Hetjan Inga og viska Hallgríms ...

Bjartur og vitlaust veður 22.10.07Vitlaust veður við himnaríki kl. 16.30, ætlaði varla að komast út úr bílnum hennar Ingu, hvað þá þennan stutta spotta upp að dyrum. Reyndi að dekra hana á ýmsan hátt til að koma inn (kjúklingur í kvöldmat, leggja sig í leisígörl) og bíða af sér það versta en hún vildi halda í bæinn. Hetjan. Þannig að hún situr ein að björgunarsveitarmönnunum, dúllan, krúttið. Buxurnar mínar urðu gegnblautar þegar ég hljóp inn í Rekstrarvörur og sótti Sigþóru. Hún fékk að hætta aðeins fyrr til að ná heim.
Hviðumælirinn í Mosó sagði 26 m/sek á Kjalarnesi en engin viðvörun var vegna Hafnarfjalls. Í útvarpinu heyrðum við að hviðurnar þar færu upp í 40 m/sek. Mælirinn hefur kannski fokið.

Ávaxtamarkaður í EinarsbúðÍ göngunum endursagði ég það sem Hallgrímur læknir talaði um í morgunþættinum á Rás 2 undir átta í morgun. Aldrei hef ég heyrt að maður ætti ekki að tannbursta sig með flúortannkremi ... það dregur víst úr virkni joðs, skjaldkirtillinn starfar því ekki rétt ... bla, bla ... og maður brennir hitaeiningum. Hann talaði líka um nauðsyn þess að borða ávexti á morgnana, helst á 40-60 mínútna fresti fram að hádegisverði. Þá fær maður sér ekki kartöflur með fiskinum eða kjötinu, heldur grænmeti. Ég hlýddi því í hádeginu og borðaði ítalskar kjötbollur með salati. Síðan á ekkert að borða eftir c.a. 5, 6 á kvöldin. Rangt mataræði sljóvgar og býður heim sjúkdómum og orkuleysi, sagði hann.

Hallgrímur læknir er eini læknirinn sem hefur vottorð frá landlækni um að hann sé heill á geði, það kom líka fram í þættinum. Fyrir 15 árum sagði hann að sykur væri fíkniefni, þá var hlegið að honum. Fáir hlæja núna, allra síst ég þar sem ég berst við djöfullegar freistingar á leiðinni upp Súkkulaðibrekkuna á morgnana.

Elskan hann Bjartur fer heim á morgun. Hans verður sárt saknað (ekki af Kubb sem hvæsir á hann ef hann kemur nálægt). Hann er svo góður. Myndin að ofan er af honum, ekki Tomma. Þeir eru svo líkir. Svaka gaman fyrir Míu og Sigþór að hafa farið á West Ham leik þar sem hetjurnar sigruðu, 3:1. Hlakka til að heyra ferðasöguna.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Úff ég var alveg viss um að þú kæmist ekki heim í dag, meiri lætin í þessu veðri !

Ragnheiður , 22.10.2007 kl. 17:05

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að þessi sami Hallgrímur sé sá hinn sami og þvær sér ekki með sápu eða sjampói.  Mér finnst það forvitnilegt - úr fjarlægð

Annars er flott að borða ekki eftir kl. 19,00 en næringarfræðingur sem ég hef aðgang að segir að það sé nauðsynlegt að fá sér aukabita um kl. 21,00.  Og habbðu það sykurgrísinn minn og megadúllurass

Knús í rokið, það hriktir í öllu hjá mér og ég er mjög hamsingjuöm eins og Jenný Una myndi segja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2007 kl. 17:53

3 identicon

Ekkert eftir kl. 17 ! Eins gott að þingið samþykkt ekki tillögu Vilhjálms Egilssonar um að flýta klukkunni um tvo tíma til samræmis við evrópu!

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 19:26

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vá, ég hafði þvílíkar áhyggjur af þér, eins gott að þetta slapp til í rokinu. Ég mætti umræddum Hallgrími á göngum einhvers sjúkrahúss um daginn, hann var hreinleikinn uppmálaður og flottur kall.  Ég t.d. þvæ mér um hárið (ok læt þvo það) einu sinni í viku og er aldrei með feitt eða ljótt hár. Það er hægt að venja hárið af stöðgum hárþvotti.  Knús til þín og kisulóranna.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.10.2007 kl. 21:08

5 identicon

Ég þarf aldrei að þvo hárið.

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 21:19

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jújú, til viðbótar þessu veðurvæli þínu þá hringdi háöldruð móðurómynd mín líka í einkaerfðaprinsinn sinn, (moi), & sagði sitt veður ekki slétt né fellt.  Ég benti henni á að ég væri líka að horfa á Stormí Monday á Baugsstöðinnií sjónvarpinu & þekkt væri að allt vont veður færi norður & niður með tímanum.

Enda rignir núna þvílíkt að ég hefði líklega átt að bera á pallinn aftur í sumar.

Að öðru, það er alþekkt að allt sem að var einu sinni hollt & gott fyrir mann, hættir að vera hollt þegar manni fer að finnast það gott & hollt samkvæmt stúdíu einhverra sem að lærðu af þeim sem að settu fram fyrri kennínguna.

Merkilegt.

S.

Steingrímur Helgason, 22.10.2007 kl. 21:45

7 identicon

Talandi um veður og veðurvæl:

ÉG VIL BÍTA OG BERJA FAST

BRJÓTA ALLT OG MÖLVA

ÞETTA SKÍTA KULDAKAST 

KOM MÉR TIL AÐ BÖLVA.............hver orti fyrsti stafur byrjar á K, 

Jensen (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 22:35

8 identicon

Hver orti, tilraun til svars:

Senn mun lægja særok hér,
segir veðurspáin,
en vísan Jensen, virðist mér,
vera eftir Káinn.

Lesandi (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 23:53

9 Smámynd: krossgata

Það er mörg átspekin.  Mér skilst, samkvæmt þætti í sjónvarpinu í gær, að hrikaleg vatnsdrykkja sem átti að vera svo góð fyrir húðina sé goðsögn.

krossgata, 23.10.2007 kl. 10:32

10 identicon

Rétt er það,vísan er eftir Káinn.Þessi vísa hjá þér er bara SNILLD,kveðja til þín Snillingur´(No,9.)

Jensen (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 192
  • Sl. viku: 1527
  • Frá upphafi: 1453402

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 1259
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Cartman
  • Cartman
  • Ömmukaffi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband