Af bæjarferð, veðmálum og símarugli ...

Phil CollinsÞjóðverjum gengur bara vel í leiknum. Ég hefði veðjað á þá í veðbankanum í vinnunni ef ég væri ekki í sumarfríi. Annars sat svolítið fast í mér það sem ég las í blaði fyrir skömmu að þeir sem halda með Þjóðverjum líta á Phil Collins sem flottan tónlistarmann. Well, ég myndi nú aldrei kaupa sólóplötu með honum en hann var góður í Genesis í gamla daga (Selling England by the Pound, Foxtrot o.fl.) en líklega var það Peter Gabriel sem setti standardinn þar á bæ.

Ástandið í Mosó í dagVið erfðaprins skruppum í bæjarferð í dag þrátt fyrir fádæma bensín-nísku upp á síðkastið. Sumir ganga lengra en aðrir í sparnaði og við lentum fyrir aftan tvo aðila sem óku á 70 km/klst. Þann seinni (venjulegur fólksbíll) rétt áður en við fórum í göngin á heimleið. Við veðjuðum (upp á ekki neitt), erfðaprinsinn sagði að viðkomandi myndi aka á 50 í gegnum göngin en ég sagði 70. Hvorugt sigraði. Karlskrattinn ók á 60. Ekkert ólöglegt en svakalega var röðin orðin löng fyrir aftan hann. Svo mættum við líka bílalestum en þetta var þó ekkert á við að vera í umferðinni ógurlegu í Reykjavík á háannatíma.

 

Nokia 3310 krúttiðÉg fór í búð í Ármúlanum, man ekki hvað hún heitir en þar fást sjónvörp og slíkt OG loksins batterí í fornaldarsímann minn frá Nokia, 3310-símann sem uppáhaldsfrænkurnar, Margrét og Dagbjört, gáfu mér um árið. Aðalgemsanúmerið mitt er staðsett í þeim síma sem drepur á sér við hverja hringingu í hann. Ég rétt næ að öskra: „Hann er að drepa á sé ...“, hef notað þetta krútt í SMS-in, enda einfaldur og þægilegur sími. Nýi síminn sem erfðaprinsinn gaf mér í jólagjöf hefur innanborðs vinnunúmerið mitt og ég verð að hafa hann tiltækan. Ég er svo lítill græjusjúklingur að mér finnst tímasóun að verja kvöldstund í að læra á hann. Ef ég ýti á c-ið eða mínus þá fer kvikindið að taka upp tautið í mér (record-kjaftæði eitthvað). Ef ég gleymi að læsa honum og rek töskuna mína í fer hann að spila tónlist sem fylgir einhverjum leik. Nei, ég er upptekin kona og kýs einfaldleikann í símum. Ég á myndavél og þarf hana ekki í síma. Verst að gamli hlunkurinn (elsti Nokia-snúllinn) var kominn að fótum fram þegar ég lagði honum eftir margra ára notkun, og ég keypti hann notaðan á sínum tíma. Rafhlaðan í þennan þótti forngripur og kostaði yfir 4.000 kall en var alveg þess virði. Dugir í þrjú ár. Jamm, það sem ég ætlaði að segja var að þjónustan þarna var alveg frábær!

Eftir Hugleik DagssonNý Hugleiks-teiknimyndabók var að koma út, Ókei bæ tvö, og virðist sama snilldin og hinar bækurnar hans. Svo var að koma út í kilju Engin spor eftir Viktor Arnar Ingólfsson, það verður gaman að rifja hana upp. Minnir að hún hafi verið góð.

Fékk líka í hendur ansi girnilega safnplötu (diska) sem heitir 100 bestu lög lýðveldisins. Líst ansi vel á hana.

Svo líður að því að Lífsreynslusögubókin 2008 fari að koma en hún inniheldur 15 splunkunýjar lífsreynslusögur og 35 eldri. Ég sat sveitt yfir henni öll kvöld og helgar um nokkra tíð og afraksturinn fer að koma. Verst að sitja í sumarfríi á Skaganum þegar ég ætti að vera með puttana í hlutunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Viktor ARnar er nú ættaður héðan að norðan, það eru nú næg meðmæli út af fyrir sig!

En þetta 100 eitthvað nuna ár eftir ár er ekkert annað en peningaplokk ónefndrar útgáfu, marg- og síendurútgefið efni, sem eiginlega ekkert kostar að gefa út en er jafnan selt dýrum dómum!

En Gurrí, þú ert auðvitða dásamleg o ggangi þér vel með nýju bókina!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.6.2008 kl. 00:27

3 Smámynd: Laufey B Waage

Lestarstjórar eru ömmur pirrandi (enn meira pirrandi en afar pirrandi) í umferðinni.

Mæli með að þú fáir erfðaprinsinn til að kenna þér á nýja símann - og notir einn síma í allt sem þú þarft og vilt. Setjir Nokia 3310 í safnhilluna hjá þjóðbúningadúkkunum. 

Laufey B Waage, 20.6.2008 kl. 09:31

4 identicon

Koma þessar lífsreynslusögur líka í skvísublaðinu Vikan ????

Ein forvitin

Hafðu það sem allra best í sumarfríinu

Jonna (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 12:21

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehehhe, það er kúl að hafa tvo síma, Laufey. Mér þykir allt of vænt um 3310 til að leggja honum næstu árin.

Magnús, þetta "100 eitthvað" er samt einstaklega vel heppnað "eitthvað". Ægigaman að hlusta á gömul og góð uppáhaldslög. Hefði samt frekar viljað Kveðjustund með Upplyftingu en fja ... Góður vinur-lagið sem ég hef aldrei þolað.

Guðríður Haraldsdóttir, 20.6.2008 kl. 12:24

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, örugglega Jonna, bara seinna og þá sem "Gömul og góð" saga, hugsa ég.

Guðríður Haraldsdóttir, 20.6.2008 kl. 12:25

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Já Gurrí mín,

Það er þetta með mis-krúttlegu sumarhljóðin.  Ekki stoppum við blessaðar kisurnar í sínum ekkert allt of fögru ástarhljóðum, þ.e. breiminu.  (Amma var reyndar vön að skvetta köldu vatni á háværustu högnana og varla varð þeim nú meint af því,  þeir færðu sig hins vegar aðeins fjær og þá var tilganginum náð).

En hvað er að þessu fólki, sem er að skrattast með hávær tæki á borð við bor- og sláttuvélar á ótrúlegustu tímum sólarhringsins ?  T.D. snemma kvölds þegar verið er að svæfa litlu börnin, snemma morguns um helgar þegar vinnandi fólk á að fá að sofa út,  eða  um hánótt þegar allir sem það vilja eiga að fá að sofa  svefni hinna rétt-  og ranglátu.

Þó að margt megi út á Þjóðverja setja, eru þeir með afar strangar reglur um svona hávaðamengun í íbúðahverfum.   Sem allir hlýða ! 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.6.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 411
  • Frá upphafi: 1445638

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 358
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband