Hjólreiðahetja, útrás hringtorga og pínkuponsu bold

Mógilsá í framtíðinniSlapp fremur snemma heim, svona miðað við að það er föstudagur. Tókst að pína aðeins hjólreiðahetju okkar Skagamanna sem kom ásamt hjóli sínu með strætó nr. 15 í Mosó og fékk það síðan geymt í farangursgeymslu Skagastrætó. „Hnuss, á ekki að hjóla heim?“ spurði ég. „Nei, ég má ekki fara á reiðhjóli í göngin,“ svaraði hjólreiðamaðurinn glaðlega, fullur af endorfíni. „Hvað með að fara fyrir Hvalfjörðinn?“ hélt kyrrsetukonan úr himnaríki áfram og leið svolítið eins og djammara sem skammar þann heimakæra fyrir að eiga sér ekkert líf. Hjólreiðamaðurinn sagði okkur sem sátum þarna fremst hjá Gumma bílstjóra að hann hefði nú einu sinni hjólað Hvalfjörðinn og það hefði tekið rúma sex tíma. Hann hætti í vinnunni á hádegi þann daginn og hjólaði þetta í félagsskap með fleiri hraustmennum og –kvendum. Hann sat fyrir aftan mig og sá ekki aðdáunarglampann í augum mínum. Gummi bílstjóri vill meina að þegar koma ný göng, ef verður af Sundabraut, muni koma hjólreiðastígur þar ... kannski loftræstur eða með súrefnisblæstri, nema hjólreiðahetjurnar hjóli hreinlega með súrefnistæki. Annars fréttum við í gær að það kæmi enn eitt hringtorgið við Mógilsá við rætur Esjunnar. Held að það finnist ekki fleiri staðir í Mosó til að skella hringtorgum á og þetta heitir nú bara að færa út kvíarnar. Snilld.

Eric og DonnaÉg rétt náði í skottið á boldinu á Stöð 2 plús. Donna, systir Brooke, slær í gegn hjá Forrester-unum og þykir með afbrigðum kynþokkafullt módel. Svo æðisleg að ástarsorgin vegna Brooke sviptist af Ridge. Skyldi hann gruna að hún verði kannski einn daginn stjúpmóðir hans? Hún og Eric virka nú svolítið spennt á myndinni ... Hin hamingjusama, nýgifta Brooke segir Nick sínum að hún ætli að aðeins að kíkja á myndatökuna en nú myndar prófessjonal kona, Ridge var greinilega bara að taka prufumyndir í gær. Ekkillinn Thorne platar Taylor með út ... og þau enda á AA-fundi. Taylor heldur þar hjartnæma ræðu um aumingja Thorne sem missti konuna sína í bílslysi ... en minnist ekki á hver á sökina ... eða allt sérríið sem hún hefur dreypt á undanfarið. Hlýtur að vera leiðinlegt fyrir hana að koma aftur (eftir að hafa dáið og lifnað við) inn í þessa þætti, nýbúin að fara í margar lýtaaðgerðir hjá eiginmanninum í raunheimum, og þurfa svo að leika alka sem drepur konuna hans Thorne, reyndar óvart.
Brooke fylgist einstaklega fúl á svip með sínum margsinnis gamla eiginmanni, Ridge, sem hún er nýbúin að hafna fyrir Nick, horfa áfergjulega á Donnu í ýmsum korsilettum, greinilega búinn að steingleyma ódauðlegri ást sinni á henni. Þegar myndatökunni lýkur kyssast Donna og Ridge og Brooke verður alveg brjáluð út í Donnu. Hún öskrar: „Þú mátt ALDREI kyssa Ridge!“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég gæti svoleiðis ort ljóð undir undirspili um dós og dásemdarritsnilling og lífskúnstner, alais Gurrí von Himnraíki.  Ljóðið myndi verða afar djúpt og ansi laust úr viðjum. Músíkkin af you-tube myndi ljá því framandlegan, ævintýralegan blæ, með exotískum toppum. How do you do?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.5.2008 kl. 21:09

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hringtorg utan um Mosó...það þarf bara eitt stk.

Haraldur Bjarnason, 16.5.2008 kl. 21:19

3 Smámynd: doddý

hæ gurrí

ef þeir drekka kaffi úr krús eins og í hafnarfirði verða hringtorgin eins mörg og þau skipti sem krúsininni er skelt á skipulagsteikningarnar.   kv d

doddý, 16.5.2008 kl. 21:46

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu óskir um yndislega helgi.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.5.2008 kl. 23:33

5 identicon

það er asnaleg staðsetning fyrir hringtorg... við rætur esju!

Hulda (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 23:41

6 Smámynd: Mummi Guð

Ég er farinn að halda að þeir í Mosfellsbæ hafi keypt eina teikningu af hringtorgi dýrum dómi og þess vegna vilja nýta fjárfestinguna sem best með því að nota þessa teikningu sem mest og oftast. Þess vegna eru öll þessi hringtorg í Mosfellsbæ!

Mummi Guð, 16.5.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Boldið er 100% skemmtilegra þegar maður les um´það hjá þér, það verður einhvernvegin svo mikið fyllra og nánara, skilurðu mig?? knús í helgarlífið í himnaríki.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.5.2008 kl. 00:03

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gaman að fylgjast með Boldinuhjá þér af og til - mar getur bara haldið þræði!

Nú hjóla ég í vinnu á hverjum degi, það eru ca 8,3 fram og til baka. Ég væri sko alveg til í að hjóla til RVK ef það mætti fara í gegn um gönginn!  Ég man þá tíð þegar við gátum tekið hjólið í Akraborgina og hjólað í bænum og farið í búðir - það var dýrðlegt!

Edda Agnarsdóttir, 17.5.2008 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 214
  • Sl. sólarhring: 305
  • Sl. viku: 1927
  • Frá upphafi: 1453088

Annað

  • Innlit í dag: 191
  • Innlit sl. viku: 1580
  • Gestir í dag: 187
  • IP-tölur í dag: 186

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Tengdamömmur
  • Kamilla, Inga, Gerry
  • Frændfólk mitt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband