Matur, H-karlar og véfrétt tekin í sátt

Réttur 2Lagði inn aðra pöntun í dag hjá Eldum rétt og reyndi að velja auðvelda rétti fyrir næstu viku. Ég var mjög þreytt í gær eftir klikkaða eldamennskuna, nánast með þrjá bolta á lofti í einu. Ég lagði mig og dormaði í fjóra tíma eftir himneskan matinn (stráksi sleikti diskinn sinn, mér tókst naumlega að stilla mig um það) og réðst svo á uppvask og tiltekt í kringum miðnætti. Meiri óreglan. Flaskaði á því að telja óhreina potta, pönnur, diska og skálar sem þurfti að nota, en uppþvottavélin þvoði allt, þetta umstang var þess virði. Lærdómsríkt. Nú framvegis sker ég allt grænmeti í skálar (uppþvottavél, munið) og hef sem mest alveg tilbúið áður en ég hefst handa við nokkuð nema hita ofninn. Ég er mjög góð í slíku. Grænmetið var helst til of mikið (ofn)steikt en kjúklingabringurnar fullkomnar þrátt fyrir að eiga ekki kjöthitamæli, sósan leið svo fyrir að ég á ekki töfrasprota en var ábyggilega ekki verri fyrir það.

 

Náinn ættingi er kominn með covid - svo ættin mín er ekki með þessi góðu gen eða hvað þetta var þarna sem frændi benti mér á, nema viðkomandi fari mjög vel út úr veikindunum sem vonandi verður. Veiruskrattinn fer greinilega í manngreinarálit. Hjón sem ég þekki vel vörðu jólum og áramótum með afkomendum sínum sem þá voru komnir (hluti þeirra) með covid án þess að vita það - en gamla settið sat í sóttkví, eins og vaninn er, en slapp algjörlega við smit. Þau halda að þau séu of evil til að veiran leggi í þau en þau eru það sko ekki.

 

Véfrétt um fyrsta staf hMaður sem vann einu sinni með mér í fiski  úti í Eyjum skrifaði á Facebook-síðu sína í dag: Boris Johnson er nú í meiriháttar klípu vegna þess að hann varð uppvís að því að hafa verið í starfsmannaboði í Downingstræti 10 fyrir jólin 2020. Og brotið sóttvarnarreglur sem hann hafði áður sett. Um svipað leyti var formaður Sjálfstæðisflokksins í gleðskap í Ásmundarsal og braut þannig sóttvarnarreglur sem hann hafði sjálfur sett. Þau einu sem lentu í meiriháttar klípu vegna þess voru lögreglumennirnir sem sögðu frá því.

 

Athugasemd: „Þeir kunna þetta ekki í Bretlandi. Að láta rannsókn leiða í ljós að um sölusýningu hafi verið að ræða.“

 

Mér finnst þetta fyndið, ekki meiðandi þótt eflaust einhverjir séu ekki á sama máli. Stjórnmálamenn verða að geta þolað stríðni. Já, og t.d. Inga Sæland verður að geta þolað að útvarpsmenn séu ekki á sama máli og hún, hún sýndi Bylgjumönnum dónaskap nýlega, að mínu mati. Fjölmiðlafólk þarf að spyrja krefjandi spurninga, þótt það sé jafnvel alveg sammála skoðunum viðmælanda. Hún kallaði þá meðal annars treggáfaða. Eflaust hressandi að fá svona fólk í viðtal en kurteisin er mikilvæg. 

 

- - - - - -  

 

Véfréttin um svefnherbergi f hobbitaÉg veit að ég varaði bloggvini mína við véfréttinni eftir að hún vildi meina að eiginkona mín (?) væri verndarengill minn. Ég elska konur en ekki þannig samt.

Þó gat ég ekki stillt mig um að leita á náðir hennar aftur þegar bauðst að fá að vita eitthvað um næsta ástmann. Já, ég lifi spennandi lífi. Eins og sést á myndinni sem er eins og af hjartalínuriti hér fyrir ofan eru það H-karlar sem koma aðeins til greina, og ég er með vel yfir 60 Facebook-vini sem heita H-eitthvað, t.d. alveg 7 sem heita Hilmar. Mér finnst ekki trúverðugt ef karlar í kringum mig fara í flokkum að skipta um nafn, en samt þætti mér vænt um slíkt. Áskil mér rétt til að taka öllum eða hafna öllum, eins og venjulega í svona kringumstæðum.

 

Sumir H-karlarnir eru vissulega of ungir, aðrir of gamlir, einhverjir giftir, aðrir hommar en ég hlýt að finna eitthvað bitastætt. Leyfi ykkur að fylgjast með. Nú hefur lífið öðlast tilgang að nýju. Ég hefði sennilega ekki átt að leyfa véfréttinni að sýna mér í leiðinni hvernig svefnherbergi ég ætti að eiga - alveg ótengt hinni spurningunni, í alvöru. Hún sýndi mér einhvern hroðbjóð, neðanjarðar, sýnist mér, og eins og fyrir hobbita, með tifandi geitungabú (í gróðrinum) nánast sem náttborð. Og ekki einu sinni sætur Hallgrímur (eða annað H-nafn) í augsýn (á myndinni). En allir geta gert mistök, vonandi líka véfréttir. Mér finnst svindl að nýta mér möguleikann Reyndu aftur sem hún býður manni, á endanum hefði ég eflaust fengið flott herbergi - en líka fengið annan bókstaf, H er fínt, til að byrja með.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 411
  • Frá upphafi: 1445638

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 358
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband