Fyrsti í kaffi, þriggja hunda klapp og sukk í bókabúð

Síðasti safinnÞað var eiginlega sorglegt að ganga út í Kaju, kaffihús og verslun, í dag og skila safaflöskum síðustu daga (tómum), kveðja safakúrinn og þurfa héðan í frá alveg sjálf að sjá um að sansa mat ofan í mig ...

Vakn í morgun varð óvænt upp úr átta, tími sem er vanalega ekki til í mínum klukkum um helgar, frekar tíu eða ellefu. Reyndi að sofa lengur, tókst ekki, prófaði að lesa, skorti eirð. Svo mundi ég að það var fyrsti í kaffi, fyrsti í mat eftir safakúrinn ...

Það stórsér á kóvíd-og-hætta-að-reykja-og-fitna-keppnum sem ég safnaði á mig en hann er þó ekki farinn, bölvaður. Stundum væri gott að vinna við að grafa skurði í stað hreyfingarleysis við tölvuskjá ... samt ekki. En upp á keppi að gera.

 

Ég fékk mér banana í morgunmat og svo kaffi, hafði óttast mjög að bragðskynið hefði ruglast með því að sleppa kaffi í fimm daga. Það gerðist þegar ég lá á sjúkrahúsi í fimm daga á síðustu öld. Kaffið reyndist vera dásamlegt í meira lagi en eftir svona þrjá sopa af því breyttist ég hratt í hressu týpuna sem fær t.d. hlutverk í auglýsingum um hafragraut - eða ofurhetju í hreingerningum. Tók fullan ruslapokann fyrir stráksa að fara með út í tunnu og þreif auðvitað ruslaskápinn í leiðinni, svona jóla- og páskahreingerning með dassi af skipulagsbreytingum.

 

ÞrifæðisruslaskápurKassar með litlu safaflöskunum fóru af borðinu við hliðina á vaskinum og ofan í poka, ahh, hugsaði ég, best að þrífa vaskinn almennilega, á ég ekki pink stuff og þarna svampinn góða? Jú, jú, og vaskurinn gljáir eins og nýr og ég hefði nuddað matarolíu í hann með eldhúsbréfi til að gera hann enn flottari ef ég hefði ekki þurft að drífa mig í sturtu og síðan á stefnumót við fóstursoninn í Kaja Café. Hefði mjög líklega annars náð að skipta um eldhúsinnréttingu, setja nýtt parket og hreingera þakið á Himnaríki fyrir klukkan fjögur. Mig vantaði nánast aðrar íbúðir til að komast í og þrífa ... Held að Sólrún Diego hefði orðið stolt af mér en ég fylgist með henni á Instagram og finnst hún algjört yndi. Og Tinnabk, Thelma Hilmars, Gveiga og fleiri. Fer snemma upp í á kvöldin, kíki á snapp og insta, les svolítið og fer seint að sofa. Gæðatími. Það er svona að nenna varla að horfa á sjónvarp. Vinnunnar vegna get ég vaknað seint sem er æði upp á að ná 8-9 tímum.

 

JÁTNINGAR BÓKASJÚKLINGS:

Ó, og ég sá bókabúðina í dag og ekkert fékk haldið mér ... það á ekki að hleypa mér lausri nálægt slíkum búðum, ekki með debetkort. Og nei, það voru ekki fínu belgísku trufflurnar þar sem freistuðu eða kaffibaunirnar frá Te og kaffi, heldur bækur. Og ég keypti þrjár! Ljósgildruna eftir Guðna Elísson, sem hann segir ekki vera vellíðunarnasl fyrir hræddar sálir. Hann var svo sjúklega skemmtilegur í Kiljunni að bókin getur ekki verið leiðinleg. Hún er jólagjöf til mín frá mér ... og líka bókin Launsátur eftir Jónínu Leósdóttur og Stóra bókin um sjálfsvorkunn eftir Ingólf Eiríksson - og ég gleymdi að kaupa Borð fyrir einn eftir Nönnu Rögnvaldardóttur (geri það næst)... sem er föðursystir Ingólfs. Eiríkur, pabbi Ingólfs, kenndi mér íslensku eina önn í HÍ, alveg frábær. Ég hræddi líftóruna úr Ingólfi sem litlum dreng þegar ég svaraði dyrasímanum í Þorláksmessuboði hjá Nönnu (sem ég hef þekkt frá 1975), held að drengurinn hafi spurt hver þetta væri og ég, alltaf að reyna að vera fyndin, svaraði: Grýla! Hann hefur ekki erft þetta við mig, held ég, hann er afskaplega skemmtilegur höfundur. Jónína vann með mér um hríð hjá Fróða (núna Birtíngur) þar sem ég er enn alsæl (2000- xxxx). Jónína skrifar mjög skemmtilegar bækur.

Ísland er MJÖG LÍTIÐ, ég veit.

  

Stúlkan í bókabúðinni gaf mér kynþokkaafslátt en ég borgaði samt blindandi til að forðast sjokk. Ég sleppi því bara að leigja til dæmis lyftukrana í einn eða tvo tíma og þá á ég fyrir þesssum bókum og rúmlega það.

 

Í þessari dásamlegu ferð um undirheima Akraness (allar freistingarnar) hitti ég þrjá hunda og fékk að klappa þeim. Passaði að spritta vel við heimkomu til að móðga ekki kettina,

 

BirgirVá, hvað allir eru reiðir út í Birgi sem kvaddi óvænt Miðflokkskjósendur sína sem komu honum á þing og gekk án nokkurrar miskunnar í Sjálfstæðisflokkinn. Sumir en ekki allir sjálfstæðismenn eru sáttir. Góð kunningjakona mín sem er í Sjálfstæðisflokknum, mjög fín samt, er langt frá því að vera hrifin. Skyldi í alvöru vera hægt að reiðast svona hægt og hljótt (Klaustursmálið)?

Hvað segir stafavíxlvélin um innræti Birgis Þórarinssonar? Ég setti inn BirgirThorarins(hún vildi ekki Þ og það var ekki pláss fyrir son):

Rati brosir hring.

Hart rignir brosi.

 

Mér sýnist á öllu að tilvonandi ríkisstjórn nenni engu veseni og ætli að láta NV-klúðrið standa sem Stöð 2 kallar svo kurteislega annmarka. Þjóðin er vissulega búin að segja skoðun sína og vill þessa stjórn áfram, þess vegna fyndist mér mjög flott af B-V-D (bjartar vonir dofna?) að láta kjósa aftur, örugg um sigur því varla breytist stóra myndin mikið, ég hef litla trú á því. Ég bara trúi ekki að þau hummi þetta fram af sér. Og þetta eru ekki vonbrigði-með-úrslitin að tala.

SAMT: Fyrir kl. 22 á kjördag, áður en kjörstöðum er lokað, má ekki birta tölur. Kannski er ólöglegt, eða á mörkum þess að vera það, að við í Norðvesturkjördæmi fáum að kjósa aftur vitandi úrslitin hjá hinum ... Það er dýrt að láta kjósa aftur um allt land - en slæmt samt að hunsa "annmarkana" og löngun mína í meira kosningakaffi. 

 

Þennan dag fyrir ellefu árum hafnaði ég vinatengslum við hópinn Spilavist fyrir einhleypa að áeggjan Guðnýjar í vinnunni sem hélt að þetta væri spúkí félagsskapur fyrir saklausar konur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Birgir Þórarinsson talar Sjálfstæðisflokkinn væntanlega í hel, eins og Miðflokkinn. cool

13.6.2021:

Birgir Þórarinsson ræðukóngur þriðja árið í röð

Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 1% minna fylgi í alþingiskosningunum í september síðastliðnum en í alþingiskosningunum fyrir fjórum árum, þegar flokkurinn tapaði um 4% fylgi. cool

Miðflokkurinn rétt skreið núna yfir 5% mörkin og undirritaður gæti best trúað að flokkurinn fái engan borgarfulltrúa í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 28. maí næstkomandi.

Fólk er einfaldlega búið að fá nóg af öllu ruglinu í Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Vigdísi Hauksdóttur.

Miðflokkurinn fékk núna engan þingmann í Reykjavík en meirihlutaflokkarnir í borginni, Samfylkingin, Vinstri grænir, Viðreisn og Píratar, fengu um 60% þingmanna Reykjavíkur, 13 af 22. cool

Þorsteinn Briem, 9.10.2021 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 360
  • Sl. viku: 2147
  • Frá upphafi: 1451883

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 1754
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband