Tommi úti á svölum

Álfagangan fyrir neðan himnaríkiEr orðin endanlega fullviss um að himnaríki sé miðpunktur alheimsins. Þrettándabrennan fór fram hérna fyrir neðan austursvalirnar og fjöldi „fólks“ söng jóla- og nýárslög við eldinn. Glæsileg skrúðganga álfa og huldufólks kom eftir Jaðarsbrautinni og dansaði í kringum brennuna á þyrlupallinum. Síðan var glæsileg flugeldasýning í boði Akranesborgar.

Frábæru strákarnir í BTErfðaprinsinn viðraði mig aðeins á kagganum fyrr í dag og auðvitað fórum við í Skrúðgarðinn. Líka í BT þar sem ég keypti hræódýrt minniskort í myndavélina mína. Í tvö ár hef ég bara getað tekið 16 myndir í einu. Við sáum að fartölva erfðaprinsins hafði lækkað um 20.000, ógisslega spælandi, „svona er lífið,“ hefði hinn kaldlyndi, fyrrverandi eiginmaður sagt.

Erfðaprinsinn á svölunumFyrir utan Skrúðgarðinn var elskan hann Tommi bílstjóri, alveg að fara að leggja af stað með farþega til Reykjavíkur. Mér tókst að smella nýárskossi á hann og litlu munaði að strætó færi ekki síðdegisferðina, segi nú svona. Hehhehe. Tommi minnti mig á að það væri hlaupár og sagði hann eitthvað um mannfórnir sem ég heyrði ekki alveg því að hann hafði hlaupið öskrandi inn í vagninn og lokað. Mér dettur ekki í hug að fórna Tomma þótt það sé hlaupár. Himnaríki 726Hann var orðinn loðnari í framan (skegg) en alltaf jafnbrosmildur og frábær. Náði samt að segja honum að þegar ég hefði tekið strætó undanfarið hefðu bara verið einhverjir aðrir karlar undir stýri, Heimir og Kiddi og svona. Samt ágætir.

Við keyptum nokkra flugelda sem erfðaprinsinn skaut upp af alkunnri snilld meðan á brennunni stóð. Ég stóð úti á svölum í smástund með Tomma í fanginu (köttinn) til að sýna honum brennuna. Hann var bæði áhugalaus og vanþakklátur svo að ég sleppti honum og naut þess ein að horfa úr dyrunum. Mér tókst síðan einhvern veginn að loka hann úti á svölum. Þegar erfðaprinsinn kom heim þremur mínútum seinna uppgötvaði hann þetta og horfði ásakandi á mig. Nú er Tommi í gjörgæslu, búinn að fá uppáhaldsmatinn sinn og auðvitað knús og klapp á fjögurra sekúndna fresti.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég las þetta eins hratt og ég gat, ég var mest hrædd um að þú værir búin að loka blásaklausan strætóbílstjóra á svölunum. Mín kæra systir er öryggisfulltrúi hjá Strætó og ég var kominn með gsm símann til að láta hana vita að vagnstjóra í vandræðum !

Svo var það bara kisinn......pifff...en gott að prinsinn bjargaði kisanum

Ragnheiður , 6.1.2008 kl. 18:47

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Heyrðirðu mína fögru rödd hljóma?  Ég tók sko virkan þátt í söngunum!!!

Já...takk fyrir síðast, mín kæra. 

SigrúnSveitó, 6.1.2008 kl. 19:34

3 identicon

Gleðilegt ár Gurrí og takk fyrir skemmtilegu skrifin þín.

Já það má sko segja að flugeldasýningin á skaganum hafi verið hreint frábær....algjörlega glæsileg....sjaldan séð annað eins.

Kv.

Sigga (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 19:36

4 Smámynd: Turetta Stefanía Tuborg

Þú hefðir átta að minna Tomma á að á hlaupársdegi mega konur biðja sér manns.  Spurning hvort kappinn hættir sér út fyrir dyr daginn þann.

Bara svona smá ábending Þetta er auðvitað löngu orðið úrelt...

Turetta Stefanía Tuborg, 6.1.2008 kl. 20:13

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús á Skagann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.1.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk innilega fyrir síðast. Þú stóðst algjörlega undir væntingum. Hér var allt vitlaust áðan í brennu og fragettum, 2 tíma skothríð. Fólk er smá að tapa sér finnst mér. Eins gott að þú tókst fram að þetta var kötturinn ekki bílstjórinn hí hí  vona svo bara að næsta vika verði ekki mjög vindasöm á Kjalarnesinu.  Eigðu góða viku.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.1.2008 kl. 22:15

7 Smámynd: www.zordis.com

Þrettándaknús til þín.

www.zordis.com, 6.1.2008 kl. 22:45

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

En spennandi þetta með að kona megi biðja sér strætómanns á hlaupári....Annars finnst mér að þú eigir að giftast nágranna mínum í næstu götu sem sprengir og sprengir og er að sprngja í mér hljóðhimnurnar. Hann væri best geymdur á skaganum...innan um ketti og klóka konu eins og þig.

Knús mús. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 6.1.2008 kl. 23:02

9 identicon

Takk fyrir síðast

Bryndís R (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 23:05

10 identicon

Gleðileg jólalok.Eða er ekki sagt svoleiðis.hehehehehehe.Nú tekur hversdagsleikinn ,við íþróttir hjá mér í fyrramálið og boldið hjá þér og mér seinnipartinn.Ég klikka ekki á annarri endursýningu.Takk fyrir síðast.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 23:50

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

segir maður ekki gleðilega jólarest það var a.m.k. sagt í minni sveit.

Þú hefur stúkusæti í himnaríki við hina ýmsu atburði hér að skaganum Gurrí

Guðrún Jóhannesdóttir, 7.1.2008 kl. 00:18

12 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Gleðilegan þrettánda, og gott að Tommi er bara áhugalaus en ekki hræddur!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 7.1.2008 kl. 01:17

13 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Eða er hann hræddur, merkir þetta með knúsið eitthvað annað en að þið séuð kattavinir fram í fingurgóma :-?

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 7.1.2008 kl. 01:18

14 identicon

Horfði nú bara á Fugeldasýninguna heiman frá mér en mikið var þetta glæsilegt hjá þeim í ár unun að horfa Hafðu góða Vinnuviku

Brynja www.skordal.bloggar.is (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 08:06

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Tak for sidst

Nú er bókaspjallið í gangi á síðunni minni, vildir þú senda inn aths?

Marta B Helgadóttir, 7.1.2008 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 278
  • Sl. sólarhring: 337
  • Sl. viku: 2453
  • Frá upphafi: 1450992

Annað

  • Innlit í dag: 233
  • Innlit sl. viku: 1915
  • Gestir í dag: 224
  • IP-tölur í dag: 222

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Rauð útidyrahurð
  • Mosi og skugginn
  • Eldum rétt í kvöld

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband