Bill Gates lét mig gera það

HraðteiknararÞroski minn hefur tekið risastökk upp á við síðustu misserin. Ég áttaði mig á því um helgina þegar fréttamaðurinn í sjónvarpinu sagði: „Við vörum við myndum sem ...“ og ég hélt bara áfram að gera það sem ég var að gera í stað þess að færa mig nær sjónvarpinu til að sjá. Mér þykir ekki lengur mikilvægt að heyra hvern einasta fréttatíma dagsins í útvarpinu og merkilegt nokk, ég hef nokkrum sinnum lifað af að heyra bara það helsta, fremst í fréttatímum. Kannski má tengja þetta hugarró eða þörf fyrir hugarró, ég tengi þetta þroska, gáfum og yndisþokka. Og það að verja helginni (barnlaus) í að vinna og skella inn myndum í Íslendingabók, er það ekki þroski? Gat sett inn mynd af mér og svo pabba (1930-2001) en ekki af mömmu sem heldur upp á 88 ára afmælið eftir nákvæmlega mánuð. Þá áttaði ég mig á því að ætlast er til að sprelllifandi fólk setji sjálft inn myndir af sér. Ég gat því ekki fundið vandræðalegar ljósmyndir af systkinum mínum og sett inn, sem ég hefði reyndar ekki gert en samt fúlt að möguleikinn sé ekki fyrir hendi. Helgin fór líka í að horfa á nýja þáttaröð af The Home Edit, búin að sjá tvo eða þrjá, og byrja að lesa nýjan bókaflokk eftir Vivecu Sten (Helkuldi) á Storytel. Ég viðurkenni vanmátt minn þegar kemur að því að hlusta (ég hef ekki tíma og hef ekki tíma) en Storytel rígheldur í mig vegna sífellt meira úrvals af rafbókum. Það er nákvæmlega ekkert mál að taka af sér gleraugun uppi í rúmi og lesa heilu kaflana í gemsanum sínum. Jamm, engin ellifjarsýni enn.   

 

Stærsta vandamál dagsins og síðustu daga er að dyrasíminn er bilaður alla vega þangað til seinnipartinn á morgun, ekki bjallan sjálf, og ég þarf að þjóta niður stigana til að opna, næstum búin að missa af Eldum rétt-pakkanum í gær. Bara plís, ekki koma í heimsókn! Jú, vandamál eða ekki vandamál, ég át páskaeggið mitt um helgina, nánast alveg óvart, eins og einhver hefði fjarstýrt mér (Bill Gates?). Ég skrökvaði að drengnum í gær að það hefðu komið gestir og ég gefið þeim páskaegg að smakka og ég svo bara klárað, því ég vildi ekki að hann engdist um af samviskubiti yfir því að hafa minnt mig á páskaeggið með því að segja í kveðjuskyni og í gríni á föstudaginn: „Mundu svo að borða ekki páskaeggið þitt.“ Honum létti bara mjög að vita að ég hefði ekki borðað hans egg. Hversu sniðugt að vera snemma í því að kaupa páskaegg. Mér er skapi næst að refsa mér með því að kaupa mér ekki nýtt en ... Bill Gates lét mig gera þetta, tel ég nokkuð víst, enda þríbólusett þar sem ég hugsa ekki sjálfstætt. Tek fram að þetta var ekkert risaegg en sykurinn í því hvatti mig til dáða og vinnuhörku í eigin garð alla helgina. Málshátturinn var Flest verður nýtnum að notum sem segir mér að Bill hafi vitað hvað hann var að gera. 

 

Í dymbilvikunni verð ég með Eldum rétt-mat fyrir fjóra daga. Þarf að finna eitthvað píslarlegt á föstudag (langa), versla inn á laugardag, elda einhvers konar páskamat á sunnudag (Eldum rétt bauð bara upp á lambasteik fyrir sex manns) því það er ekki fyrr en á mánudag sem páskaboðið verður í ár. Sem er kannski ágætt því ég held að strætó gangi ekki þessa heilögu daga (jóladag, nýársdag, páskadag, föstud. langa). Ef það verður fært með strætó í bæinn á annan, förum við stráksi. Ég borga fullt gjald fyrir hann þótt hann eigi rétt á miklum afslætti en flækjustigið fyrir bíllausa er ansi hátt ef þarf að sækja rétt sinn/annarra, svo spurning hvenær ég legg í það. Vítamín-kúr og taka nokkra sumarfrísdaga? Það þarf eitthvað svipað til að finna mér almennilegan skrifborðsstól þar sem slíkar búðir eru ekki með opið um helgar fyrir svona landsbyggðartúttur eins og mig. Ég vil alvörustól, í fyrsta sinn ekki gefins notaðan stól sem ég nota svo í áratugi þar til þeir verða alveg ónýtir.

Ef stoppistöðvum leiðar 57 verður fækkað hér (sem ég sé ekki sparnaðinn við eða tilgang, bara þjónustuþjófnað) skoða ég mjög alvarlega að hætta alfarið að taka strætó. Kem mér frekar upp samböndum við bílandi fólk og fer þá bara sjaldnar - og borga vel í bensíni. Fólk sem er á bíl telur sumt mjög sniðugt að hafa bara eina stoppistöð, eins og í gamla daga þegar rútan gekk á milli, alveg nóg fyrir þetta fólk ... ég hef engan fastakúnna strætó segja það.

 

Ég sendi Vegagerðinni bréf um helgina (rödd farþegans) því ef þetta sparar ekki þeim mun hærri upphæðir væri glórulaust að gera þetta. Ég sé ekki að mikill áhugi sé á því að styrkja innanbæjarstrætókerfið hér á móti, þótt ekki veitti af. Við erum líklega allt of fáar hræður sem eigum ekki bíl hér til að það sé talið hagkvæmt. Góð þjónusta dregur reyndar fólk að! Eins og það er núna virkar það vel fyrir skólakrakkana á morgnana og stöku kerlingar á leið heim úr klippingu. Sem minnir mig á ... fegurð mín hefur dvínað ögn upp á síðkastið (ótrúlegt!) og vantar bara fimar hendur Önnu Júlíu með skærin til að breyta því til batnaðar.

 

Myndin: Eitt sinn skrifaði ég grein í Vikuna um þýðingarmistök. Ein þýðingin var eitthvað um að nú steðjaði hætta að litla bænum í Villta vestrinu því fast drawer (byssumaður, skytta, snögg á gikkinn) væri að koma þangað. Það var í alvöru þýtt sem: „Flýjum, það er hraðteiknari á leiðinni.“ Drawer þýðir líka teiknari.

Einhver sagði við Arnold Svartsenegger í spennumynd: „Farðu inn í spilavítið, kauptu virði 25 þúsund dala af kartöfluflögum...“ (chips) var líka skrambi gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 28
  • Sl. sólarhring: 287
  • Sl. viku: 1987
  • Frá upphafi: 1452187

Annað

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 1600
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband