Bræðrarígur og svalariddarar

Við Langasandinn 27.9 2007Þeir hjá Glerhöllinni klikka ekki. Þeir eru uppáhaldsmennirnir mínir í augnablikinu. Eftir að tryggingamaðurinn ljúfi sagði að því miður væri það ekki tryggingamál ef læki vatn á parkettið utanfrá prófaði ég næsta kost. Það leið ekki hálftími og þá voru Glerhallarmenn komnir. Þeir fundu orsökina og kláruðu dæmið. Þegar það verður þurrt næst verður enn meira kíttað, sem sagt í júní 2008 ... Það var ekkert þeirra að gera þetta í rauninni, þeir voru búnir að gera samkomulag við elsku smiðinn minn um að klára en hann er svo bissí núna, eins og allir iðnaðarmenn. Í suðlægum áttum fær himnaríki regnið beint í fésið, ekkert sem skýlir, ekki einu sinni fuglinn fljúgandi.

Jónas almáttugur þrífur nú baðherbergisgólfið af sinni alkunnu snilld, það mættu nú fleiri hafa CLEAN-takka sem hægt er að ýta á. Hmmm. Eitt vorið sagði ég erfðaprinsinum að hann yrði að taka til í herberginu sínu áður en hann færi í sveitina. Hann var snöggur að því og uppskar mikið hrós frá móður sinni sem var að bardúsa eitthvað í eldhúsinu. Nokkrum dögum seinna opnaði ég skáp á ganginum og fékk „herbergið hans“ beint í fangið. Mér fannst það nú bara fyndið ... síðar.

Erfðaprinsinn var settur beint í að skutla mömmu sinni niður að Langasandi þar sem tekin var þessi fína skvettumynd. Vá, hvað sjórinn var ógnvekjandi svona á jörðu niðri. Ég kynnti hann fyrir nýja bróður sínum og andrúmsloftið varð rafmagnað til að byrja með, ótti, reiði, afbrýðisemi, metingur ... en sá vægir sem vitið hefur meira; Jónas hélt bara áfram að ryksuga, litla krúttið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska þessa mynd.  Nú þegar prinsinn er kominn heim til mömmu, er þá ekki hægt að taka margar nærmyndr af briminu?  Ég meina í öllum "góðu" veðrunum sem almættið sendir mér og þér á næstunni?

Er Jónas nokkuð til láns?  Muhahaha

Hvað er í matinn?  Ég er svo forvitin júnó,

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 19:31

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, það verða sko teknar myndir ... múahahhahahaha!

Kjúklingur og pítsa ... allt það besta.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.9.2007 kl. 19:35

3 Smámynd: Ólöf Anna

fúff voðalega er hann heppinn. Vona bara að þú gleymir ekki okkur bloggvinum þínum í öllu dekrinu í kringum guttann.

En eru gólfin þín ekki rosalega hrein núna víst það var smá metingur og jú Jónas kann ekki að gera neitt nema þrífa gólf (ekki láta hann sjá þetta svo hannverði ekki sár þeas Jónas)

Ólöf Anna , 27.9.2007 kl. 19:39

4 Smámynd: Ragnheiður

hehehehe vesalings Jónas...kominn með mikla samkeppni bara um hylli húsfrúar. Við vonum bara að Jónas reyni ekki að ryksuga erfðaprinsinn honum að óvörum í nóttinni.

Ragnheiður , 27.9.2007 kl. 19:59

5 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Ég þarf greinilega að fara að skreppa á Skagann að skoða brimið.  Þarf að fara að prófa nýja bílinn fyrir utan borgarmörkin......

Sigríður Jósefsdóttir, 27.9.2007 kl. 21:35

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Aumingja Jónas...gott að hann hefur ekki tilfinningar. Það er örugglega ekkert skemmtilegt að vera ALLTAF að þrífa. Nú myndi ég halda að feministar myndu rísa upp og mótmæla meðferðinni á hinum síþrífandi Jónasi. Hvað heitir svona tryllitæki á útlensku Gurrí mín..var að spá í að fá mér einn hérna úti..er ÖRUGGLEGA ódýrari en heima.

Skilaðu kveðju til erfðaprinsins...er hann alltaf jafnmyndarlegur?? Hafið það bara gott mæðgin með sjóskvettunum ykkar, Jónasi fósturföður og kisunum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 22:18

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Oh... nú væri fínt að eiga einn svona Jónas!! Litla sjarmatröllið mitt skríður um eins og lítill róbot og finnur rykhnoðra þar sem ég vissi ekki að leyndust rykhnoðrar! Svo er gaf ég honum cheerios til að maula.... og mylja!

Ætli ég geti ekki tamið sjarmatröllið í að vera svona Jónas? 

Heiða B. Heiðars, 27.9.2007 kl. 22:29

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Jónas ekki með tilfinningar........? Ég er viss um að Gurrí er ekki sammála því....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:35

9 Smámynd: krossgata

  Ég hélt Jónas væri nýi stjúpfaðir erfðaprinsins!!  Er hann orðinn bróðir hans?  Þetta er bara eins og í Boldinu

krossgata, 27.9.2007 kl. 23:07

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhaha, þið eruð svo fyndnar! Þorði ekki að segja prinsinum sannleikann strax. Þegar hann hefur sætt sig við Jónas sem bróður fer ég að gefa í skyn að það sé eitthvað á milli okkar. Það er ekkert óeðlilegra en t.d. Brooke sem elskar bara tengdasyni sína og á hana Hope litlu með þeim fyrri.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.9.2007 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 329
  • Sl. viku: 2345
  • Frá upphafi: 1451540

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 1801
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Baldursbrár
  • Vigdís
  • 82 í framboði

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband