Safaríkar samsæriskenningar og ein heimatilbúin

CovidSafaríkar samsæriskenningar hafa grasserað áratugum, jafnvel öldum saman. Og margar nokkuð skemmtilegar. Nýlega las ég grein um að uppáhaldssnakk Karlottu prinsessu, dóttur Vilhjálms og Katrínar, langömmubarns Elísabetar ... væri ólífur. Eftir að hafa lesið ögn um samsæri og spillingu fannst mér líklegt að fyrirtæki sem selur ólífur hafi greitt ungu hjónunum fúlgur fjár fyrir að koma þessari sögu af stað, hvað selur betur en lítil og sæt prinsessa sem elskar ólífur. Nú verða börn um allan heim brjáluð um ólífur og allir græða. Ég var komin yfir fertugt þegar ég fékkst til að smakka ólífur. Sko! En þetta er tilbúningur minn þótt hver  maður sjái að þetta er rosalega líklegt.

 

Hér koma svo nokkrar almenningar kenningar:

- Lyndon B. Johnson, þá varaforseti Bandaríkjanna, skipulagði morðið á John F. Kennedy árið 1963. Hann reyndi síðar að kenna Kúbverjum um.

 

- CIA skipulagði hryðjuverkin þann 11. sept. 2001 - ég man ekki alveg hvernig en veit svo sem af eigin reynslu að hægt er að falsa ansi hreint margt með speglum.

 

Samsæris- Jón Gunnarsson fékk sitt ráðuneyti til að tryggja honum hærri eftirlaun. Einmitt, sjúr ... ég trúi því miklu frekar að honum hafi verið falið að passa upp á að landið okkar hreina og fagra fyllist ekki af fólki sem minnir á Jósep og Maríu. Samúðarfullur trésmiður hefði t.d. ekki ráðið við verkið. Jón er nagli, bæði málmiðnaðarmaður og viðskiptafræðingur.

 

- Tilgangurinn með forsetatíð Donalds Trump var að frelsa mannkynið úr viðjum spilltra embættismanna og eina ástæðan fyrir því að hann var ekki endurkjörinn var víðtækt kosningasvindl. Um 17% Bandaríkjamanna trúa því að heiminum sé stýrt af djöfladýrkandi barnaníðingum úr Demókrataflokknum.

 

- Jörðin er flöt. Maður sem vildi ekki koma fram undir nafni (hjá BBC) sagði að það væri áberandi hvað tæknirisar og samfélagsmiðlar leggi mikla áherslu á að fela þessar upplýsingar. „Við erum bara þrælar og við lifum á mjög dimmum tímum“ segir hann meðal annars. „Þú vilt halda þrælnum þínum eins heimskum og hægt er ... sniðugt að ljúga að honum svona grundvallaratriði eins og að hann búi á einhverri kúlu þar sem ef hann reyndi að fara í burtu, þá komi hann bara aftur á sama stað. Þannig er okkur haldið í fangelsi og sagt að það sé engin útgönguleið.“ Veit ekki með ykkur en þetta er sannfærandi.

 

Tunglgangan- Bandaríkjamenn sendu ekki geimfar (Appollo 11.) til tunglsins árið 1969, þetta var fölsun og myndirnar af meintri geimgöngu voru teknar á Íslandi. Einnig möguleg blekking til að láta fólk halda að tunglið sé líka hnöttótt. Þetta er svo áberandi þegar maður veit þetta.

 

- Kínverjar bjuggu til kórónuveiruna og slepptu henni lausri til að klekkja á Bandaríkjamönnum. Og 5G-kerfið njósnar um okkur. Því seinna verð ég að mótmæla, ég er viss um að áætlanir Bill Gates um að lauma njósnatæki inn í heila okkar með bólusetningum í handlegg, nægi alveg til njósna, svo 5G er í lagi. En hvað veit ég svo sem?

 

Sálfræðingar vilja meina að samsæriskenningar þrífist sérstaklega á erfiðum tímum og séu framkallaðar af ótta og kvíða. En hvað vita sálfræðingar svo sem? 

 

P.s. VARÚÐ, BOLD: Ég hef ekki séð boldið í marga mánuði en sá hluta af því áðan. Sýnist á öllu að Ridge sé að undirbúa enn einn skilnaðinn við Brooke! Tengist Tómasi syni hans sem gæti hafa sýnt Hope (dóttur Brooke) of mikinn áhuga. Hugsa að ég nenni ekki fara aftur fyrr en Hope uppgötvar að hún sé líffræðileg móðir barnsins sem Steffí Ridgedóttir elur nú upp sem ættleitt barn sitt en Hope var talin trú um að barnið hefði dáið. Hversu lengi er hægt að teygja lopann?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"- CIA skipulagði hryðjuverkin þann 11. sept. 2001 - ég man ekki alveg hvernig en veit svo sem af eigin reynslu að hægt er að falsa ansi hreint margt með speglum."



"CIA Agent Confesses On Deathbed: We Blew Up WTC7 On 9/11"



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.11.2021 kl. 20:02

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Getur það verið að Þorsteinn Sch Thorsteinsson sé útilokaður frá bloggi mbl.is ?

Afhverju skyldi það nú vera?

Jónatan Karlsson, 29.11.2021 kl. 22:05

3 identicon

Sæll Jónatan,

Já, ég er útilokaður og fæ ekki að vera með blogg á mbl.is. 

Þessir ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar eru á því, að menn séu hættulegir ef þeir upplýsa eitthvað sem er andstætt þeirra skoðunum.
Því að fólk á að kaupa allar opinberar samsæriskenningar, svo og um hina 19 ákærðu hryðjuverkamenn, nú og það án þess að spyrja. Nú og allt sem heitir t.d. false flag, Moles og Patsies er auk þess eitthvað sem þeir vilja alls ekki heyra minnst á.
KV.  






Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.11.2021 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 34
  • Sl. sólarhring: 367
  • Sl. viku: 2173
  • Frá upphafi: 1451909

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 1775
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband