Nóg að gera í himnaríki ...

HaffiNóg að gera í himnaríki núna. Formúlan í sjónvarpinu og þáttur Sverris Stormsker að hefjast í endurtekningu, nú getur fólk heyrt hvað það er sem Sverrir sagði við Guðna sem orsakaði það að sá síðarnefndi rauk á dyr ... www.utvarpsaga.is, og Hlusta í beinni.

Svo ætla tvíburarnir hugumstóru, Úlfur og Ísak að skreppa í pikknikk á Langasandinn með ömmu, afa og fleirum á eftir. Kannski maður klæði sig á þessum letidegi og hitti litlu elskurnar á sandinum.

Fór í sumarbúðirnar í gær og heimsótti Hildu. Gætti þess auðvitað vandlega að hitta á vöffludag ... fékk heitar vöfflur með súkkulaðiglassúr og rjóma sem er einstaklega góð samsetning og minnir á bolludaginn og jólin í einum pakka.Sjálfur Haffi Haff mætti um kvöldið sem leynigestur og trylltust unglingarnir af gleði, enda er Haffi einn sá heitasti í bransanum núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er að hlusta á Sverri og bíð spennt eftir vendipúnktinum.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 14:04

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Endilega klæða sig og skreppa í pikknikk :) ekki á hverjum degi sem maður kemst í svoleiðis með svona töffurum njóttu dagsins

Guðrún Jóhannesdóttir, 3.8.2008 kl. 14:08

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Algjörlega laus við löngun til að heyra þetta blessaða viðtal, svo mikið búið að söngla um það. En báðir þessir "Lallar" hafa átt sína góðu spretti blessaðir og mér þótt þeir oft skemmtilegir. Hins vegar mistækir báðir eins og gengur og þá kannski Guðni meir og með afdrifaríkari hætti.(enda vel að merkja búin að vera í öllu veigameira brasi en Sverrir lengst af!)

Magnús Geir Guðmundsson, 3.8.2008 kl. 16:27

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús á þig ljúfust

Kristín Katla Árnadóttir, 3.8.2008 kl. 19:00

5 Smámynd: Heidi Strand

Guðni kvaddi kurteislega og gékk út í sólina.

Heidi Strand, 3.8.2008 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 142
  • Sl. sólarhring: 281
  • Sl. viku: 2101
  • Frá upphafi: 1452301

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 1703
  • Gestir í dag: 127
  • IP-tölur í dag: 127

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baby reindeer
  • Ove Otto
  • Gísli gerir Mart-einn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband