Fokið í bæinn, gleðiefni, fitubollurannsókn og fleira

Kjalarnes í morgunÞað hvein og brast í öllu í himnaríki þegar vekjaraklukkan hringdi kl. 6 í morgun. Rosalega langaði mig að sofa lengur, enda hafði ég ekki tímt að sleppa bókinni hans Stefáns Mána fyrr en klukkan var að verða eitt í nótt ... og er að verða búin með hana. Á mér sannaðist það sem sagt er um mömmur, að þegar þeim sjálfum er kalt skipa þær börnunum sínum til að fara í hlýrri peysu, húfu og vettlinga en ég breiddi aukateppi yfir erfðaprinsinn og lokaði gluggunum, það var hrollkalt í himnaríki. Dreif mig í tölvuna og sá að hviðurnar á Kjalarnesi dingluðu þetta 35-40 m/sek ... en vindáttin var þó vel hagstæð, eða norðvestlæg, austlægu kvikindin eru verst.

Við Ásta brunuðum því með latte í hönd eftir þjóðveginum og hún með óperusöngvarann Óskar Pétursson á hæsta syngjandi POPPlög! Ég reyndi að fitja upp á samræðum til að hún lækkaði og sagði lágt við hana: „Ég er að fara í hóf á laugardaginn!“ „HÓF? Mikið er mín hátíðleg í dag,“ sagði Ásta og barði mig í andlitið með saltfiski ... en lækkaði í tónlistinni. Þetta var ótrúlega hressandi uppákoma, ég glaðvaknaði alveg. Við sáum jeppa ofan í skurði á Kjalarnesinu, skömmu síðar fórum við framúr stórum trukki og mættum svo Skúlastrætó í Kollafirðinum á leið á Skagann. „Þessi hefur fokið út af,“ sagði Ásta greindarlega. „Ja, ertu viss?“ spurði fíflið ég. „Ekki fauk stóri trukkurinn og ekki heldur strætó ... báðir ættu að taka mikinn vind á sig,“ bætti ég heimskulega við. „Hvaða erindi á þessi bíll ofan í skurði?“ heyrðist úr ökumannssætinu og andrúmsloftið hrímaði vegna heimsku minnar. Það eina sem ég gat sagt var: „Hehe, ég var auðvitað að djóka!“ Og slapp með skrekkinn!

Enn ein spennandi rannsóknin hefur litið dagsins ljós, heyrði ég á Bylgjunni í morgun. Fitubollur þurfa, samkvæmt henni, að borða meira en mjónustangir til að fá gleði og ánægju (dópamín) út úr máltíðinni. Ég held að það ætti frekar að kíkja á samsetningu matarins hjá fólki yfir kjörþyngd, ekki magnið. Sem minnir mig á að það verða kjötbollur í matinn í hádeginu. Steingleymdi að kippa með mér ávexti í morgun ... morgunmatur hér hefst kl. 8.30, ég veit hver fær sér bláberjabúst í fernu og banana.

Skyldi það vera rétt sem ég heyrði og slúðraði um á blogginu um daginn að nýju bankastýrulaunin væru 950 þúsund á mánuði? Ef það kemur í ljós munið þá hver skúbbaði með þetta!!! Þetta þykja náttúrlega hlægilega lág laun miðað við það sem hefur verið og ekki gaman að láta hlæja að sér fyrir að sætta sig við þetta.

Munið að hafa það gott í dag, það er hægt að gleðjast yfir mörgu. Ingibjörg Sólrún er komin tvíefld til landsins, ráðamenn segja að svar vegna lána komi á fimmtudaginn, ekki á að taka neinum afarkostum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, heyrist mér ... og síðast en ekki síst: Jón Ólafsson er kominn til landsins og ætlar að bjarga okkur! Sjá www.dv.is

P.s. Litla fallega stúlkan sem ég fékk í afmælisgjöf 12. ágúst sl., munaði bara 10 mínútum að hún yrði nákvæmlega 50 árum yngri en ég, var skírð á laugardaginn og heitir nú Ragnheiður, kölluð Gurrí (held ég). Flott nafn, sætt barn, æðislegur afmælisdagur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var að klára bókina hans Stefáns Mána og mér finnst hún ótrúlega spennandi vegna þess að hún er svo "right on the money" með það sem er að gerast.

Græðgin, siðleysið og harkan er eins í undirheimunum og fjármálaheiminum.

Ekki spurning.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.10.2008 kl. 08:29

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég reyndi að fitja upp á samræðum til að hún lækkaði og sagði lágt við hana: „Ég er að fara í hóf á laugardaginn!“ „HÓF? Mikið er mín hátíðleg í dag,“ sagði Ásta og barði mig með í andlitið með saltfiski ... en lækkaði í tónlistinni.

Æ takk fyrir Gurrí mín....það er svo gott að skella svona uppúr snemma dags. Þú ert nú meiri gleðikonan!!! Eigðu góðan dag og njóttu matarins. ÁSTARKVEÐJA úr Vesturbænum

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.10.2008 kl. 08:30

3 identicon

sæl Frú Gurrí.

er þetta bók sem vert er að taka með sér í ferðalag? Kanski ég ætti að kaupa mér hana áður en ég fer af landi í næstu viku, ég er flúinn land. Læt ekki bjóða mér þetta meir, hver ræður hér landi? mér sýnist allir vera að benda á hvern annan og seigja þetta er þessum að kenna ekki mér. Er fyrir löngu búin að missa allt álit á íslenskri pólitík, fannst hún Ingibj selja sig heldur betur til sjálfstæðismanna, mun aldrei geta kosið hana aftur fyrir það ófyrirgefanlega að fara í eina sæng með mínum gamla flokki Sjálfstæðismönnum.

kveðja siggi

siggi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 12:22

4 identicon

Ég vil hér með lýsa ánægju minni með það, að farið er nú að fyrirmælum mínum í hvívetna, nú á þessum krepputímum, en berlegt er að stórdregið hefur úr orkufreku knúsi hér á síðunni, og er það mikil framför. Nýlegar rannsóknir sýna fram á að eitt saklaust knús sóar sem nemur orkuinnihaldi heimasneidds þrumara með þykku smjöri! Verði áframhald á þessari ánægjulegu þróun, má vera að síða þessi fái vottun þess efnis frá Ríkisflokknum, hm.  

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 12:31

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðmundur, ég fékk knússjokk þegar farið var að bjóða upp á að bloggvinir sendu sérstakt knús hverjir til annars. Þetta drap alla knúsþörf mína til margra ára og ég enda t.d. alla tölvupósta á: Með hnúum og hnefum, Gurrí. Allt þér að þakka.

Siggi, hræðilegt að þú sért að flytja, láttu mig vita hvert og hvernig er ... kannski kem ég bara til þín/ykkar. Verð skemmtilegi nágranninn við hliðina og sonna ... hehehehe, er með gurrihar@gmail.com. Ráðleysið er vissulega mikið, enda aldrei jafnmikil krísa herjað á okkur síðan svarti dauði forðum, held ég. Stefán Máni ætti að verða góður ferðafélagi, mér finnst þetta mjög spennandi bók sem ég hlakka til að klára í kvöld.

Risaknús til allra, sérstaklega Guðmundar!

Guðríður Haraldsdóttir, 20.10.2008 kl. 12:41

6 identicon

Sæl Frú Gurrí. 'Eg er nú ekki alveg að yfirgefa landið fyrir fullt og allt, ég kem aftur að ég held, ekki nema Italia vinni hug minn og hjarta. Matarlega hefur það núþegar gert það  núþegar eru garninar farnar að gaula í mér, þeim hlakkar svo til að fá hin góða 'Italska mat í toskana. Fer og kaupi S-Mána mér til uppliftingar.

kveðja siggi

ps. ekki gleyma að gera handa þér góða grautinn, nú veitir manni ekki af góðum graut í byrjun dags þegar vindar fara að blása og kuldaboli blæs manni í kinn, þannig að kinnar verða eins og falleg Jólaepli rauð

siggi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 13:11

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sjitt, mar. En ... var að vona að þú ætlaðir til Færeyja. Ítalía er of mikið pödduland fyrir mig, held ég. Múahahahah Þarf að finna grautinn aftur, þ.e.a.s. uppskriftina og prófa. Gott að þú ert ekki að fara fyrir fullt og allt.

Guðríður Haraldsdóttir, 20.10.2008 kl. 13:32

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús á þig elsku Gurrý mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.10.2008 kl. 14:03

9 identicon

Er ekki málið að flytja bara til ... ja Finnlands? kannski Svíþjóðar???

Lítill áhugi hjá mjög mörgum að búa á Íslandi i dag..... held ég sé á sama máli bara...svei mér þá..

Einar (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 15:51

10 identicon

ég elska pöddur, mitt uppáhald var stór svört könglu sem var fyrir ofan bekkinn sem ég lá alltaf á þegar ég heimsótti Bali, og snákurinn sem synti með mér í sjónum, DONT TOUCH

siggi (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:16

11 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ Gurrí mín. Hjartans kveðjur héðan úr Elfulandi. Hér er logn og góð veðurspá fyrir næstu daga, en rignir í dag eftir himneskan dag í gær. Ég skal reyna að koma með gott veður til baka til ykkar. Hlakka til að hitta þig aftur!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.10.2008 kl. 17:29

12 identicon

Hahahaha...Gurrí þó. Ég þarf greinilega að lesa bloggið þitt á hverjum degi en ekki bara öðru hvoru, sé að þú hefur opinberað kvikindishúmorinn minn fyrir alheimi...tjah...eða bloggheimi. Næst þegar ég sé eistu í brauðrist segi ég þér sko ekki frá því...en ef ég sé Eista í brauðrist skal ég segja þér það. Þá fyrst værirðu komin með krassandi sögu!!!

Hrund (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 411
  • Frá upphafi: 1445638

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 358
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband