Naktir karlar á Skaganum - líklega utanbæjarmenn

Naktir karlar úje!Veit að þið eigið erfitt með að trúa þessu ... en núna rétt áðan hlupu margir naktir karlmenn framhjá himnaríki. Mér gafst ekki einu sinni ráðrúm til að bjóða þeim í kaffi! Sjá mynd. Vá, ef ég hefði nú verið á Gay Pride í bænum og misst af þessu. Rétt náði í skottið á þeim með myndavélinni. Hlutirnir gerast hérna í dag, ekki í Reykjavík!

Elskan hún Ólöf Ósk (dóttir Sigrúnar "Flórens" sveitameyjar) kom í rúman klukkutíma í dag og hjálpaði mér við undirbúning afmælisins. Mikið var gott að fá tvær aukahendur. Aðalverkefni hennar var tilfærsla á tímaritum og bókum en mesta draslið í himnaríki er af völdum þessara tveggja fyrirbæra, já, og dagblaða sem ég ætla alltaf að lesa síðar. Eins og ég reyni að vera dugleg að gefa tímaritin mín hlaðast þau samt upp! Ég fæ aukið pláss fyrir bækur og blöð þegar smiðurinn minn kemur. Ekki hlæja, hann kemur einn góðan veðurdag, hann sagðist koma bráðum, reyndar ekki hvaða ár!

Sko! Mér finnst hann jensguð mjög skemmtilegur bloggari. Hreinn og beinn og ekki með neitt bull ... þangað til í dag. Þá hvatti hann heimsækjendur sína til að kjósa sig í vinsældabloggarakeppninni hjá Kalla Tomm í Mosó http://ktomm.blog.is/blog/ktomm/. Þótt keppnin sé eiginlega bara grín þá svíður mig sárt að horfa upp á svona svindl! Ég bið ykkur um að fara inn á síðu Kalla og kjósa mig. Samkeppnisaðilar mínir, m.a. Jenný, Anno, Katrín Snæhólm, vélstýran, og Jóna myndu sýna ótrúlegan þroska með því!

Heyrði í háæruverðugri móður minni áðan. Býst við að hún taki hádegisstrætó til mín á morgun, annað hvort er að taka hann kl. 12.37 eða 16.37. Bílstjórarnir þurfa að leggja sig eftir hádegið, held ég. Mikið hlakka ég annars til á morgun. Vona að sem flestir komi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er búin að kjósa (aumingjaleg) og ég kaus ekki sjálfa mig.  Það er vegna þess að ég var akkúrat að gera ærðuleysisæfinguna þegar ég fór inn til Kalla Tomm.

Var búin að kjósa þig, Önnu Ólafs., Jónu og x4x4 í kommentakerfinu þannig að það er ekki við mig að sakast ef þú vinnur ekki góða mín.  Muhahahaha

Sko þessir alsberu voru að ég held afmælisgjöf til þín.  Bara degi á undan.  Dem.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 17:16

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

og Dúu gleymdi henni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 17:16

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Aldrei má maður ekki neitt.

Þröstur Unnar, 11.8.2007 kl. 17:21

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Auðvitað, Anna! Sorrí, of seint, nú hafa örugglega allir kosið mig. Man þetta bara næst!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 18:04

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Nei ... alls ekki, Þrymur, ég kannaðist bara ekkert við rasskinnarnar ...

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 18:55

6 identicon

Krútt

til hamingju með daginn á morgun. Kemst því miður ekki í afmælið og ég sem er búin að vera á leiðinni í það í 3 ár. Kem bara næst. Vona að þú hafir tíma til að öpdeita mig á Boldinu fljótlega er komin með ákveðin frákvarfseinkenni.

Hún lengi lifi, húrra, húrra, HÚRRA!!!

Kveðja Kikka í rigningunni fyrir norðan

kikka (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 19:34

7 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Ég stækkaði myndina til að sjá bossana, en þessir gaurar eru allir í stuttbuxum.

Halló, ertu komin í viskýkökubaksturinn?

Ólafur Þórðarson, 11.8.2007 kl. 19:42

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kjánaprik, veffari, það á einmitt EKKI að stækka myndina, svona lítil virka þetta naktir menn. Ég stækkaði hana og áður en ég fór að sjá kjeddlingar þarna þá minnkaði ég hana strax aftur. Ljúft er að láta sig dreyma .. jú, ÉG ER FULL ... tilhlökkunar. 

Kikka, þú kemur næst, þá er líka ALVÖRUSTÓRAFMÆLI! Er tiltölulega nýbúin að öppdeita boldið og var með persónur og leikendur líka, þar koma söguþráðurinn svolítið fram.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 20:24

9 identicon

Ó, afsakið fröken frú, hef bara verið svo lítið á Netinu undanfarið, en taldi mig þó ekki hafa misst úr neitt frá þér. Þarf að kanna það nánar. Já ég mæti á næsta ári og er strax farin að svipast um eftir gjöf.

 

kikka (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 20:44

10 Smámynd: Jens Guð

Ég var að tékka á stöðunni.  Þið þurfið ekkert að hafa fyrir því að kjósa Gurrí.  Hún er komin fram úr mér.  Þannig að þið getið bara farið að lesa Moggann eða eitthvað.  Hehehe!

Jens Guð, 11.8.2007 kl. 21:16

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

EKKI TAKA MARK Á JENS!!! Hann er eitthvað að bralla, karlinn!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 21:38

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég þykist sjá engla alls staðar..meira að segja líka í honum Guði Jenssyni þó hann sé að reyna að svindla sig bestan 

Og þú sérð bara karlmenn hvert sem þú lítur ..þegar maður er farin að sjá hlaupandi allsbera karla í kringum sig Gurrí mín segir það bara eitt...þú hlýtur bara að vera Single og alveg að verða fortynine or something

Innilegar hamingjuóskir elskan mín frá okkur öllum...þú verður ekki svikin af allsberum körlum hér í október. Þeir reyndar hlaupa ekki en labba bara í hægðum sínum..er það ekki bara betra??

Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 21:45

13 Smámynd: SigrúnSveitó

Gurrí! Þú ert KREISÍ!!!  Þú borgar ALLTOF há laun! Nú hótar stelpan því að fara í verkfall ef við hækkum ekki við hana launin!!! (hún vissi ekki hvað verkfall var fyrr en hún kom heim frá þér í dag og elskulegur faðir minn útskýrði þessi mál fyrir henni!!)

Ég er búin að kjósa þig á síðu Kalla!!! 

Og svo þetta með nöktu karlmennina...þú veist hvað er sagt ef einhver gerir "vitleysu"; "Um utanbæjarmann var að ræða"!!! 

SigrúnSveitó, 11.8.2007 kl. 21:53

14 Smámynd: Karl Tómasson

Karlar bregða sér oft úr betri buxunum Gurrí mín.

Bestu kveðjur úr Mosó.

Áfram með smjörið, þú stendur þig vel.

Karl Tómasson, 11.8.2007 kl. 21:56

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, kæra Sigrún ... segðu henni að þetta hafi verið neyðarlaun á hæsta taxta á laugardegi fyrir gífurlega mikinn dugnað. Hún gerði mér ótrúlega mikinn greiða og sparaði mér sannarlega mörg sporin. Mun panta hana aftur að ári!

Kalli, ég er löngu hætt að pæla í því að fá mér sterkari gleraugu, þvílík dýrðarsjón sem þetta var eftir hádegið, fullt af allsberum körlum. Heimurinn er frekar flottur pínulítið úr fókus. Sýnist mitt fólk standa sig vel í kosningunni. Annars er mjög kúl að lenda í öðru sætinu og ekki verra að tapa fyrir jensguð!

Niðursoðnar ástar- og saknaðarkveðjur til Englands, elsku Katrín. Hlakka til að sjá ykkur í vetur.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 22:09

16 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

NAKTIR KARLMENN 

Er himnaríki til sölu?

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.8.2007 kl. 22:12

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

HVAÐA KAFFI  ERT ÞÚ?

 ÉG ER LATTE

  SKAPSTÓR?    nei...?

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.8.2007 kl. 22:19

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðrún! Ég tók þetta próf fyrir nokkrum árum og kom út sem LATTE! Mjög sátt við það, enda er latte uppáhaldsdrykkurinn minn. Ég tók prófið í gær eða fyrradag og reyndist vera TE!!! Það var svo mikið sjokk að ég þorði ekki að segja neinum! Arggg

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 22:36

19 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

hehehehehehe !  Kaffikona TE ekki er ég hissa þó þú þegir þunnu hljóði yfir þessum ósköpum

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.8.2007 kl. 23:02

20 Smámynd: Andrés.si

Ég er sko ekki viss lengur hvort á ég koma á Skaga strönd á morgun eða heim til  Gurry.

Andrés.si, 11.8.2007 kl. 23:41

21 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Innilega til hamingju með daginn Guðríður!

Megi dagurinn verða þér í senn ánægju- og eftirminnilegur.

Magnús Geir Guðmundsson, 12.8.2007 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 50
  • Sl. sólarhring: 287
  • Sl. viku: 2009
  • Frá upphafi: 1452209

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 1621
  • Gestir í dag: 48
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband