Af hastarlegu hvarfi Bols og uppáþrengjandi spákonum!

BolurinnFátt hefur vakið meiri athygli en skyndilegt og hastarlegt brotthvarf Bols Bolssonar úr bloggheimum. Hér er afhjúpunin: http://blogg.visir.is/henry Ungmeyjarnar skæla, sérstaklega ég þar sem ég missti af þessari mannvitsbrekku sem átti þó að heita bloggvinur minn. Mér finnst mikil snilld að komast þetta langt á bullinu, en hvað gerðu ekki Emil og Hrólfur? Hafa þeir nú sameinast í einhvers konar hefnd? (nei, ýtið á hlekkinn)

SpákerlingDear Gudridur, I'm writing to you one last time about this, Gudridur, because I want to make absolutely certain that I have done everything possible to alert you. So please click here. Bethea. Nenni ekki að skrifa Betheu til baka og segja henni að það komi ekki til greina að ég kaupi þetta galdrahálsmen sem hún hefur í örvæntingu reynt að selja mér í nokkra mánuði og ég er á síðasta séns til að öðlast lífshamingjuna. Fann Betheu á Netinu, nú losna ég ekki við hana.

KristallarEinu sinni var ég á skólaferðalagi í New York og við fórum nokkrar skólasysturnar til spákonu í Greenwich Village. Eitthvað í svipinn á mér virðist æsa upp falsspákonur sem sértrúarsöfnuði. Held að ég sé vanmetinn og gáfusvipurinn sem ég set reglulega upp er greinilega misskilinn sem bjánasvipur. Samt er ég aldrei með opinn munninn vegna geitunganna. En alla vega ... spákonan í New York horfði alvörugefin á mig þegar hún var búin að spá mér einhverjum hryllingi og bað mig lengstra orða að hringja í sig þegar ég kæmi aftur til Íslands. Ég ætlaði ekki að gera það en ein skólasystirin æsti mig til þess og þetta var stórmerkilegt símtal. Spákonan sagði að ef ég ætti að njóta einhverrar gæfu í lífinu yrði ég að senda henni rúmlega 200 þúsund krónur, í dollurum auðvitað, og til baka fengi ég nokkra kristalla sem ég ætti að hugleiða yfir. Síðan yrði ég að senda steinana til baka og hún ætlaði að láta nokkrar nornir hugleiða yfir þeim. That´s it! Ég sýndi henni þá kurteisi að hlæja ekki upphátt og tjáði henni að ég kynni ekki að hugleiða yfir steinum og ætti auk þess ekki 200 þúsund krónur, enda nýútskrifuð úr skóla og væri að leita mér að vinnu. Þannig fór nú um gæfuríka lífið mitt ... kannski væri ég gift einhverjum Ævari og byggi með honum í flottu húsi í Grafarholti. ÆvarHann alltaf að grilla og við skryppum reglulega til Parísar til að viðhalda rómantíkinni. Hann væri búinn að senda mig í nokkra æfingatíma hjá ökukennara og nýi bíllinn minn væri WV Polo, svona sætur, sjálfskiptur konubíll. Vissulega er Ævar sannkallaður happdrættisvinningur en ég afsalaði mér honum á grimmdarlegan hátt! Talandi um grimmd ...

Stefanía lýsti yfir ást á Eric, fyrri manni sínum, og sparkaði svo í punginn á honum! Núverandi eiginkona Erics, Brooke, hneykslaðist en þá sagði Stefanía: „Hafðu engar áhyggjur, þú vilt hvort eð er ekki sofa hjá honum!“ hvernig svo sem hún veit það! Nú á að breyta Forrester-tískuhúsinu og færa það nær upprunanum, segi löglegi eigandinn, eða Stefanía. Taylor með varirnar verður hið nýja andlit tískuhússins. Hún er nefnilega virðuleg. Múahahhahaha! Svo er Thorne orðinn nýi forstjórinn, ekki Ridge. Allt að verða vitlaust í boldinu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Arnar

Ertu nokkuð með síman hjá þessari spákonu. Er að spá í að borga henni 200 000 kr og sjá hvað gerist!

Elín Arnar, 14.8.2007 kl. 18:11

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ævari??? En sú örlög! Heppin varstu!

Stefanía rokkar feitt í boldinu núna. Greip einn þátt í vikunni. Mín spá er sú að þríhyrningurinn Ridge, Eric og Brooke fari til Spectra. Wild guess

Laufey Ólafsdóttir, 14.8.2007 kl. 18:14

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

The false fortune teller, Greenwich Village, NY, NY, USA, man ekki símann ...

Tek undir þetta, Laufey, þetta er það eina í stöðunni hjá þeim!  

Guðríður Haraldsdóttir, 14.8.2007 kl. 18:22

4 identicon

Ok ok, takk, þetta er sko spennandi. Þarf að koma mér í heimsókn til einhvers sem er með stöð 2, svo ég sjái einn þátt á árinu, þó ekki væri nema bara til að sjá varirnar á geðlækninum geðþekka henni Taylor

kikka (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 18:46

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

49 og flott þú ert góð elskan í blogginu. Hafðu það gott og gleymdu Bolnum, notaðu þinn brjóstabol og þá verður þú fyrst á listanum fljótlega.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.8.2007 kl. 19:04

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvaða séns á brjóstalaus kona sem öngvan bol á að komast í efsta sæti?  Hm.. mér líst vel á þig eftir að þú varðst 49 ára.  Svo þroskuð núorðið.  Gott að Ævar er minni eitt.  Held að hann sé leiðinlegur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.8.2007 kl. 19:30

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

EF Jenný vill fara í brjóstastækkun, þá er ég tengiliðurinn til að redda því!Kíkti aðeins á drenginn Henry Birgi, hef greinilega hitt naglan nokkurn vegin beint á höfuðið í dag Gurrí! Hef svo ýmislegt við það sem hann skrifar að athuga, en nenni því ekki, nema hvað, að það segir engin að hann hafi staðið í þessu einn og óstuddur! Annars er mér nokk sama, fór einu sinni eins og ég sagði inn á þessa síðu og var fljótur út aftur.Sjálfur er ég á blogginu vegna ákveðinnar hugmyndar og verð nú bara að segja, að mér finnst eiginlega merkilegra hvað hún hefur náð hátt en þessi bolstilraun! En er auðvitað eigi óhlutdrægur í því mati!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2007 kl. 19:53

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Einn og óstuddur, Magnús? Hann sýndi bara aðeins meiri dugnað við að blogga fréttir með engu kjöti á beinum en nokkur annar, enda skilaði það honum fyrsta sætinu á sjö dögum sem segir ansi mikið um okkur Moggabloggara. Sumir fréttabloggarar eru ansi skemmtilegir, aðrir alls ekki, að mínu mati. Ég sé eftir að hafa ekki gefið Bol meiri séns. Nú óttast ég að hann hafi beðið mig um bloggvináttu til að gera grín að mér ... nötr ... skelf ...

Guðríður Haraldsdóttir, 14.8.2007 kl. 20:07

9 Smámynd: Rebbý

heyrðu Gurrí, ég er farin að horfa á Stephanie allt þér að "þakka" og varð voðalega stolt þegar ég sá hana æða á gamla ... að sjálfsögðu vissi hún að þau Brook sofa ekki saman því hún sat yfir þeim á brúðkaupsnóttina
eða þetta sýndist mér á þessum smá augngotum sem ég lét vaða á þáttinn áður en ég fór út.

Rebbý, 14.8.2007 kl. 20:07

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ævar!!!

Jóna Á. Gísladóttir, 14.8.2007 kl. 20:13

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Jamm Jóna. Held hún sé að meina Ævar frænda minn, sem flúði til Færeyja einhverntíma í fyrndinni.

Þröstur Unnar, 14.8.2007 kl. 20:16

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ekki skrýtið að hann hafi flúið til Færeyja.

Gurrí ég sá kommentið þitt hjá Þresti varðandi Bol. Þú misskilur þetta allt saman. Hann sagði að hann hefði aðeins beðið fræga fólkið um að gerast bloggvinir og hafnað hinum. Og það gerir þig eina af fræga fólkinu. Ójá.

Jóna Á. Gísladóttir, 14.8.2007 kl. 21:22

13 identicon

Gurri min. Hjartanlega til hamingju med afmaelid. Eg er viss um ad veislan hefur ekki verid sidri nu en thegar thu bjost i borginni.  Eg var alltaf med merkt vid daginn thinn i dagatalinu minu, en eftir ad eg flutti til UK, datt thad ut hja mer!!

Bestu kvedjur fra Eddu Andradottur i Englandi.

Edda (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 21:51

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Málið er nú bara ekki svo einfalt fröken Gurrí!

Hvað gengur Henry Birgi Gunnarssyni blaðamanni bæði á Fréttablaðinu og DV og íhlaupaíþróttalýsara á Sýn, eiginlega til með þessu?Hann er sja´lfur með veglegt vefsvæði á visir.is undir fullu nafni og vantar því ekki sviðið sem slíkt til að láta ljós sitt skína. Hvað var hann í raun og veru að sýna fram á með uppátækinu og er það í raun bara undan hans rifjum runnið, bara gert til að skemmta honum í sumarfríinu eða í kaffitímunum í vinnunni?

Því trúi ég nú rétt mátulega!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2007 kl. 23:23

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og ég sem hélt að Björgvin Halldórsson væri Bolur, hann söng svoleiðis allavega  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2007 kl. 23:55

16 Smámynd: Jens Guð

  Samkvæmt mínum heimildum fór Henry/Bolur ítrekað yfir velsæmismörk.  Margar færslur hans voru kærðar og aftengdar áður en lokað var á hann.  Hann gerði út á grín að þeim sem blogga um fréttir mbl.is.  Mér skilst að hann hafi einkum veist að Stefáni Fr. Stefánssyni,  þeim ágæta og málefnalega bloggara.  Ég kíkti einu sinni á síðu Henrys/Bols og sá bara saklaust bull. 

Jens Guð, 16.8.2007 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 362
  • Sl. viku: 2159
  • Frá upphafi: 1451895

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 1761
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Grimm
  • Í kringum ljósastaurinn
  • Baldursbrár

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband