3.9.2021 | 18:53
Drög að mávastelli og hættuleg jarðskjálftaögrun ...
Djamm- og sukkhelgi enn og aftur runnin upp ... stráksi kominn í frí frá mér. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á af mér að gera, sennilega bara húsverk og afsleppelsi eins og síðast. Maður veit aldrei hvert stefnumót geta leitt mann ... sjá mynd.
Keli the cat braust inn í fataskáp stráksins svo kannski tek ég til þar og geri þjófhelt, Keli var svo sem ekki að stela neinu, hugsaði bara um að rústa.
Eða bara fara út á lífið, á Borgina? Villta, tryllta Villa?
Það er alla vega komið að því að þrífa espressóvélina góðu. Ég hef skoðað YouTube-myndbönd og ætla að hafa þau mér til aðstoðar á meðan en það þarf eiginlega að vera vélaverkfræðingur eða kjarneðlisfræðingur til að ná þessu. ... látið fjórðung vatnsins renna í gegn en slökkvið svo, leyfið vélinni alls ekki að hitna, bíðið í 20 mín. og látið svo næsta skammt renna í gegn ... Þetta er samt ekki það flóknasta ... Guðmundur almáttugur!
Ég ætla hvorki að svara síma né dyrabjöllu á meðan, einbeita mér algjörlega að þessu flókna vandaverki. Þetta er til dæmis ein ástæða þess að ég væri til í að gifta mig, veit um alla vega einn karl sem sér algjörlega um þrif á kaffivélinni á eigin heimili. Ég sagði konunni hans að hann væri alltaf velkominn í heimsókn til mín en hún hló bara kvikindislega.
Svo mega landsmenn búa sig undir The jarðskjálfta því ég gerði svolítið af mér í dag. Frá því að skjálftahryllingurinn hófst á Reykjanesskaga fyrr á árinu hef ég eiginlega beðið eftir þessum stóra sem varað var við, var það ekki í Brennisteinsfjöllum? Ég keypti enn fyrr á árinu tvo mávastellsbolla á góðu verði hjá Kristbjörgu í skúrnum. Þegar ég var orðin smeyk við þennan stóra sem varað var mikið við, pakkaði ég ýmsu brothættu niður í stóra margnota innkaupapoka og setti bollana tvo, undirskálar og kökudiska, ofan í skúffu með hversdagsbollum og -glösum og vafði þá fyrst inn í eldhúsbréf. Svo nennti ég ekki að hafa stofuna mína alla niðurpakkaða og setti puntið á sinn stað örfáum vikum seinna - nema mávastellsbollana.
Í dag tók ég svo þá áhættu að skella þeim á sinn stað inn í skáp í stofunni ... og hef verið viðbúin öllu síðan. Ég hef slæma reynslu af því að ganga að einhverju sem vísu, mér hefnist svo oft fyrir það. Keypti sumarsængina um árið, munið, og það skall á versta og kaldasta sumar í manna minnum, Írskir dagar fuku nánast á brott frá Akranesi, man ég, og ég skalf undir sænginni, þrjóskaðist allt of lengi við að setja lopateppi ofan á hana en það þurfti svo sannarlega. Ég hef oft beðið afsökunar á þessu kalda sumri.
Ef sá stóri (kannski enn meiri áhætta að segja ef) kemur innan viku verður það mér að kenna. Afsakið fyrirfram.
Elskan hún Þoka frænka er á batavegi og losnar vonandi við risastóra gipsið eftir viku. Hún hefur dundað sér við það undanfarið að drepa teygjur og finnst það bráðskemmtilegt.
Þess á milli horfir hún á Kattarshians á stóra skjánum eða mína ketti á Snapchat. Hrikalegt fyrir fjörugan og hressan kettling að fótbrotna en Þoka er afar heppin með eigendur sem dekra við hana og reyna allt til að gera henni lífið bærilegra.
Á myndinni sést hún murka lífið úr virkilega árásargjarnri teygju sem byrjaði!
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 243
- Sl. sólarhring: 308
- Sl. viku: 1956
- Frá upphafi: 1453117
Annað
- Innlit í dag: 215
- Innlit sl. viku: 1604
- Gestir í dag: 206
- IP-tölur í dag: 204
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.