Draumur um þokumann og misskemmtilegir Facebook-hópar

Fjölmargir tóku síðustu færslu minni afar illa og athugasemdir fylltu hvern krók og kima í tölvunni minni. Eldgosið væri víst í alvörunni, sagði fólk, en þokukenndir Írskir dagar bara ímyndun mín, og eins og einn fyrrverandi vinur minn, núverandi óvinur, orðaði það: „Þú getur ekki lent á séns í hverri einustu fokking færslu! Það eru ekki til svona margir karlar á öllu suðvesturhorninu.“ Eins og þessir að norðan, austan og sunnan, teldust ekki með ... en ég veit, það er ekki mikið úrval, ef marka má orð hetjuvinkvenna sem þora að hanga á Tinder.

Orð hans fengu miSítrónufrómasg samt til að hugsa og sitthvað er rétt hjá þessum til eilífðar-óvini mínum, þokan ruglaði mig í ríminu og mig hefur sennilega dreymt manninn sem er grunsamlega óskýr í minningunni. Hver týnir manni í þoku? Hver heilvita manneskja veit líka að það kann enginn alvörukarlmaður að búa til sítrónufrómas, þetta var óafvitandi einhver vörn hjá mér, svo ég gangi örugglega aldrei út. Kannski er ég hrædd við að binda mig, og kannski er sítrónufrómas bara svona góður í minningunni. Og kannski er bloggið mitt að breytast í svona játninga- og tilfinningablogg þar sem ég svipti hulunni af öllum æsispennandi leyndardómum mínum ... eða kannski ekki. Eiginlega örugglega ekki.

Svo rekur mamma rosalega mikið á eftir mér, hún hefur viljað sjá mig sem fyrst í öruggri höfn hjónabandsins eftir skilnað minn 1982. „Gurrí mín, þú ert að verða 63 ára í ágúst,“ nöldrar hún. Ég hef nú samt horft á nógu mikið af Bold and the Beautiful til að muna eftir því hversu oft Brooke stakk undan dóttur sinni, Bridget. Alla vega tvisvar en ég hef ekki treyst mér til að horfa á BB mjög lengi svo það getur verið oftar. Það eru bara fréttir, eldgos og fótbolti sem halda mér við skjáinn. Og svo er ég búin að hlusta á heila bók í viðbót á Storytel, Hittumst í paradís (eftir Heine Bakkeid) ... og sú var æði, mjög spennandi. Kláraði með augunum bókina Kaldaslóð í síðustu viku og fannst hún virkilega fín og spennandi líka. Hún er eftir Kim Faber og Janni Pedersen.

Ég dái og dýrka íslenska bókaútgefendur fyrir að hafa hoppað á krimma- og kiljuvagninn. En með hækkandi aldri og auknum þroska, fyrir svona fimm árum, öðlaðist ég smekk fyrir ljóðum og mætti örugglega gera talsvert meira af því að lesa þau.

- - - - - - - - - - - - - - -     

Margir hafa tjáð sig undanfarið um mann sem nýlega fékk  afleiðingar gjörða sinna í hausinn en þar sem ég mun aldrei, sökum elli (16 plús), lenda í honum ætla ég bara að einbeita mér að EM. Áfram England. Á morgun.

DíönusíðanÞeir sem eru á Facebook vita að til eru alls konar hópar þar, sumir skemmtilegir, aðrir ekki. Ég er í mörgum, m.a.: Stuðningshópur fyrir fólk sem gengur asnalega í hálku, Fólk sem ruglar saman bakaríi og apóteki, Hróarsdalsættin, Flatey á Skjálfanda, Pink Floyd og nokkrum kisuhópum.

Nokkrum sinnum var mér troðið (ekki boðið) í hópinn Góða systir en ég fleygði mér jafnóðum öskrandi út úr honum á ferð, bara nafnið fældi. En nýlega var mér bætt í hóp um Díönu prinsessu og þar ríkir nokkuð sérstakur húmor. Hvaða litur er aftur svartari en svart? Ég er nú samt manneskjan sem kom heim af Kaffibarnum í lok ágúst 1997, hlustaði á ein skilaboð sem höfðu borist á símsvarann minn, í kjölfarið kveikti ég á Sky News og horfði þar til yfir lauk, eða Díana dó, líklega um sexleytið um morguninn. Svo náði hún mér í aldri, eða hefði gert, núna 1. júlí.

Ég var með fjölvarpið 1997 og gat fylgst með fréttum af bílslysi Díönu og Dodis en vegna blankheita sagði ég því upp 1. september 2001 sem kom mér, fréttafíklinum, illilega í koll ellefu dögum seinna. Ég fæ enn hroll þegar ég hugsa um það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 266
  • Sl. sólarhring: 277
  • Sl. viku: 2405
  • Frá upphafi: 1452141

Annað

  • Innlit í dag: 214
  • Innlit sl. viku: 1961
  • Gestir í dag: 208
  • IP-tölur í dag: 206

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Fyrr í kvöld
  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband