Staðfesting á góðri greind og loftsteinn á leiðinni

MensaInternetið gefur og gefur. Gleður og gleður. Í morgun rakst ég á góða grein, Átta vísbendingar um að þú sért greindari en gengur og gerist, en lestur hennar varð til þess að mér er skapi næst að sækja um inngöngu í Mensa. Þessi grein er ekki alveg fullkomin en gefur þó góða mynd.

1. Þú reykir ekki. Ég hef ekki reykt síðan í apríl 2020. 

2. Þú dýrkar ketti. Ójá, hunda líka.

3. Þú ert hávaxin. Heldur betur. Ég er 1.71 að hæð sem þykir stórt og stæðilegt í mörgum löndum.

4. Þú ert elsta systkinið. Hér fannst mér rannsóknin aðeins falla. Hver getur gert að því þótt hann fæðist til dæmis nr. 2 í röðinni? Svo er ég líka hærri en Mía systir.

5. Þú ert örvhent. Annað sem dregur úr trúverðugleika þessarar annars góðu greinar en eftir að hafa æft mig með vinstri í allan dag hef ég uppgötvað að ég hafi fæðst örvhent en verið neydd til að nota hægri. Það tíðkaðist í denn.

6. Þú hefur lært á hljóðfæri. Ójá, ekki bara eitt og ekki bara tvö, heldur á píanó, trompet og althorn, held það nú. 

7. Þú ert grönn. Enn og aftur slæm vinnubrögð hér. Það hefur gleymst að segja grönn miðað við eitthvað. Og miðað við Keikó er ég til dæmis rosalega grönn. 

8. Þú hefur prófað vímuefni. Einn og einn ólöglegur smókur á yngri árum telst kannski með en eitt sinn þegar ég keypti mánaðarskammt af Herbalife (vann með harðri sölukonu) voru vinsælar Herba-pillurnar green og beis sem voru svo bannaðar af því að ígildi amfetamíns fannst í þeim ... og ég hætti að strauja þvottapoka.

 

Flóðbylgjur 2880Sjálfur Páll Óskar á afmæli í dag. Þótt ég sé nánast hætt að skrifa fyrir Vikuna tek ég þó eitt og eitt verkefni ef ég er beðin fallega, eins og stöku viðtal í kökublaðið og að finna stundum afmælisbörn vikunnar, og láta fylgja fróðleik með. Þegar ég leitaði að einhverju sem tengdist afmælisdegi Palla rakst ég á ógnvekjandi staðreynd sem getur komið 878 ára afmæli hans í uppnám. Það er hugsanlegt, eða einn á móti þrjú hundruð, að loftsteinninn 1950DA rekist á jörðina þann 16. mars árið 2880. Afkomendur ykkar verða orðnir talsvert fjarskyldir ykkur á þeim tíma.

 

MYND: Flóðbylgjuviðvaranir vegna þessa atburðar fundust við gúgl.

 

Talandi um afkomendur. Nýjasti frændinn í ættinni fékk nafn fyrir skömmu. Foreldrar hans gjörsamlega klikkuðu á því að skella millinafni á drenginn, t.d. Óli. Þá mynduðu upphafsstafir hans orðið BÓK sem hefði getað haft áhrif á val hans á ævistarfi. Bókmenntafræðingur, bókavörður eða bara bókaormur.

 

ÆfingÉg sótti mér kaffibolla nr. 2 um eittleytið, rólegt að gera akkúrat þá og hafði verið að hlusta á útvarpið í gegnum sjónvarpið ... en allt í einu hófst sjónvarpsleikfimi sem ég hef heyrt um að sé sniðug og alltaf ætlað að prófa. Þetta byrjaði í kóvidinu, held ég. Ég færði skrifborðsstólinn ögn til vinstri og fylgdist spennt með. „Við ætlum að vera með sitjandi æfingar,“ sagði konan og mér létti, gat þá haft augun á tölvuskjánum á meðan og hætt að þjálfa ef verkefni birtist.

Ég „hljóp“ á meðan ég sat á stólnum og rétti svo handleggina út vítt og breitt fyrir ofan mig. Ég var orðin útkeyrð þegar ég áttaði mig á því að þetta hafði bara verið upphitunin ... en hefði samt haldið áfram ef ég hefði ekki tekið eftir köttunum. Þeir voru lamaðir af skelfingu yfir þessum látum, ekki bara í ískrandi stólnum, heldur stappi mínu með fótunum og ógnandi handahreyfingar í næstum heila mínútu. Mér fannst ég ekki geta gert þeim þetta lengur. Ég stóð upp en hrundi niður í gólf, gat með herkjum skriðið fram á bað og híft mig upp við vaskinn á viljastyrknum einum saman. Sá vart út um augun fyrir blóðiblönduðum tárum. Mér tókst fyrir kraftaverk að skrúfa frá kalda vatninu og svala þorstanum. Af hverju eru vatnið ekki saltbætt? Held að dýrmæt sölt hafi svitnað úr líkama mínum eftir erfiðið í stólnum en ég er aðeins að ná mér. Blogga þetta frá baðgólfinu en næ mér senn. Hélt að það væri ekki alveg svona langt síðan ég fór síðast í ræktina. En ég ætla nú samt að reyna aftur á morgun, þá tilbúin með þetta beisik dót; vatn, álpoka, transistor-útvarp, áttavita, landakort.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á Moggabloggi margt í reynd,
mikið þarf að laga,
en ansi hefur góða greind,
Gurrí uppá Skaga.

Þorsteinn Briem, 16.3.2022 kl. 23:03

2 identicon

Það má áreiðanlega teljast nokkuð greindarlegt ef já-in eru 5/8, það eru þó 62,5% af greind!

Guðrún Eggertsdóttir (IP-tala skráð) 17.3.2022 kl. 14:01

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðrún! Ertu sem sagt að segja að ég sé rétthent, næstelst og feit? Sem sagt ferlega heimsk?!? Takk kærlega! 

Guðríður Haraldsdóttir, 17.3.2022 kl. 14:58

4 identicon

Hefurðu ekki lært á hljóðfæri, reykir ekki og dýrkar ketti?

Ég vísa í lokalínur kvæðisins hér fyrir ofan.

Skv. könnuninni er það ég sem hef rúmlega 60% greind og er nokkuð sátt. Er það ekki yfir meðallagi annars?

Guðrún (IP-tala skráð) 17.3.2022 kl. 15:31

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ókei, ókei, ókei!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.3.2022 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 161
  • Sl. sólarhring: 315
  • Sl. viku: 2336
  • Frá upphafi: 1450875

Annað

  • Innlit í dag: 139
  • Innlit sl. viku: 1821
  • Gestir í dag: 138
  • IP-tölur í dag: 138

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Rauð útidyrahurð
  • Mosi og skugginn
  • Eldum rétt í kvöld

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband