Algjört bold

Þetta sagði völva Vikunnar m.a. um síðustu áramót:

Völvuforsíða 2007„Fjármálakreppa er fram undan á Íslandi, eins og við höfum séð undanfarið, og blaðran er að springa. Það verður hrun á peningamarkaði og það syrtir í álinn hjá fólki aðeins meir en nú er. Við þurfum að ná botninum til að ná jafnvægi aftur. Það verður hrun hjá sumum og nýtt upphaf hjá öðrum ...

... Mikið tap verður hjá stóru fjármálafyrirtækjunum og ýmsar sviptingar og neikvæðar breytingar hjá bönkunum líka. Það á eftir að næða eitthvað um Seðlabankann, ég sé stríð í kringum Davíð og fjármálamenn, mér finnst líka hluti ríkisstjórnar blandast í það.“

 

Boldið var með ólíkindum spennandi í morgun en endursýning á því féll niður seinnipartinn í gær vegna hins boldsins. Taylor heldur áfram að sálgreina Nick og fær ýmislegt miður geðfellt upp úr honum, m.a. það að mamma hans, Jackie hin glæsta, hafi átt marga elskhuga sem greiddu fyrir atlotin. Þegar Taylor er komin heim og les skýrslu um Nick upphátt inn á segulband hlustar Stefanía, helsti hatursmaður Jackie, með mestu athygli, en Taylor skildi eftir opið og sneri baki í dyrnar, svona eins og maður gerir þegar um viðkvæmar trúnaðarupplýsingar er að ræða. Taylor tókst, þrátt fyrir allt bótoxið, að verða skelfingu lostin á svipinn þegar Stefanía birtist óvænt og sagði gribbulega: „Jæja, svo Jackie var gleðikona, en áhugavert!“


mbl.is Gengi krónu fest tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það var ekki meiningin að öskra þessa færslu. Letrið varð bara svona alveg óvart.

Guðríður Haraldsdóttir, 7.10.2008 kl. 12:03

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ét alla mína trefla til heiðurs völvunni.  Ég sem dissaði hana í fyrra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.10.2008 kl. 12:37

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Og ég átti ótrúlega erfitt með að að trúa þessari bölsýni ... og gerði eiginlega ekki, allt gekk svo rosalega vel, hélt ég.

Guðríður Haraldsdóttir, 7.10.2008 kl. 12:40

4 Smámynd: Bragi Einarsson

Hvernig væri að þessi Valva væri nú gerð að fjármálaráðherra, seðlabankastjóra og forsætisráðherra! Það myndi spara þjóðinni mikið!

Bragi Einarsson, 7.10.2008 kl. 12:47

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hugsaði einmitt þegar ég sá letrið, "mín skapstór í dag" þessi völva er klár ekki spurning, held samt ég éti ekkert sem er prjónað eða saumað.  Takk fyrir bold update, hef verið löt í sjónvarpsáhorfi.  kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 7.10.2008 kl. 13:31

6 Smámynd: www.zordis.com

Ansi getspá Völvan ... það eru væntanlega margir sem vildu hafa þessa hæfileika núna á þessum erfiðustu tímum.

www.zordis.com, 7.10.2008 kl. 14:05

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

VÖLVUNA Í SEÐLABANKANN STRAX

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 14:30

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhaha, já, beint í Seðlabankann með hana.

Guðríður Haraldsdóttir, 7.10.2008 kl. 14:36

9 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Í alvöru,fáum völvuna sem ráðgjafa ríkisstjórnar og þess sem eftir er af bönkunum

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 7.10.2008 kl. 15:35

10 identicon

frænku baby

getið þið ekki talað við völvuna og fengið jákvæðar fréttir maður er orðin svo ruglaðir í þessu öllu að það hálfa væri helling of mikið. Stundum ætlar Plútín að lána okkur af því við eigum enga vini en svo er sænski bankin tilbúin að lána okkur og er vinur okkar  hvað er í gangi ætli þessir menn hafi bara ekki gleymt að hringja i norðurlandaþjóðirnar og byðja um hjálp?  4 gengi i gangi er furða að við séum rugluð?

annars góðar kveðjur úr neðri Bláfjöllum

tanta (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 17:20

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að það væri ekki galið að tékka á málum núna. Annars er Yoko Ono að koma og þá hlýtur allt að bjargast!

Guðríður Haraldsdóttir, 7.10.2008 kl. 17:24

12 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sammála næstsíðasta ræðumanni...er ekki hægt að fá Völvuna góðu til að koma með smá svon innspýtingu...sýna okkur aðeins lengra inn í nánustu framtíð???

Bergljót Hreinsdóttir, 7.10.2008 kl. 17:39

13 identicon

 íslenskt og Ameríkst bold.Verður svo rússnekst bold eftir áramót eða næstu mánaðarmót

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 21:29

14 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Wooow glúrin var hún Völvan.

Væri gott að fá aukaspá frá henni núna til að róa landann

Einar Örn Einarsson, 7.10.2008 kl. 22:39

15 Smámynd: Brynja skordal

já var einmitt búinn að skoða þetta aftur hjá völvunni ótrúlega vel sjáandi völva takk fyrir bold Góða nótt Elskuleg

Brynja skordal, 7.10.2008 kl. 23:40

16 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Við þurfum fleiri völvuspár, hvernig væri að koma með vetrarspá?  Bara svo við vitum hvað kemur næst

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.10.2008 kl. 01:51

17 identicon

Ég fékk nú bara hellu fyrir eyrun, ha, hm.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 11:56

18 Smámynd: Haukurinn

Tja, getur verið að hún hafi kannski verið búin að spá þessu áður?

Verð að viðurkenna að ég hef hingað til átt erfitt með það að trúa orðum hennar, sem oftast voru á þá leið að hún sæi fram á "umhleypingar í náttúru og stjórnmálum" - sem eru mikið til reglulegir atburðir á Íslandi.

Haukurinn, 8.10.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 189
  • Frá upphafi: 1445654

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 175
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband