Mæðgur á Tinder og illþolandi covid-afsakanir

latteFínasta bæjarferð í gær - strætó seinkaði ögn í föstudagsumferðinni (15.15-strætó frá Akranesi) en ég sá að við myndum samt ná í Kaffitár á Nýbýlavegi, langaði svo í góðan latte og Hilda býr skammt hjá. En nei - enn eitt kaffihúsið sem lokar á gesti sína klukkan fjögur!

Það lækkar vissulega launakostnað að loka svona snemma en þetta hlýtur samt að svekkja viðskiptavini. Ég varð alla vega drullufúl að koma að lokuðum dyrum og finnst leitt að geta ekki keypt hjá þeim latte lengur. Við byrjuðum alltaf þarna við komuna í bæinn, við Hilda latte, stráksi kakó. Af hverju er verið að skerða þjónustu um allt og jafnvel kenna Covid um, sem ég hef heyrt að sé víða gert, nú þegar allt er að opnast aftur? Þetta er glatað og ekki bara fyrir viðskiptavinina. Einu sinni kepptust allir við að bjóða sem besta þjónustu, margar matvörubúðir fóru t.d. að vera með opið til átta á kvöldin, aðrar alla nóttina - sem þekktist ekki lengst af. Það hefur orðið mikið bakslag víða og áberandi á kaffihúsum og bakaríum. Við erum auðvitað vön því frá hinu opinbera að opið sé hálftvö til 13.30 en ekki einkafyrirtækjum. 

VIÐBÓT: Maður ætti kannski ekki að skrifa svona pirring á meðan gremjan er enn í gangi. Það hljóta að vera einhverjar góðar ástæður fyrir því að kaffihúsum sé lokað fyrr en áður, hvort sem það er komið til að vera eða bara tímabundið. Ég veit um einn stað þar sem of fáir kúnnar komu á tímabilinu kl. 16-18 til að það borgaði sig að hafa opið. Vissulega svekkjandi fyrir okkur sem komumst ekki fyrir fjögur en enginn heimsendir. 

 

maxresdefaultÉg gisti nótt hjá Hildu og það var mikið að gera í dag. Ekki bara Costco-ferð, heldur líka í Elko ... sjö hlutir keyptir í þeirri fyrrnefndu, ef mandarínupoki er talinn sem einn, og svo var keyptur einn hlutur í Elko, allt nánast fyrirfram ákveðið sem er það eina rétta til að halda lífsviljanum og svo fórum við í dýrabúð í Smáratorgi, eina skemmtilegustu búð landsins þar sem hundar eru velkomnir og ég náði að klappa þremur, þar af einum sjeffer ... ég elska sjeffer sérlega mikið. Við heimsóttum mömmu sem var niðursokkin í Indiana Jones-mynd í setustofunni og mátti varla vera að því að heilsa okkur. Hún leit rosalega vel út og er virkilega ánægð á Eir. Það eina sem vantaði, fannst mér, voru sætir karlar að sniglast í kringum hana. Henni hefur aldrei þótt það leiðinlegt þótt hún kvarti ekki núna. 

„Ef þú vilt að ég skrái þig á Tinder, mamma mín, get ég gert það,“ laug ég, kann það ekki og yrði að fá einhvern til að aðstoða mig við það.

„Úff,“ sagði mamma og hristi hausinn eftir að hafa flissað til að byrja með, „mig langar ekki í karl.“ Samt var hún bara tvígift - ekki einu sinni hálfdrættingur á við pabba sem átti svo margar konur að einu sinni lágu þrjár þeirra á sama tíma á Landakoti, eftir hans dag, reyndar. Einu sinni lágu bæði pabbi og mamma á Landakoti á sama tíma, hvort á sinni hæðinni reyndar. Ég man að ég spurði manninn sem var að skrifa lögfræðingatal eitt árið hvort mætti ekki sleppa einni eiginkonunni, pabbi var bara giftur henni í 51 viku, það tók því varla að telja hana með, fannst mér, en samviskusami sagnfræðingurinn mátti ekki heyra á það minnst. 

Tinder„En af hverju ert þú ekki á Tinder, Gurrí?“ spurði mamma, einnig þekkt fyrir að snúa vörn í sókn, þegar Harrison Ford hafði tekið skref út í tómið og lent á ósýnilegri brú sem birtist allt í einu. 

„Æ, mamma, þú manst nú hvernig einkamál.is fór með æsku mína og sakleysi,“ sagði ég og fögur augu mín (græn í veiðihug) dökknuðu af myrkum minningunum. 

„Ahh, ungu Kanarnir á vellinum sem vildu hitta eldri konu nokkrir saman ... varstu ekki bara 37 ára á þeim tíma?“

„Úff, jú, skilurðu núna af hverju ég er hrædd við Tinder, svo er það miklu flóknara, það á að ýta sumum til hægri og öðrum til vinstri ...? Ég myndi pottþétt ruglast. Loka á stórhuggulega og ljúfa auðjöfra með húmor og læka óvart gaura sem eru það alls ekki ...“

„Ha,“ hváði mamma, nú var Indí búinn að koma sér í hroðaleg vandræði enn og aftur og brún augu hennar glitruðu af samhug með honum. Elsta og yngsta barnið með brún augu, við miðsysturnar með gráblágrænleit, gul er við göldrum. Hún veifaði okkur bless og éghringi bara í hana til að klára þetta spennandi samtal. Maður truflar ekki fólk frá Indiana Jones. Mér finnst líklegt að við endum á Tinder, mæðgurnar ... það myndi gera símtöl okkar svo miklu meira djúsí. Hvernig var karlinn sem þú hittir? En þinn? Í alvöru, uss, mamma, ekki tala svona ... nei, þessu lýgur þú ... og svo framvegis.

Við hittum Þoku kisufrænku sem er næstum farin að hoppa og skoppa um allt eftir fótbrotið og snæddum pönnsur og fengum geggjað kaffi hjá Ellen og Ella, sem eru auðmjúkir þrælar Þoku. Við glöddumst öll yfir 5-0 sigri Liverpool en aðalsvekkelsið hjá mér var að vér Skagamenn skyldum tapa okkar leik ... en einhver skaut nú upp flugeldum samt fyrr í kvöld hér við íþróttavöllinn, kisum hér á bæ til mikils spennings. 

 

Stráksi fékk KFC í kvöldmat, eins og venjulega þegar hann fer í bæinn - ef KFC kæmi á Skagann (hei, við erum að verða 8.000, og það vantar líka dýralækni) finnst mér sennilegt að hann myndi verja megninu af vasapeningunum sínum í mat þaðan. Og sækja um vinnu þar með skóla.

 

Kláraði bókina hennar Jónínu Leósdóttur sl. nótt í sveitasælunni hjá Hildu. Bókin svo skemmtileg að það var ekkert erfitt að halda sér vakandi yfir henni og ekki séns annað en að klára hana, þó fyrr hefði verið. Stórskemmtilegar aðalpersónur sem vonandi halda áfram um ókomin ár að leysa saman lögreglumál, fyrrum hjón, hún lögga, hann sálfræðingur. Æðisleg bók. Takk fyrir mig.

 

Nú er svo bara að bíða og vona að viðri til strætóferðar á morgun, sunnudag, þegar bæjarferð 2 þessa helgina verður farin í rokinu sem búið er að spá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á Tinder gætir þú til dæmis tekið þetta fram, Gurrí: cool

"Er umhverfisvæn og góð í mörlenskri stafsetningu."

Margir klikka áreiðanlega á að taka þetta fram, því sómakært fólk myndi aldrei leggjast svo lágt að sofa hjá þeim sem eru slæmir í stafsetningu en þeir geta auðvitað glennt sig á OnlyFans við góðan orðstír. cool

Þorsteinn Briem, 17.10.2021 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 190
  • Frá upphafi: 1445655

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 176
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband