Staðreyndir um Chuck Norris ...

Chuck Norris hatar hryðjuverkamennChuck Norris sefur aldrei- Einu sinni beit kóbraslanga Chuck Norris. Eftir fimm daga ólýsanlegar kvalir dó slangan.

- Chuck Norris getur barnað komu með augnatillitinu einu saman, líka karla.

- Chuck Norris leyfir Jackie Chan að lifa af þeirri einu ástæðu að hann hefur svo gaman að Chris Tucker-myndunum.

- Mr. T sigraði Chuck Norris einu sinni í lúdói. Í hefndarskyni fann Chuck Norris upp rasismann.

Klósettpappír Chucks Norris- Chuck Norris finnst gaman að vera í kanínuinniskóm í einrúmi á nóttunni. Úr lifandi kanínum.

- Þegar þáttur af Texas Ranger var sýndur í Frakklandi gáfust Frakkar upp fyrir Chuck Norris til öryggis.

- Einu sinni heimsótti Chuck Norris Jómfrúreyjar. Nú heita þær Eyjar.

- Þegar Chuck Norris gerir armbeygjur lyftir hann sjálfum sér ekki upp. Hann ýtir Jörðinni niður.

- Chuck Norris hefur komið til Mars og þess vegna finnst ekkert líf þar.

- Þegar skrímslið fer að sofa gáir það fyrst undir rúmið til að fullvissa sig um að Chuck Norris sé ekki þar.

- Tár Chuck Norris lækna krabbamein. Verst að hann skuli aldrei gráta.

- Chuck Norris sefur aldrei ... hann bíður.

Að lokum prumpubrandari:  - When Chuck Norris breaks wind, it stays broken.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Æi, og ég var næstum búin að kaupa þessa bók um daginn. Þá hefðirðu fengið hana í afmælisgjöf ...

Nanna Rögnvaldardóttir, 4.4.2008 kl. 14:12

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mig langar mjög mikið í þessa bók, Nanna! Hún færi í safnið með öðrum frumlegum bókum frá þér, Chippendale´s-dansara bókinni og svona ... Ég fékk þessar setningar sendar (á ensku) frá samstarfskonu minni, vissi ekki að væri bók.

Guðríður Haraldsdóttir, 4.4.2008 kl. 14:21

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er mér bara hent út?

Ég á ekki orð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2008 kl. 14:59

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þorrímilljónsinnum, ég var síst að skilja.  Auðvitað var ég í vitlausri fæslu.  Sko ekki réttri færslu.

Hehe knús í helgina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2008 kl. 15:00

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er náttlega bara fyndið, er til einhver bók með svona djókum í.  Snilldar frasar, ýtir jörðinni niður, góður.  Takk fyrir að birta þetta. Hafðu það gott um helgina mín kæra 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.4.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Myndi sko ekki henda þér út, Jenný, þótt ég fengi milljón krónur!

Já, þetta er hrein dásemd! Ég vissi ekki af þessu snilldar"einelti" á karlinn. Hann fær borgað fyrir að vera í sviðsljósinu, þessi elska. Ég á ekki eftir að geta horft á mynd með honum framar án þess að flissa!

Guðríður Haraldsdóttir, 4.4.2008 kl. 15:13

7 Smámynd: Þorleifur Magnús Magnússon. ( Brói )

Takk fyrir þetta Guðríður, frábært. Þú bjargaðir helgini, sem ég ætla að tileinka Chuck Norris.

Þorleifur Magnús Magnússon. ( Brói ), 4.4.2008 kl. 15:19

8 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Nú jæja, þá veistu hvað ég kem með í afmælisveisluna ...

Nanna Rögnvaldardóttir, 4.4.2008 kl. 15:50

9 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 17:47

10 Smámynd: Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

Þú getur alveg drepið mann.   Hrikalega skemmtileg lesning.........

Prumpubrandarinn alveg húmorinn minn............

Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, 4.4.2008 kl. 17:49

11 identicon

Þetta er alveg hrikalega fyndið.   Það eru einnig til svona frasar um Jack Bauer í 24.  T.d. þessi:  Jack Bauer could strangle you with a cordless phone!

Jóna Björg (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 18:18

12 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Hehehe gaman að lesa þetta

Svanhildur Karlsdóttir, 4.4.2008 kl. 20:43

13 Smámynd: Jens Guð

  Ég er ekki aðdáandi Chucks Norris.  En ég rakst á fréttir þess efnis fyrr á árinu að hann hefði kært höfund og útgefanda bókarinnar á þeirri forsendu að hún væri safn af lygum um hann.  Ekki fylgdi fréttinni hvað upp á hann væri logið í bókinni og út frá þessum sýnishornum átta ég mig ekki á því hvar er rangt með farið.

Jens Guð, 4.4.2008 kl. 22:54

14 identicon

Hei þetta er ekkert broslegt ha,að vera að gera grín að mér.Veit hvar ykkur er að finna,ég steiki svo Rambo.

Chuck Norris (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 23:15

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hhahahahahahahahahha

Guðríður Haraldsdóttir, 4.4.2008 kl. 23:49

16 identicon

Það má benda á www.chucknorrisfacts.com og líka á http://www.chucknorris.com/html/fitness.html. Á síðarnefndu síðunni má nálgast líkamsræktarmyndband með kappanum. Ég drapst næstum úr hlátri og aulahrolli þegar ég sá það.

Máni Atlason (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 109
  • Sl. sólarhring: 153
  • Sl. viku: 1801
  • Frá upphafi: 1453311

Annað

  • Innlit í dag: 92
  • Innlit sl. viku: 1468
  • Gestir í dag: 86
  • IP-tölur í dag: 83

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Cartman
  • Cartman
  • Ömmukaffi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband