. Þegar ég var lítil fór ég í mjólkurbúð í þessu húsi - seinna í kaupfélagið - svo gisti ég þar á Hótel Barbró eftir skemmtilegt árgangsmót. Ég er svo lífsreynd.

Ef mér skjátlast ekki verða Írskir dagar um næstu helgi ... og þá verður nú dásamlega troðið á Skaganum.   

Ég hef fengið nokkrar heimsóknir í dag - og fólki fannst ég kyssa það ansi innilega bless (nema nána ættingja, auðvitað), svo mjög að vinkonur Hildu systur hlupu æpandi niður stigana, kunnu ekki gott að meta ... já, og svo voru frekar rólegir (þannig) leikir á EM í dag, nema kannski uppbótartíminn í þeim seinni sem þýddi að ég gat heklað svolítið á milli þess sem ég las. Ég er nánast viss um að yfirheklaðir drullusokkar verði hið óvænta tískutrend í haust og vetur, virt hönnunarverðlaun kannski handan við hornið? Veit ekki hvernig fer með störfin mín þrjú ef þetta bætist við - hver þarf svo sem að sofa í átta, níu tíma á hverri nóttu? Ég mun taka 70 þúsund krónur á hvern yfirheklaðan drullusokk, 67 þúsund ef fólk kaupir sjálft drullusokk og garn. Má panta í gegnum bloggið, auglýsi nánar og mynd kemur fljótlega, er svo langt komin með minn.

Laugavegur, 300 AkranesiJá, Hilda og dásamlegu vinkonur hennar kíktu í kaffi á leiðinni að norðan eftir fínustu skemmtiferð í fárviðrinu í gær sem þá ríkti, minnir mig, hef ekki svo gott veðurminni - en verst fannst mér að gosið hafi ekki sýnt sig á sjóndeildarhringnum því oft sést það ótrúlega vel úr rauða sófanum í stofunni. Það kom í ljós í spjallinu að systir mín hefur hvorki skoðað Facebook-síðu mína né lesið bloggið undanfarið, kannski drukkin, farin að kalka ... „Ha, hvaða rabarbaragraut?“ spurði hún eins og fáviti þegar ég var að hefja mjög áhugaverða sögu um rabarbaragrautinn sem var í matinn alla helgina. Stráksi er að heiman, svo það sé á hreinu. 

Nú er búið að „samþykkja“ að nota Eigðu góðan dag. Íslenskuprófessor sem ég tek mikið mark á segir þetta í fínasta lagi og algjör óþarfi að amast við því. Framvegis mun ég segja „Sömuleiðis,“ ekki horfa nístandi augnaráði á afgreiðslufólkið sem ég hef nú aldrei gert.

 

P.S.-MOLAR

- Ég held með löggunni!

- Gleðilegustu tíðindi dagsins voru að bandaríski ferðamaðurinn fannst heill á húfi. Jú, ég er bakvörður björgunarsveitanna.

- Kláraði að lesa þykkan doðrant í gær og dag, fínan, tveir eftir - byrjuð á bók nr. 2 sem á víst að vera mjög fyndin, hlæ mig kannski í svefn.

- Sammála Svanhildi Hólm, vítaspyrnukeppnir eru viðbjóður.

- Hvað varð um rólegu og skemmtilegu leikina í símanum? Nýjustu sem ég hef dánlódað (mér tekst það stundum) eru með aukafídus sem valda mér streitu. Ég þarf t.d. í einum leiknum að finna fimm villur á 90 sekúndum. Af hverju má ekki leita í rólegheitum, þarf alltaf að vera stress?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 259
  • Sl. sólarhring: 386
  • Sl. viku: 2398
  • Frá upphafi: 1452134

Annað

  • Innlit í dag: 208
  • Innlit sl. viku: 1955
  • Gestir í dag: 203
  • IP-tölur í dag: 201

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband