6.1.2022 | 17:57
Suðurnes í náðinni og viðreynsla þá og nú ...
Svaf af mér óveðrið, ef óveður skyldi kalla a.m.k. hér á Akranesi, kaupstað sem sumir vilja meina að sé sturlað óveðursvíti og rjúkandi rokrassgat. Það gæti ekki verið meira bull enda kannski fullyrt af fólki sem hefur ekki varið hér tíma svo heitið geti eða áttað sig á því að þegar er leiðindaveður á Skaganum er kannski nákvæmlega sama leiðindaveðrið í Reykjavík. Ég hef einu sinni komið út í Flatey á Skjálfanda og var sjóveik á leiðinni þangað sem segir mér þó ekki að það sé alltaf vont í sjóinn, eða það að alltaf sé allt fullt af dauðum flugum í gluggunum í kirkjunni þar eða að fáist bara dúkkukerra og brjóstsykur í litla kaupfélaginu - sem er mín upplifun af Flatey, já, og kýr á bás inn af eldhúsinu hjá fólki (afa og ömmu). Ógnvænlega stór kýrhausinn, hún var eins og skrímsli, ég grét af ótta, hávaðinn í skrímslinu mikill og lyktin nánast óbærileg. Á þessum tíma var ekki byrjað að senda mig í sveit öll sumur sem fyrirvinnu fjölskyldunnar, það var ekki fyrr en ég var 11 ára, svo ég var sennilega algjört stórborgarbarn í augum afa og ömmu, þá fimm ára. Akranes var stórborg miðað við Flatey og það var alltaf gott veður á Skaganum þegar ég var lítil. Það segir margt að ég lærði badminton úti í garði og á þessum tíma var varla búið að finna upp gróður! Stöku sjúskaður runni á köflum og eitthvað líka um njóla og rabarbara og kartöflur. Ekki mikið meira. (Myndin hér að ofan var tekin í sveitinni þegar ég var 11 ára, að koma úr fjósinu eftir að hafa handmjólkað 35 kýr. Það sem var þó erfiðast var að slá með orfi og ljá í snjó, hvað þá raka heyið og koma því í hlöðuna. En svona var þetta bara fyrir norðan í gamla daga.)
Það er svolítið eins og Suðurnesjafólk sé í náðinni, fái allt sem er spennandi (flugvöll, gott kaffi, óveður, eldgos). Kannski flyt ég þangað þegar ég sest í helgan stein. Kannski helst til of mikið flóð (og jarðskjálftar) í Grindavík. Ekki lak einn einasti vatnsdropi inn í himnaríki eftir aðgerðir mína fyrir nóttina, takk, Costco-eldhúsrúllubréf. Í raun vantar bara eitthvað pínkupons meira einangrandi (sem ég veit ekki hvað er eða hvernig maður lagar það) í eldhúsgluggann og neðst við svaladyr litlu svalanna - sem snúa í austur. Það er eiginlega hálfskammarlegt að kalla til iðnaðarmann í slíkt smotterí. Hvað heitir þetta svarta gúmmídrasl (gúmmílistar?) sem er límt í glugga og dyr, held að það sé eitthvað slíkt - en það er samt svoleiðis í gluggunum, ekki gamalt og lúið svo ... Æ, ég hringi bara í smið fyrir næsta austanhvell, hann hlær þá bara að mér.
Núna klukkan 18.00 hefst flugeldasýning hér á Akranesi. Í þetta sinn ekki til vinstri frá mér séð, og alveg á hlaðinu, heldur þurfum við stráksi að horfa til hægri í átt að hafnarsvæðinu - þetta tryggir að fólk geti séð sýninguna víða að við ströndina sunnanmegin (þar sem Himnaríki stendur). Vissulega rok og rigning en Skagamenn væla ekki yfir smámunum.
Það er frekar mikið að gera hjá mér í vinnunum mínum en ég hef getað stolið mínútu hér og mínútu þar undanfarna daga, aðallega kvölds og morgna, og er farin að sjá mun eftir dröslunina þegar ég kom heim eftir jólastandið í Kópavogi. Heimilið er orðið mun fallegra sem gleður hjartað - þvottafjallið ekki hátt núna, búið að búa um, plataði köttinn með nammi. Eina draslið núna sem getur samt ekki kallast drasl, er bókabunkinn á náttborðinu. Stærra náttborð eða fleiri náttborð? Alveg hægt að gera bækur í bið að einhverju smart skrauti, gjörningi.
Karlar í dag eru allt öðruvísi en í gamla daga (til c.a. 2011), nú til dags eru það aðallega menn sem þykjast vera Íslendingar með aðstoð google translate, sem reyna við mig, ekki vegna gáfna minna, yndisþokka og fegurðar, heldur langar þá bara að svíkja út úr mér fé!
Í denn gengu menn ætíð hreint til verks á Facebook og sögðu það sem þeir meintu (sjá mynd, verðmætt sönnunargagn, þarf að klikka á myndir svo þær stækki). Og í eldgamla daga, fyrir Facebook, þegar ég var virkilega ung og fersk, lenti ég oft í spennandi viðreynslu, sem ég hef sagt frá hér, eins og í manninum á Óðali sem bauð brjóstunum á mér upp í dans, þeim sem byrlaði mér í Broadway, manninum sem spurði mig hvort ég væri lesbía af því ég nennti ekki að dansa við hann og fleiri hugljúf dæmi á ég. Allt var betra í gamla daga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.1.2022 | 16:18
Arðbær aukabúgrein ...
Réðst í storm- og regnvarnir á hurð litlu svalanna og með hjálp eldhúsrúllubréfs og dagblaða, einnig krafta í kögglum við að skella fast, tókst mér að verja virkið, held ég. Gluggar eru orðnir tandurhreinir af frábæru rigningunni sem virðist þó hætt í bili. Alveg spurning um að ég taki ýmsar viðgerðir að mér, góður aukapeningur kemur sér alltaf vel, þetta gæti orðið arðbær aukabúgrein. Bara snilldin hvernig ég hélt stormum heimsins utandyra f.e. (fyrir endurbætur 2020) þegar dyr stóru svalanna voru með derring sýnir fátt annað en hugvit, kænsku, grósku, sköpunargáfu og hugrekki, svo fátt sé talið. Límbandið var svo sterkt að það hélt húsinu kyrru í jarðskjálftum og ég er enn að reyna að ná leifum þess af ... Bandið sem ég batt svo frá húninum í rígfastan ofninn var eins og punkturinn yfir i-ið og ég gat sofið rótt eftir þá framkvæmd. Sjá mynd af dásamlegheitunum.
Þegar dyrnar hrukku upp eina nóttina kjánaðist Mosi, yngsti kötturinn, út á svalir, hafnaði einhvern veginn á svölunum hjá Hildi og Gumma á hæðinni fyrir neðan. Þau heyrðu átakanlegt mjálm og runnu á hljóðið, urðu svo hissa að þau fluttu úr húsinu einhverjum árum seinna, öllum til sárra vonbrigða. Að minnsta kosti mér, stráksa og köttunum. Já, hér var lifað á brúninni áður en Diddi og hirðmenn hans komu og gerðu við allt sem gera þurfti við, settu nýtt bað og eldhús og fataskápa og nýjan lás á svaladyrnar sem var ekki auðvelt. Eins gott að þessir iðnaðarmenn séu á rápinu á milli búða í bænum. Held að gagnlegur lás hafi loks fundist í Bauhaus, minnir það.
Stutt blogg í dag, Inga að koma í kaffi. Í gegnum hana fylgist ég með umheiminum, hversu margir krummar eru í fæði hjá henni og slíkt. Ekki séns að missa af því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.1.2022 | 23:25
Lægðin djúpa og brilljant byrjun á ekki-átaki
Covid-kepps-killing-verkefnið gengur alveg hreint ágætlega, eða að borða minna /hreyfa sig meira eftir lúmskan fitukepp ársins 2021. Í gær voru það þrír latte-bollar og einn kvöldmatur (kjúklingaréttur með hrísgrjónum, einn diskur). Í dag voru það tveir latte, 100 g sykurlaust súkkulaði yfir daginn (ekki aftur, óþarfi, langaði ekkert í súkkulaði) og svo ögn öðruvísi kjúklingaréttur með salati um kvöldið. Átti pepsí í ísskápnum síðan um jól en mundi eftir að hafa drukkið fjóra sopa að það er sykur í því svo ég gaf stráksa það.
Brilljant byrjun, myndi ég segja. Ég þjáist ekki neitt og er ekki frá því að keppskvikindið hafi minnkað. Það er alla vega óttaslegið. Svo pantaði ég í Einarsbúð í dag, skyr og alls konar fyrir drenginn sem nesti - skólinn fer að byrja - mig langaði mest í kotasælu sem verður sennilega hádegisverður hjá mér næstu daga. Hreyfing hefur engin verið þessa tvo daga, til þess er of kalt utandyra og of mikið að gera við tölvuna, en ég baðaði mig samt sérlega hratt í morgun. Einhver smávegis bruni hitaeininga þar. Svo pantaði ég þrjá rétti fyrir næstu viku hjá Eldum rétt. Ætla að gera tilraun með það. Kannski of dýrt, kannski þess virði. Tryggi mér þá alla vega þrjár heitar máltíðir í viku og ögn minna nöldur hjá stráksa sem vill helst heitan mat tvisvar á dag átta daga vikunnar. Ofdekrun, segi ég, hann borðar hádegismat í geggjuðu mötuneyti fjölbrautaskólans. Snarl hjá okkur getur verið súpa og brauð sem er fínasti matur - en nei, sumir væru meira til í fasana, lóubringur og gullhamborgara, já, og lax. Allt nema svið og þar erum við sammála. Borðaði svið í æsku en áttaði mig á því fyrir nokkrum árum að ég væri fullorðin og þyrfti þá ekki að endurtaka matarmartraðir æsku minnar; þverskorna ýsu, svið, hræring ... Sjá bókina Hún var kölluð þetta, bls. 15, kaflinn um soðna fiskinn með roði og beinum og óflysjuðu kartöflurnar, alls ekki fyrir viðkvæma.
Nú bíð ég spennt eftir djúpu lægðinni sem mætir á morgun. Vona að hún verði spennandi án þess að vera skaðleg - það er flottasta veðrið. Ég pantaði, eins og ég sagði, vistir í Einarsbúð, spurning hvort hægt sé að nota álpappír sem álpoka ef þetta verður eitthvað? Keypti landakort til öryggis líka, eins og vanalega, allt fæst í Einarsbúð. Ætla að sjá hvernig loftvogin lætur, ég gæti heklað eins og einn trefil eða sjal, ef þarf.
Ég þarf sennilega ekki að hætta í einni vinnunni minni vegna flókins nýs kerfis. Alltaf gleymi ég að gera ráð fyrir greindinni úr föðurættinni (Þingeyjarsýsla, Flatey, Húsavík*), yfirvegun og óttaleysi sem allt kom í ljós eftir að ég tók tvær róandi íbúfen (tilraunalyf, ég veit) og prófaði mig blindandi áfram til öryggis.
Myndin sýnir þrjá af þremur köttum Himnaríkis gá til veðurs í dag og spjalla um viðbrögð við komandi óveðri. Þeir töluðu um síðasta óveður þegar frussaðist upp regnvatn neðst við svalahurð litlu svalanna sem snúa einmitt í suðaustur en ... við reddum því, allt hægt með Costco-eldhúsrúllubréfum, rúðuúða og uppgjafaregnhlífum.
Minnið mig endilega á að verða aldrei aldraður einstæðingur á Húsavík* sem fær heimsendan jólamat frá sjúkrahúsinu; hrísgrjónagraut með rúsínum (almáttugur) og kanil og tvær sneiðar af slátri í hádeginu. Elska slátur en þetta er kannski eini jóla- og nýársmatur sumra og ekki sérlega spennandi. Ég nenni varla að verða gömul ef enn verður haldið þá að allt gamalt fólk elski gamaldags mat eins og síðustu mörg hundruð árin. Húsvíski maturinn var keyrður út undir hádegi á aðfangadag og svo aftur á gamlársdag. Reykt og saltað (hamb og hang) í jólamat um kvöldið á spítalanum sem ekki var hægt að bjóða - ekki nema miskunnsamur Húsvíkingur (frændi / frænka?) hefði boðið sig fram til að keyra út þessi tvö kvöld eða seinnipart dags. Ég gæti það ekki, skortir reynslu af akstri bifreiða og einnig skortir mig vilja til að búa í bæ þar sem kattahatarar eru við völd. Ég hef viljandi sniðgengið Húsavík síðustu sumur þrátt fyrir mikla fegurð staðarins, frændskap við fjórðung bæjarbúa og verulega laglega karla þar (fjarskylda, meina ég auðvitað), einnig þarna ding-dong-barinn sem einn frændi minn rekur. Mig langar til Húsavíkur og fer pottþétt þangað eftir einhverjar kosningarnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2022 | 17:34
Dauðalisti, covid-keppur og spotify-þrá
Um áramót þylja ýmsar völvur upp hvað er fram undan á árinu, eins og völva Vikunnar ... en þótt hún spái konungi dauða er það ekkert miðað við Dauðalistann svokallaða sem birtur er árlega (frá 1987) þar sem 50 frægum (langflestum yfir nírætt reyndar) er spáð dauða af Dauðalista-nefndinni. Í fyrra dóu 12 af lista þess árs en spáin rættist betur á listanum 2020, þar sem heil 40% létust. Á þessum furðulega lista, eða fyrir 2022, má finna leikarann Dick van Dyke (97 ára), Henry Kissinger (99), Angelu Lansbury (97), Alan Greenspan (96), Tony Bennett (96) og sjálfa Elísabetu Englandsdrottningu (96 á árinu), Gorbachev (91) og Sidney Poitier (95). Einn af þeim yungu er David Crosby (81 árs, úr Crosby, Stills, Nash and Young) og einnig sjálfur Pelé (82). Ég var au pair í Vestur-London eitt árið fyrir löngu (Acton Town) og lækaði nýlega skemmtilega Lundúnasíðu og þar fann ég þennan fróðleik. Á síðunni var hneykslast á þeim ósmekklegheitum að setja drottninguna á listann: Sjúk vefsíða spáir drottningu dauða ... samt var listinn birtur.
Það eru fjögur ár í dag síðan Einar sonur minn lést í bílslysi, þá tæplega 38 ára. Alltaf erfiður dagur en ég finn samt hvað þetta verður ekki jafnvont með tímanum, ef hægt er að orða það þannig.
Ég er umvafin góðu fólki sem ég get alltaf leitað til en þennan dag vil ég vera ein í friði, þótt ég liggi nú ekki undir sæng. Stráksi skrapp í sund og hefur verið önnum kafinn, hann man ekki hvaða dagur er sem er best. Kettirnir hafa allir þrír verið óvenjumikið í kringum mig í dag, legið í glugganum og veitt mér góðan félagsskap eins og sést á myndinni. Frá vinstri: Keli, Mosi og Krummi.
Já, og gleðilegt nýtt ár, kæru bloggvinir nær og fjær. Ég kom ekki heim fyrr en í gær, veðrið sá um það. Kisupassarinn almáttugur (Hildur) flutti sennilega til þeirra um helgina, svo rólegir, sáttir og glaðir voru þeir þegar ég kom. Ég blogga ekki í tölvunni hennar Hildu (Makkontoss), bíð frekar eftir að komast í eitthvað almennilegt, eða PC, heima.
Áramótin voru yndisleg með Hildu og co. Ég slapp með naumindum við að nota hundasjampó í hárið á mér en það sem bjargaði var að þetta sjampó átti að gera hvítan lit enn hvítari ... sjúkk, hvað það er gott að kunna ensku og vera ekki enn komin með ellifjarsýni! Þetta með hvítt hár passar bara við mömmu sem er með æðislega fallegt hvítt hár ... og hvítu voffafrændur mína, þá Golíat og Herkúles sem stóðu sig aldeilis vel í allri skothríðinni í kringum gamlárskvöld. Við borðuðum afar góðan kalkúna hjá Ellen og Ella en Elli gerði eina þá allra bestu sósu sem hægt er að fá ... gráðaostur er í henni og fæstir í boðinu borða slíkan ost (hann er góður á pítsum) en hann var góður í þessari geggjuðu sósu. Við tókum öll heimapróf áður en við hittumst þótt við séum í sömu jólakúlu - en við hittum aðra líka.
Margir gera eins konar annál fyrir liðið ár en ég man eiginlega ekki eftir neinu nema eldgosi og covid, já, og svo var það þessi covid-keppur sem bættist lymskulega við og fær að fjúka á árinu. Ekki megrun, alls ekki, bara borða minni sykur og hreyfa mig meira. Það er besta aðferðin, hún virkar nefnilega.
Nú hlusta ég á Foxtrot með Genesis, í fyrsta sinn í nokkur ár, með hjálp YouTube. Þarf að fara að endurheimta Spotify-ið mitt sem stráksi notar á fullu í spjaldtölvu sinni. Þegar topp tíu 2021-listi minn á Spotify var opinberaður undir nýliðin áramót voru þar algjörlega ókunnug lög ...
Ha, hlustaði ég á þetta? Hvað er þetta? hugsaði ég gáttuð, þar til greindin góða tók yfir, samt eftir alveg heilar fjórar sekúndur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 35
- Sl. sólarhring: 280
- Sl. viku: 496
- Frá upphafi: 1528327
Annað
- Innlit í dag: 32
- Innlit sl. viku: 402
- Gestir í dag: 32
- IP-tölur í dag: 32
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni