Að bíta í maríuskonsu í hratt líðandi örfríi ...

MyndarskapurinnÉg hef heitið mér því að hrylla mig aldrei framar (miklu minna) yfir sumum mat á fésbókarsíðunni Gamaldags matur. Þótt líði sennilega áratugir (tveir?) þar til ég fer á dvalarheimili vona ég, ef mér auðnast að lifa fram að því, að fá álíka matráð og er á dvalarheimilinu á Eskifirði. Sú sem stjórnar þar er nefnilega farin að skella inn á síðuna myndum af matnum sem hún býður upp á, og þarna eru líka myndir frá kaffitímum. Ég gat ekki stillt mig um að biðja hana um uppskrift að skonsum, og svo þegar vinkona mín kom alla leiðina úr bænum í gær ákvað ég að prófa í fyrsta sinn á ævinni að baka skonsur. Meira að segja hermdi eftir 735-konunni (kunna ekki allir póstnúmer?) með áleggið og átti því áleggsbréf með reyktum laxi (sem ég á eiginlega aldrei), egg og snilldarost í ísskápnum. Skyldi þetta vera svipuð uppskrift og að ensku hefðarskonsunum? Nice cup of tea og skonsa? En fyrir þá forvitnu, auðvitað beit ég í fyrstu skonsuna sem ég bakaði, Maríuskonsuna sjálfa. Það tryggir að ég baki þær aftur. 

 

Mynd 1: Tveir af þremur múmínbollum sem ég hef fengið í afmælisgjöf á undanförnum árum, Iittala-skál sem vinnan gaf í jólagjöf eitt árið, nýleg stytta frá Sólheimum (efst til vinstri), gamlir diskar og girnilegt meðlæti með súpergóðu kaffi. Takið eftir að osturinn (eða utan um hann-dæmið) er í stíl við sófann. Sjaldséð smekklegheit á íslenskum heimilum. Lillablái múmínbollinn vinstra megin var valinn til að ögra.

 

 

GardínugerðVinkona mín íhugar ábyggilega mjög alvarlega, eða það myndi ég gera í hennar sporum, að kaupa sér íbúð á Akranesi svo hún komist oftar í kaffi til mín. Hviðurnar á Kjalarnesi stoppa hetjustrætó stundum af, hví ekki hetjuvini og -vandamenn, svo það er bara best að flytja hingað.

 

Og fólkið á Gamaldags matur má borða sína selshreifa í hádeginu fyrir mér, og hræringinn sinn súra á morgnana, reykta ýsu, spagettí soðið í hálftíma, þverskorna ýsu og saltfisk með hömsum fyrir mér, ég fæ bara sálfræðing í lið með mér til að vinna í eitt skipti fyrir öll í þessum matarminningum sem gerðu æsku mína svo erfiða, sérstaklega þegar maður las Enid Blyton meðfram og fékk á þriðju hverri síðu matseðil þeirra, eins og í útilegum, þegar Anna og Dísa útbjuggu hlaðborð á meðan Jonni, Finnur og Kíkí tókust á við glæpamenn. Ég vissi sjö ára gömul hvað flesk var, nokkru áður en ég lærði orðið beikon. Það voru gífurleg heilabrot í æsku og eiginlega rúmlega það, eða eiginlega alveg fram til sextugs að reyna að úthugsa leið til að hafa einhvern á fullorðinsheimili mínu sem eldaði góðan mat án þess að ég þyrfti að gera eins og Georgína í Fimm-bókunum og þykjast heita Guðröður. Það hefur ekki tekist enn en ég held samt í vonina. Bið mín eftir einhverjum sem kann að gera sítrónufrómas er orðin of löng, ef safakúrsorkan helst lengur er alveg möguleiki að ég prófi bara sjálf, þótt ég sé mjög hrædd við matarlímsblöð.

 

Mynd frá eldhúsgardínugerð minni í fyrra. Ekki bara myndarleg í útliti, heldur einnig í höndunum, eins og mamma orðar það svo snilldarlega. Góð frí geta svo sem líka farið í að hekla, ekki eingöngu samt. Eflaust hægt að hekla lengur á meðan hlustað er á bók. Með stóran þvottabunka nýlega notaði ég aðferð Hildu systur, enn og aftur, og hlustaði á bók sem heitir Elskuleg eiginkona mín, og kláraði bunkann. Eina leiðin, held ég, er frekar löt við að hlusta en hef lesið margar rafbækur á Storytel, það er svo miklu fljótlegra (of stutt líf?). Verð að klára hana fljótlega svo kannski hekla ég tískufatnað úr plötulopa á ættingja mína. Þá er jólagjöfunum reddað. Allt út af því að ég verð að klára hljóðbók ... Finn annað garn fyrir Hildu, hún segist vera með lopaofnæmi ...

 

Við KeliMér gengur ekki alveg nógu vel að lesa, reyndar komin á bls. 108 í Jónínu-bók (sem er enn mjög skemmtileg og verður það eflaust áfram). Húsverk (í alvöru) hafa svolítið tafið mig frá því að klára verkefnið þannig að ég óttast að allt í einu verði litla fríið mitt búið og ég bara upptekin við eitthvað allt annað en kaffidrykkju og bókalestur! Það væri nú sóun á góðu fríi.

 

Mynd: Þarna erum við Keli á sólríkum haustdegi. Ég hef sennilega verið búin með safakúrinn og varla nema skugginn af sjálfri mér.

 

Í fyrrakvöld var sýnd fróðleg heimildamynd um iðnaðinn sem hefur skapast í kringum þá sem eru á móti bólusetningum - þetta virðist vera arðbær iðnaður t.d. í Bandaríkjunum fyrir þá sem selja „lækningu“ við covid (D-vítamín, klórblöndu en klórkarlinn var handtekinn fyrir rest) og aðferðirnar sem notaðar eru til að láta fólk halda að það hafi sjálft uppgötvað sannleika sem reynt hefur verið að þagga niður af yfirvöldum ... Læknirinn sem falsaði niðurstöður rannsóknar sinnar um að bólusetningar gætu orsakað einhverfu, er orðinn að hálfgerðri Hollywood-stjörnu, eftir að hafa hrökklast ærurúinn og læknisleyfislaus frá Bretlandi og æsir nú til ótta westra. Hann segist ekki endilega vera á móti bólusetningum, bara að hafa ekki í sömu sprautunni bóluefni gegn þremur barnasjúkdómum, það sé of sterkt, einn í einu væri nóg. Sjálfur var hann búinn að fá einkaleyfi í Bretlandi fyrir einföldum mislingaskömmtum og ef allt hefði gengið upp, hefði hann orðið vel efnaður. Það er greinilega engu að treysta í þessum heimi. Og algjör þöggun um þetta í íslenskum fjölmiðlum ...

Myndin var sem sagt sýnd á Stöð 2 sunnudagskvöld en ég man ekki hvað hún heitir, kann ekki nógu vel að leita ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 421
  • Frá upphafi: 1445648

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 367
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband