Aðdáandinn á hlaðinu og rjómaterturaunir

RjómóHilda systir vildi auðvitað gamaldags rjómatertu fyrir sig og fylginautana. Sem var talsvert flóknari framkvæmd en Betty Cr-súkkulaðikaka - það þurfti að rifja upp annars einfalda glasatertuuppskrift, ákveða tegund af Royal-búðingi og athuga hvort ég ætti ekki rjómasprautu. Og jú, meira að segja blandaðir ávextir í dós leyndust í skápnum - og ekki útrunnir. En engir súkkulaðispænir sem hefði verið alveg fullkomið. Ég valdi sítrónubúðing og notaði meiri rjóma en mjólk við tilbúning hans sem gerði hann sannarlega ekki verri. Gestirnir skruppu í gönguferð hjá Langasandi og komu svo til baka nánast örmagna af umhverfishrifningu og glorhungraðir. Tertan kláraðist næstum því. Golíat og Herkúles, frændhundar mínir, voru með í för og slógu í gegn hjá kisunum, eins og venjulega, við elskum hunda. Gestirnir höfðu á orði að ég liti mjög vel út. Mjög - en ég var svo spennt að vita  hvernig þeim þætti rjómatertan að ég gleymdi að segja þeim frá spennandi ástæðu fegurðarinnar. Sjá ögn neðar í blogginu. 

 

Við fimmmenningarnir knáu áttum pantað borð á Galito og fórum þangað í gómsætan mat en svo átti Hilda eftir að kaupa inn og þar sem Krónan er á móti Galito notaði hún tækifærið, snjallt þegar bensínlítrinn hækkar nánast um 100 kall á viku, ef marka má orð Facebook-vina minna sem hafa ekki enn lagt bílum sínum eða gefið hann. Ég hafði heitið mér því að fara með grímu næst og í dag var komið að því. Fyrir nákvæmlega viku var ég eina grímulausa manneskjan þar inni og fólk starði á mig. Alveg var það dæmigert að ég skyldi svo vera eina manneskjan með grímu í búðinni í dag og fólk starði á mig. Ég afsakaði mig við manninn á kassanum (ég þarf að læra sitt af hverju mikilvægara áður en ég læri á sjálfsafgreiðslukassa), sagði grímuna fela hrukkur snilldarlega og að ég lenti mun oftar næstum á séns með grímu. Ég bætti svo við að ég væri eina manneskjan á Akranesi sem ekki hefði fengið covid svo gríman væri sennilega óþörf en þá tjáði hann mér að hann væri hinn Skagamaðurinn - og mætti sko alls ekki smitast því hann væri að fara til útlanda eftir nokkra daga.

 

Aðdáandi

Einhver bíll sem stóð hérna á hlaðinu í dag vakti athygli okkar Kela pokakattar von Kattholt, okkur datt helst í hug að þetta væri aðdáandi sem langaði kannski að sjá mér bregða fyrir við gluggann - það var eiginlega eini möguleikinn fyrst hann sneri ekki að sjónum. Ég stóð kæruleysislega upp eftir þessa uppgötvun og færði mig frá glugganum, hljóp hratt inn á bað og setti á mig meik og maskara en fann ekki varalitinn. Beit mig til blóðs í neðri vörina, það virkar vel úr fjarlægð. Mér tókst líka örsnöggt að skipta um föt með því að þykjast beygja mig niður, eins og ég hefði misst eitthvað á gólfið. Svo kom ég gangandi rólyndislega með uppáhaldsmúmínbollann í annarri þegar ég var komin í sjónmál og settist í stólinn, bein í baki sem gerir mann alltaf flottari. Og með hjartslátt af spenningi.

Stráksi kom inn í herbergi örskömmu seinna, nýkominn úr sundi og gufu, hér hinum megin við íþróttavöllinn. Hress og kátur - með arnarsjón. „Sérðu hvíta bílinn þarna úti sem snýr að okkur? Fyrir ofan hausinn á Kela? Hvernig lítur maðurinn út, þessi í bílstjórasætinu?“ spurði ég spennt. Það væri ekkert verra ef hann væri sætur en mér er samt orðið meira sama um útlit eftir að ég varð sextug, feykinóg að þeir andi og geti keyrt bíl. 

„Ha? Það er enginn þarna inni.“ sagði drengurinn eftir að hafa litið á bílinn. Hrósaði mér síðan fyrir hvað ég væri fín. Ég veit ekki hvort ég trúi stráksa með þetta fyrrnefnda. Eru ekki til sérstakar framrúður sem sést ekki í gegnum? Sem gerir þennan gaur (karl) svo miklu meira spennandi. Sjáum til. Leyfi ykkur að fylgjast með. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mörg er kvenna rjómaraun,
rassinn vill þar fitna,
í sprungur setja sparsl á laun,
og sprund í lærum hitna.

Þorsteinn Briem, 13.3.2022 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 277
  • Sl. viku: 1971
  • Frá upphafi: 1452171

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1585
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband