Að sjá í gegnum BB ...

AndstyggðÉg hef iðulega getað séð í gegnum hlutina, samsæri, blekkingar og annað slíkt. Góð greind úr bæði móður- og föðurætt hefur fleytt mér langt, nema kannski vinnulega séð ef ég tek dæmi um auglýsingastofur sem hafa ekki, fáránlegt nokk, þúsund sinnum boðið mér starf, ekki að mig vanti vinnu samt. Ég þarf að hrópa góðu ráðin mín héðan frá blogginu til þeirra um t.d. í hvora áttina strætó eigi að aka til að auglýsingin verði trúverðug.

 

Og núna veit ég til dæmis með nánast nokkurri vissu hvernig BB (ekki Birgitta Bardot) ætlar að eyða hallanum ógurlega eftir covid. Það er strax byrjað og þá er ég ekki bara að tala um Veðurstofu Íslands ... flottustu stofnun landsins.

 

Helmingi minna er galdurinn. Nú er ljóst að okkur dugar nánast allt í helmingi minna magni sem er auðvitað rétt þegar kemur að t.d. matarvenjum sumra, fasteignakaupum einhverra og svo framvegis. Mætti sjálf alveg minnka sykurmagnið um helming um komandi páska en æ, æ, ég er því miður búin að kaupa páskaeggið mitt og tek ekki matarsóun í mál.

 

Sjúkratryggingar riðu á vaðið. Þess vegna áttaði ég mig. Nú er sem sagt talið feykinóg að vera með hálfa heyrn og líka meira en nóg að láta laga bara helminginn ef maður fæðist með skarð í vör. Ég varð ótrúlega reið og sár fyrir hönd fólks sem lenti í þessu þar til ég sá snilldina. Sé fyrir mér uppskurði framtíðarinnar þar sem skurðlæknar láta sjúklinginn um t.d. saumaskapinn. Held að best sé að fagfólk sjái um sjálfan uppskurðinn, og þó. YouTube lumar á öllum fjáranum. Og til er í Do it yourself-bókaflokknum; DIY í læknisfræði. Sennilega eru þar undirflokkar: lyflækningar, skurðlækningar ... og undirflokkar svo þar líka. Eitthvað sem væri snjallt að kynna sér. Allt er á netinu.

 

Ja, læknirinn myndi auðvitað sauma ef fólk gæti reitt fram réttu upphæðina, segjum milljón, og fram að þessu höfum við Íslendingar sýnt að við GETUM sko borgað. Allt verðtryggt nema laun, sæmilega góð álagning á vörur, minnir meira að segja að eigendur lágvöruverslunar hafi átt einkaþotu í denn. Og við vitum öll að það er ekkert varið í vöruna nema hún sé dýr, hún hreinlega selst ekki nema dýr, segja kaupmenn með langa reynslu. Þannig sýnum við líka hversu rík og flott við erum. Og þetta hugarfar má alveg færa inn á skurðstofu. Gaman líka að geta sýnt örið eftir uppskurðinn, því flottara og betur saumað, þeim mun ríkari og flottari er maður. 

 

Ég bíð spennt eftir því hvernig Veðurstofan tæklar sparnaðarkröfur BB (ekki Bjarnabófar) með helmingi minna-aðferðinni. Ég legg til að Veðurstofan einbeiti sér að veðrinu, láti sem jarðskjálftar og eldgos komi henni ekki við, enda ekki veður. Mjög fljótlega verða svo stofnuð góðgerðasamtök sem almenningur heldur uppi með fjárframlögum til að sjá um upplýsingagjöf og viðvaranir vegna jarðskjálfta og eldgosa (annars finnur maður jarðskjálfta og ég er vön eftir síðasta ár að geta sirkað nokkuð rétt á stærð þeirra, og maður sér eldgos eða öskuna í gluggakistinni alla vega). Það er alveg þekkt hérlendis og í raun mjög algengt að slík samtök haldi uppi starfi sem ríkið ætti að sjá um og það hefur gengið glimrandi vel í áratugi.

 

Hálfar veðurfréttir væri svo hægt að útfæra virkilega skemmtilega, eins og að taka bara hálft landið fyrir í einu, það væri í alvöru mjög spennandi yfir vetrartímann. T.d. Kjalarnes 30 ... uuu vindstig eða hitatölur? Vá, hvað ég myndi ganga í marga veðurklúbba á Facebook. Kemst drengurinn í skólann í dag? Ætli við komumst í jólamatinn til Hildu? Blóðið myndi renna svo miklu hraðar og er það ekki bara gott fyrir heilsuna?

 

HahahahahaSjúkraþjálfarinn: Hvort viltu að ég taki fyrir hægri eða vinstri hliðina á þér?

Ræktin: Fyrir ofan mitti eða neðan í dag? 

Sýslumaður: Hvort viltu giftast efri hluta mannsins eða neðri?

Royal-búðingur: Settu hálfan 1/4 lítra af mjólk saman við ...

Fasteignasalinn: Ætlar þú að kaupa eldhús- eða baðhluta íbúðarinnar?

Rás 2: Fyrri eða seinni helminginn af óskalaginu?

Útfararstjórinn: Viltu taka gröfina eða grafa yfir?

Íbúfen: Hámarksskammtur 300 mg ...

Tölvan: Hvort viltu sjö tommu skjá eða hálft lyklaborð? Og þá, hægri eða vinstri hlutann?

Ljósmóðirin: Hvorn tvíburann viltu?

 

Svona er hægt að halda endalaust áfram, ég sá einu sinni bíómynd Ryans-eitthvað (1976?)þar sem fólk var tekið af lífi þrítugt, þá var það orðið of gamalt til að gagnast þjóðfélaginu, bara hrörnun fram undan. Myndin fjallar um Ryan sem sættir sig ekki við að deyja þótt í hárri elli sé (29,99 ára) og leggur á flótta. Alveg skelfilega vond bíómynd sem BB okkar allra (ekki Björn Bjarna) hefur vonandi aldrei séð. Mynd nr. 2 tengist Ryans-dæminu óbeint.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

snillingur!

Hallfríður María Pálsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2022 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 43
  • Sl. sólarhring: 288
  • Sl. viku: 2002
  • Frá upphafi: 1452202

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 1614
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband