Röddin í ruglinu ...

Útvarp AkranesSundfélagið okkar hér á Akranesi hefur í nokkra áratugi boðið upp á Útvarp Akranes í byrjun aðventunnar. Hittist mjög oft á að kveikt er á jólatrénu á Akratorgi sama dag. Áður en ég flutti aftur upp á Skaga kom ég einu sinni eða tvisvar og sá um þátt í gamla ástkæra heimabænum mínum. Annað slagið eftir að ég flutti hingað hef ég séð um bókaþátt, ekki í ár því Lestrarklefinn sá um þáttinn í dag og ég skemmti mér vel við að hlusta. Óli Palli og Sigrún Ósk sáu um þátt eftir hádegi í dag og buðu mér að kom í viðtal um tvöleytið, aðallega um íslenskukennsluna hjá Símenntun, vettvangsferðirnar sem við fórum á fimmtudögum til að skoða Skagann, Love Island-Akranes-stikluna sem ég sýndi nemendum og hvað allir voru sammála því að Steindi hefði EKKI verið lúði (hann lék lúða í LA-Akranes).

Þetta gekk bara ágætlega en áðan heyrðist í hausnum í rödd sem getur verið ótrúlega miskunnarlaus og iðulega mjög grimm: 

Hausinn: „Af hverju varstu að name-droppa svona í þættinum?“

Gurrí: „Ha, hvað áttu við?“

Hausinn: „Þarna þegar Óli Palli talaði um lífverðina sem alvöru-Love Island-fólkið hafði þegar það kom til Íslands og þú fórst að segja hvað allt svonalagað væri ólíkt Íslandi og nefndir eins og algjör fáráðlingur þegar þú fórst á stefnumót um árið, vandlega förðuð af Haffa Haff og með góð ráð í farteskinu frá Tobbu Marinós (Ekki sofa hjá á fyrsta deiti, Gurrí!) sem þá sá um Djúpu laugina á SkjáEinum.“ 

Gurrí: „Já, en skilurðu ekki ...? Fólk af þessu kaliberi eins og þau, poppstjarna og sjónvarpsstjarna ... í útlöndum hefðu þau aldrei þurft að vinna fulla vinnu annars staðar fyrir salti í grautinn og hvað þá gera eitthvað svona fyrir óbreytta samstarfskonu (mig), þau hefðu pottþétt verið með lífverði.“

Hausinn: „Nei, ég skildi ekki, þetta kom bara út eins og veistu hverja ég þekki?-mont sem er svoooo hallærislegt.“ 

Gurrí: „Æ, hættu, þú veist hvað ég get verið léleg í að útskýra alla leið, það verður bara að hafa það, ég get engu breytt núna.“

Hausinn: „Svo varstu með bláa trefilinn uppi í andlitinu á þér nánast allan tímann, hvað var það?“

Gurrí: „Hmm, já, það var asnalegt, kannski tilraun til að fela fyrstu frunsuna í bráðum fimm ár ... sem enginn sá nema ég, en þetta var nú fallegur trefill og hættu þessu satans niðurrifi alltaf hreint.“

Hausinn: „Ókei, ókei ... þú ert svaka sæt og voða fín, frunsan töff og trefillinn flottur, en ferðu samt ekki bráðum í klippingu og litun? Það er ekki sjón að sj-“

Með jólasveininum

 

Næsti lausi tími í klipp og lit er 20. desember og ég er skráð þá! Ég held í vonina að Anna Júlía hafi séð útvarpsþáttinn sem sést á heimasíðunni líka (iasund.is) og opni stofuna á morgun, þetta er algjört neyðartilfelli, myndi ég segja. Þrjú partí fram undan fyrir 20. desember.“

 

Ég lét ruglið í hausnum ekki eyðileggja fyrir mér annars fínan dag, skrapp með elskunni henni Ingu í antíkskúrinn og festi kaup á saumakassa, mamma átti svipaðan. Hann var fullur af alls konar dóti; mismunandi tölum, teygju og ... hárneti eins og gömlu konurnar notuðu í gamla daga. Kannski nýtist það mér en mér finnst samt svo óþægilegt að tikka ekki í miðaldraboxin, svo ég fer kannski beint í að verða gömul kerling. Sá á einum stað skilgreiningu á miðaldra: Að kjósa frekar gönguferð á sunnudagsmorgni en að sofa út ... NEI, sannarlega ekki. Að þekkja ekki tónlistina sem er spiluð í útvarpinu ... EKKI RÉTT. Og svo framvegis, og svo framvegis.

 

Mynd: Síðar sama dag á Akratorgi, ástríkur jólasveinn ... og ég missti af öllu saman.

   

Mig hefur alltaf langað í svona saumakassa til að hafa allt saumadót á einum stað ... og sleppa við: Æ, hvar finn ég nál og tvinna, var það ekki í þessari skúffu, nei, bíddu nú við, eða þessum skáp? Við Inga fórum líka í Kallabakarí og fengum okkur sætmeti þar og skoluðum niður með þessu líka fína Illy-kaffi. Klukkan varð fjögur og farið að dimma, sem gerist ansi hratt og mikið þessa dagana en innan við mánuður er þar til fer að birta aftur, svo þetta er ekkert mál. Hvar skyldi nú aðventukransinn minn vera? Æ, á ég ekki aðventukrans? Jú, það hlýtur að vera.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 134
  • Sl. sólarhring: 297
  • Sl. viku: 1651
  • Frá upphafi: 1453526

Annað

  • Innlit í dag: 129
  • Innlit sl. viku: 1378
  • Gestir í dag: 128
  • IP-tölur í dag: 127

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Cartman
  • Cartman
  • Ömmukaffi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband