Skítakuldi, kenning Kalla sænska og Alkasamfélag Orra

freezing1Það var ekki kalt á stoppistöðinni í morgun, það var SKÍTKALT. Við tölum um grenjandi rigningu, fljúgandi hálku ... og skítakulda. Tvennt af þessu var í gangi í morgun en ... ekki svo margir dagar eru í það fyrstnefnda eða blessaða rigninguna.  Mikið hlakka ég til að geta farið í regnstuttbuxunum mínum í vinnuna aftur. Skúli kom okkur á hárréttum tíma í Háholt, leið 15 var akkúrat að renna inn á stoppistöðina og við hlupum eins og við ættum lífið að leysa úr leið 27 yfir götuna til hans Haraldar. Ef móðirin með barnið hefði verið nær mér hefði ég staðið upp fyrir henni, ég óttaðist mest af öllu að einhver myndi stela sætinu ef ég stæði upp og næði í hana. Það hefði nefnilega verið gaman að standa í strætó og þykjast detta á sæta menn í "hreppstjórabeygjum" Haraldar bílstjóra ... eða hringtorgunum.

Kalli, hinn sænski samstarfsmaður minn, er voða hrifinn af hrifningu minni á Stieg Larsson (Karlar sem hata konur). Hann vill meina að höfundur bókanna þriggja sé í raun að skrifa um fullorðin Kalla Blómkvist og Línu Langsokk ... (Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander). Kalli sagðist geta lánað mér hinar tvær bækurnar ... á sænsku. Er séns að einhver hér í bloggheimum geti kennt mér sænsku á mettíma?

Annars las ég Alkasamfélag Orra Harðarsonar í gær og fannst hún skrambi góð. Orri lítur á AA-samtökin sem sértrúarsöfnuð og er ekki hrifinn. Ég fór reyndar á frábært S.Á.Á. fjölskyldunámskeið 1987 en eftir það prófaði ég nokkra Al Anon-fundi (aðstandendadæmi AA) en fann mig aldrei þar, einhverra hluta vegna. Kannski út af trúardæminu. Samkvæmt bókinni er ég á hnefanum og næ aldrei bata ... því er nefnilega líka haldið fram að aðstandendur VERÐI að sækja fundi til að hrapa ekki ofan í gryfjur meðvirkni og vanlíðanar ... og fell þá kannski næst þegar ég sé gamla, blinda konu reyna að komast yfir götu og býð fram aðstoð. Þannig myndi meðvirkni mín tefja konuna frá því að læra að bjarga sér ... sumir rugla algjörlega saman hjálpsemi og meðvirkni. Annars hafa AA-samtökin hjálpað mörgum, þekki nokkra afar ánægða þar sem hafa náð góðum árangri, EN það sama hentar bara ekki öllum, við erum svo ólík og ein leið getur því aldrei verið sú eina rétta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.10.2008 kl. 11:26

2 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Lestu bara sænskuna, ekkert mál. Svo hringirðu bara í mig ef þig vantar orð (ég hef aldrei lært sænsku en sænskar spennusögur eru bara svo góðar!!!!) - þurfti einu sinni að þýða smá brot úr ljóði úr sænsku og það gekk ágætlega þar til ég fann orðið ,,struntar" ekki í orðabók. Hringdi í Ernu Indriða, sem lærði í Svíþjóð, og hún gaf mér þýðinguna: Gefa skít í ... þannig að þetta er bara danska með nokkrum skrýtnum orðum og vinkonu hinu megin við símalínuna ;-) - og svo varðandi hitt dæmið: One size fits all, hefur alltaf verið della!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 27.10.2008 kl. 11:58

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég tala sænsku betur en Karl Gústav (sem er ekki svo merkilegt, múha).

Ég skal kenna þér á methraða.  Nú eða Anna eða Anna. Jenný Anna er alltaf til.

Rosalega eru sumar nafngiftir ófrumlegar.

Alkasamfélagið er áhugaverð bók og ég er hrædd um að hún verði þögguð í hel, það er ekki mikill stemmari fyrir umræðu í sumum leynifélögum.

Meðvirkni?  Já það er víðtækur misskilningur í gangi hvað varðar hana.  Eins og þú segir maður má ekki rétta hjálparhönd þá er meðvirknin að versna.

Alls ekki hjálpa gömlum konum yfir götu - það er ÓGEÐSLEG meðvirkni.

Loveu

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 13:20

4 Smámynd: Marilyn

Ég ætla að reyna að taka sem minnst þátt í umræðum um bókina hans Orra en langar að benda á að það stendur skýrum stöfum í AA-bókinni að þetta (12 sporaleiðin sem bent er á í bókinni) sé hugsanlega ekki eina leiðin til bata og að þeir (höfundar bókarinnar og samfélag þeirra sem nýtt hafa sér kenningar hennar) taki glaðir hattinn ofan fyrir þeim sem finna aðra lausn.

Að því sögðu tek ég minn ímyndaða hatt ofan fyrir Orra og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. 

Marilyn, 27.10.2008 kl. 13:27

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að Orri hafi fremur gagnrýnt að AA -fundir væri skylda á hinum "ýmsustu" stöðum, t.d. í eftirmeðferð og brottrekstrarsök að mæta ekki, og jafnvel hjá fangelsunum, hann segir að þegar t.d. ákveðinn þingmaður lauk afplánun sinni í fangelsi fór hann á Vernd og þurfti að fara reglulega á svona fundi ... viðkomandi er bindindismaður.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.10.2008 kl. 13:42

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jáhhhh ég er ógeðslega meðvirk og les bara mitt eigið blogg ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 14:29

7 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Taktu mark á Önnunum Gurrí mín og helltu þér út í að lesa sænsku. Hún er að verulegu leyti eins og íslensk mállýska og þó þig vanti orð á stöku stað spillir það ekki heildarskilningnum. Ég veit þú átt eftir að skella upp úr hvað eftir annað -- bara af því það er svo gaman að lesa sænskan texta!

Sigurður Hreiðar, 27.10.2008 kl. 14:39

8 Smámynd: Marilyn

Er búin að sjá og lesa viðtöl við hann og hann hafði reyndar ekki talað um þetta þar (þetta með skyldumætinguna sem er þá eitthvað stjórnsýslu eða meðferðarbatteríis "red-tape" og á ekkert skylt við AA-samtökin sem slík - AA og SÁÁ er ekki það sama). En hann var að tala um í þessum viðtölum hvernig þetta (AA og 12 sporin) væri kynnt sem eina rétta lausnin, hvernig þetta væru trúarsamtök og fordóma fólks í AA-samtökunum gagnvart þeim sem ekki voru að ná lausninni, þess vegna ákvað ég að koma með þessa ábendingu.

Annars er ég auðvitað ekki búin að lesa bókina svo ég ætla að hafa sem fæst orð um þetta. 

Marilyn, 27.10.2008 kl. 15:04

9 identicon

hæ gurry min .

 mér finst að það hafi allir gott af þvi að lesa AA bókina .

það er nú svoleiðis að það hentar ekki öllum það sama .

En hver hefur ekki gott af þvi að vinna í sjálfum sér , og skoða sjálfan sig og sina hegðun, og breyta þvi sem hún getur breytt  og hafa vit til að greyna þar á milli .

margir þurfa á þvi að halda td v/ uppeldis, vanliðan ,ýmisa vandamála sem kemur upp i lifinu .

það er lika talað um trúna en við trúum á svo misjafnt og það er bara gott en aðalmálið er að trúa á eitthvað , td er ekki slæmt að hafa meiri trú á sjálfan sig og lifa á innri ró .

kv mæja

maria (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 15:05

10 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þegar ég var í félagsfræði í HÍ þurfti ég að lesa langa og lærða grein um hvítasunnusöfnuðinn á sænsku. Þar voru allir alltaf að doppa. Ég hélt að fólkið í þessum söfnuði væri allt örgustu dópistar þar til ég fékk þá skýringu að doppa er niðurdýfingarskírn.

Helga Magnúsdóttir, 27.10.2008 kl. 19:47

11 Smámynd: Kreppa Alkadóttir.

Orri kallinn hefur heldur betur farið fram úr sjálfum sér með því að skrifa þessa bók, sumir halda að þarna sé einhver nýr sannleikur á ferðinni en það er ekki málið, margir hafa skrifað bækur um reynslu sína sem alkar og telja sig hafa höndlað sannleikann með hvað sé besta leiðin og er það yfirleitt einhverjar sérleiðir sem hafa verið reyndar í mörg ár en ekki borið árángur, það sama er að segja með bók Orra þetta er leið sem margir hafa reynt að fara að vera edrú á sjálfsþekkingunni einni saman en það stríðir gegn öllu sem vitað er um alkóhólisma.

Það sorglega er að þeir sem hafa skrifað bækur um sína reynslu eða látið skrifa um sig bækur eftir svona stutta edrúmennsku hafa flest allir dottið aftur í það og hafa sokkið mikið dýpra en áður, þessir alkar eiga flestir erfitt með að snúa til baka eftir það því skömmin er svo mikil að þeir megna ekki að horfat í augu við hana.

Ég vona svo sannarlega að Orri nái að halda sér edrú á sjálfsþekkingunni einni saman en það er ekki miklar líkur á því samanber reynslu annarra.

Í sambandi við meðvirknina þá ert þú eitthvað að rugla saman hvað meðvirkni og hjálpsemi er því þetta dæmi með gömlu konuna er hjálpsemi ekki meðvirkni og þetta myndir þú kannski vita ef þú stundaðir fundi í dag og hefði unnið prógrammið:)

Eitt verður þú samt að hafa á hreinu að það er hvergi talað um í AA bókinni að alkinn verði að stunda AA fundi og í reynd er varla minnst einu orði á AA fundi í bókinni þá ekki nema kannski í reynslusögunum, þetta kemur frá SÁÁ og fólk má ekki rugla þessu tvennu saman enda tvennt ólíkt.

Kreppa Alkadóttir., 27.10.2008 kl. 21:03

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kreppa Alkadóttir hlýtur að fara að opna ráðgjafastöð......fyrir ALLA.

Segðu mér; hvar eru bestu að versla bíla og eldhúsgardínur?

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 21:33

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Afsakið að ég gríp frammí hér.

En Kreppa góð, þú verður að skilja gálgahúmor Guðríðar varðandi meðvirknina.

Sjáðu, sko sem dæmi er hún alveg hætt að kommenta á minni síðu aþþí hún telur sig meðvirka í rökræðu minni um sjálfan mig.

Góðar stundir...........

Þröstur Unnar, 27.10.2008 kl. 21:39

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Æj.... það er svo leim að útskýra brandara........... ;)

....og Þröstur - þér er fyrirgefið! 

Hrönn Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 22:38

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég kom einmitt inn hér aftur til að útskýra fyrir Þresti að það á ekki að útskýra brandara, það útskýrir sig sjálft.

En Hrönn var á undan mér - great minds think a like

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 22:44

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það má sko alveg útskýra brandara ef einhver missir sig hérna á meðan ég er að lesa! Takkkk! Farin að kommenta hjá Þresti!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.10.2008 kl. 23:09

17 Smámynd: Kreppa Alkadóttir.

Það er bara gaman af því þegar maður misskilur eitthvað, gott að átta sig á að bloggeiandi er ekki svo vitlaus eins og hann virtist í fyrstu.

Jenný kannski ég geri það, eitthvað hitti þetta þig illa sem ég sagði kannski það hafi verið sannleikskornið í þessu sem snerti við þér því yfirleitt kemur ekki eitthvað illa við mann nema það snerti innstu strengi;)

Kreppa Alkadóttir., 27.10.2008 kl. 23:59

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta hittir mig svakalega illa fyrir - jájá.

Gaman að þessu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.10.2008 kl. 00:01

19 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahhaahah, ég dey!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 28.10.2008 kl. 10:05

20 identicon

Guð minn almáttugur Helga...ég hefði dáið...langa og lærða grein um hvítasunnusöfnuðinn á sænsku...ég hefði hætt í náminu

Þið eruð æði konur!! Það er hryllings leim að þurfa að útskýra brandara

alva (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 10:22

21 Smámynd: Aprílrós

innlitskvitt ;)

Aprílrós, 28.10.2008 kl. 16:15

22 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar kveðjur:)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.10.2008 kl. 16:21

23 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

knús og innlits-kvitt..

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 28.10.2008 kl. 21:37

24 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Knús á móti og góða nótt, elskurnar! Bloggletin (annríkið) að fara með mig í dag, sá samt boldið og það var djúsí ... sundurklipptur brúðarkjóll Taylor og alles ...

Guðríður Haraldsdóttir, 28.10.2008 kl. 23:18

25 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þetta heita líka "sénsabeygjur", Gurrí mín.

Sé að þú ert komin með svo marga sænskukennara að mér er ofaukið.   Prata annars sjö sænskar mállýskur, t.d. Skaansku og Smálensku, þannig að þú hefðir getað valið... (Bendi svo á að núorðið er alveg harðbannað að gera grín að "Knugen", þar sem hann svo orðblindur, blessaður, að hann getur ekki skrifað nafnið sitt, eins og margur steypuklumpurinn er til vitnis um)

Þetta með meðvirknina o.fl. er svo athyglisverð pæling, en aðeins of djúp fyrir mig, svona seint um kvöld.  Nema hvað ég held að við ættum ekkert að vera að hætta að hjálpa gömlu fólki yfir götur.

Get hins vegar ekki hætt að hlæja að ummælum aldarinnar, sem Gretar Eir rifjaði upp -að gefnu tilefni, reyndar óskemmtilegu- á blogginu hennar Birgittu. 

Þegar Keikó bárust morðhótanir sagði minn ágæti gamli kollegi, Hallur Hallsson, að þetta segði sko miklu meira um hótarann en Keikó...

Er ekki lífið yndislegt, þrátt fyrir allt ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 29.10.2008 kl. 03:10

26 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Hæ Gurrý, heldurðu að þú gætir ath hvort Orri Harðar ( ef þú þekkir hann eitthvað)  eigi til diskinn sem hann gaf út,   minnir að hann hafi heitið drög að heimkomu , er ekki viss samt. Enn ég átti diskinn og hef því miður glatað honum :(  Væri sko til í að kaupa hann aftur :)  ef þú gætir ath það... Kærar kveðjur til þín og systur þinnar      Ég er alveg með okkar samtal á bak við eyrað ,, það kemur tími og þá færð þú að njóta hans......

Erna Friðriksdóttir, 29.10.2008 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 186
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 172
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Himnaríki 6. mars 2023
  • Himnaríki 21. mars 2024
  • Húsó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband