13.12.2021 | 23:14
Þegar dekur var skammaryrði og aðventan dauf
Draslið heima hjá mér er kannski ekki yfirgengilegt en ... tvö rúmteppi í lokaþurrkun ofan á tungusófanum í stofunni, borðstofuborðið ónothæft því það er jólagjafapökkunarstöð. Það vantar þó enn nokkrar gjafir áður en hægt verður að fullpakka inn. Það allra, allra versta; þrjár körfur kúffullar af þvotti! Af hverju fór ég ekki í húsmæðraskóla?
Ekki eitt jólaskraut komið upp. Of margar bækur - of lítill tími? Neits, auðvitað ekki. Ég les bara þegar ég er komin upp í rúm og þótt ég fari stundum nokkuð snemma upp í til að lesa, jafnvel fljótlega eftir kvöldmat finnst mér ég ekki vera að svíkjast um. Jafnvel þótt ég lesi kannski í fimm tíma og kíki líka á snapp og insta, er samviskan hrein af því að ég les bara fyrir svefninn. Hilda systir hefur aldrei sagt að drjúg séu kvöldverkin og það hvetur mig til að fara snemma upp í. Gæti ég kannski brotið saman þvott á kvöldin? Ja, mér finnst eiginlega betra að gera það í dagsbirtu upp á svörtu sokkana sem allir eru eins í fremur dimmu og rómantísku svefnherbergi mínu, en í dagsbirtu er ég svolítið föst í tölvunni við vinnu. En að vakna bara fyrr á morgnana. Latríður mín? Já, en þá get ég ekki lesið nema í örfáa klukkutíma! Elsta kona landsins drekkur ekki vín (eins og ég eftir að Vínbúðin flutti enn fjær) og les einhver ósköp og segir það halda sér síungri (gamalli). Ég stefni hér með á að verða langelsti bloggari landsins, uppfylli skilyrðin.
En mögulega er kominn tími til að trekkja Storytel í gang - hlusta og gleyma sér við unaðinn sem fylgir því að brjóta saman þvott á sjálfstýringu og ganga frá honum inn í skápa. Þegar ég var síðast í sambærilegri þvottaneyð byrjaði ég á fyndinni glæpasögu - en veit samt ekki hvort ég nenni að klára hana. Of langt síðan og eiginkonan í sögunni var allt of blóðþyrst.
Vonast eftir meira jólaskapi. Trúi ekki að það einskorðist við væmnar jólamyndir ... Nú væri gott að fá Fasta, orkugefandi hollustuberjadrykkinn sem fékkst eiginlega hvergi og hætt var að framleiða af því að hann seldist svo illa. Ég sakna hans daglega.
Þetta er samt bara win-win ef ég hugsa til fólksins í gamla daga sem gerði ALLT á Þorláksmessu. Skipti á rúmum (1 x á ári), þvoði rúmfötin og þurrkaði, viðraði, eldaði, baðaði sig, dró ullarsokkana af vinnumönnunum, hengdi upp kjöt og margt fleira. Mamma t.d. skreytti jólatréð og stofuna eftir að við vorum sofnuð á Þorláksmessu, pabbi þá að hitta mennina, og kl. 18 daginn eftir var stofan opnuð og við gengum inn í jólin. Aðventan var ansi mikið rólegri - og ekkert við að vera nema stjarna uppi á þaki á einu viðhengi Sementsverksmiðunnar. Litlu jól í skólanum, einhver bakstur, tiltekt af svo miklum myndarskap að þakrennurnar voru pússaðar. Ég frétti af fjölskylduföður þessa tíma sem setti nýjar fúgur árlega fyrir jól á milli flísanna á baðinu.
Ég var orðin gift kona með barn þegar ég reyndi að klára allt FYRIR aðfangadag til að við hjónin, 20+, gætum horft á barnaefnið í sjónvarpinu. Svona hafði maður nú verið illilega sveltur á barnsaldri, allt var svo bannað, að til að vinna þetta allt upp varð ég að horfa á barnaefni alla aðfangadaga til 28 ára aldurs, þá löngu fráskilin (hvaða maður þolir slíkt?). Inn á milli las ég Andrésblöð á íslensku, líka til að vinna upp svekkelsið af þeim dönsku sem var rétt að okkur án orðabókar. Gott að grípa samt til mömmu sem hafði lært sína hjúkrun á dönsku.
Það var hræðilegt að vera uppi á þessum tíma. Orðið dekur var þá mikið skammaryrði, nú fær fólk það í jólagjöf í ýmsu formi.
Einn Facebook-vinur minn, samt ágætur, tekur saman ýmsar þýðingarvillur en líka keðjustatusa eins og fund milli brauðs sem ég hreinlega skil ekki hvað þýðir. Ég ætti kannski að senda honum hjartnæmu myndirnar sem ég hef safnað (tekið skjáskot af) og textinn er iðulega: Ég er of fatlaður / veikur / fátækur /dauðvona / með risastórt utanáliggjandi æxli (mynd) / ljót/ur ... til að nokkur setji læk á þessa mynd eða deili henni, eða skrifi amen og Facebook sendi þá viðkomandi einn dollara. Ég sé alveg fyrir mér illkvittna skólastráka leita að afar sorglegri ljósmynd og búa til átakanlegan bulltexta og flissa svo yfir allri dreifingunni sem myndin fær hjá góðviljuðu fólki. Alltaf einhverjir sem falla fyrir þessu, deila þessu svo við höldum ekki að viðkomandi hafi eitthvað á móti veiku fólki, ljótu eða dauðvona, og deila svo líka árlegum jólasögum af litla stráknum /stelpunni sem á ekki nóg fyrir blómum á gröf mömmu eða dúkku til að setja í kistu litlu systur í kistulagningunni og einhver gefur honum tvo skildinga án þess að vita alla sorgina sem býr að baki ... Sennilega er ég siðblind fyrst hjarta mitt er svona grjóthart gagnvart þessu. Hvað er að fólki sem býr þetta til?
Ég er samt algjör aumingi og grenjuskjóða, tárast iðulega yfir einhverju, allt of mörgu, finnst mér; fallegri tónlist, týndum köttum, dánum gæludýrum og þaðan af verra, en svona bullsögur þoli ég ekki.
Inga vinkona hló að mér í dag þegar ég sagði henni frá spælingu vikunnar. Þegar mig hafði verið að dreyma æsispennandi draum, leigumorðingi á hælunum á okkur nokkrum og við stefndum á að fara út í Flatey á Skjálfanda, fæðingarstað pabba, til að heyja lokaorrustu við morðingjann. Þá heyrðist hávært BLING! í símanum og ég vaknaði. Einhver að senda þumal í eldgosa- og jarðskjálftahópnum mínum (kl. 8.23) við eitthvað sem einhver skrifaði þar kvöldinu áður. Ekki séns að geta sofnað aftur og haldið áfram spennandi flóttanum en ég reyndi samt, mjög fast. Ég tími ekki að slökkva á símanum yfir nóttina og mér er bara nær að vera í skemmtilegum hópi með bæði A- og B-fólki, allavega einni AB. Þess virði að vakna, ég reyni bara að hafa draumana dauflegri í framtíðinni.
Að lokum: Óþolandi að ungar keppniskonur í blaki VERÐI að vera í bikiníi til að teljast löglegar á íþróttamótum. En hvað með karlkynsballettdansara, ÞURFA þeir að vera í svona þröngum buxum? Hafa strákarnir aldrei mótmælt þessari opinberun? Ég er ekki viss um að þeir fengju að synda í svona fatnaði í sundlauginni á Akranesi, hvað þá mæta svona í Einarsbúð. Ekki kveikja á sjónvarpinu núna. RÚV þó!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.12.2021 | 17:15
Leyniupptökur og leitin að rétta veitingastaðnum
Þá er það komið á hreint. Strætó gengur hvorki á jóladag né nýársdag þannig að ég er háð góðsemi elsku góða fólksins míns sem lítur svo vel út alltaf hreint ... báða þessa daga til að komast heim til kisanna - eftir að hafa haldið jól og áramót með ástvinum. Til að fá örugglega alltaf far á jóladag held ég hangikjötsboð með laufabrauði og allt í Himnaríki en þarf kannski, ef ég verð mjög dónaleg við alla, að fara heim á puttanum fyrsta jan. Nema mér detti í hug að vera með boð þá líka ... Takk, Strætó. Ég legg ekki á Kela, Krumma og Mosa að vera lengi eina heima svo vinkona mín kíkir á þá nokkrum sinnum, kveikir á sjónvarpinu á gamlárskvöld og stillir frekar hátt - þannig hefur það verið árum saman og þeir kippa sér ekki mikið upp við flugelda lengur. Þeir geta látið fara vel um sig í flestum kringumstæðum, sbr. myndina hér að ofan.
Vinur minn hér á Akranesi komst yfir merkilega upptöku af fundi hjá fyrirtæki nokkru fyrr á þessu ári. Til að vernda vin minn verður nafni fyrirtækisins haldið algjörlega leyndu.
Fundarstjóri: Fundur er settur. Nokkur mál eru á dagskrá, en fáið ykkur endilega snittur og kampavín, ég er með fólk til að keyra fínu dýru jeppana ykkar heim og ykkur með, svo engar áhyggjurm, það er líka 200 ára gamalt koníak hérna og vodki fyrir þau allra hörðustu. Gefum framkvæmdastjóra orðið.
Frkvstjóri: Já, velkomin á þennan svaka mikilvæga fund. Við þurfum að taka samtalið um m.a. upplýsingaskyldu til þessa vanþakkláta lýðs sem við reynum að þjónusta sjúklega vel miðað við fjármagnið sem við kjósum að veita í það. Ég sé varla fram á að geta ráðið tvo aðila í fullt starf í skemmtinefnd skrifstofunnar þótt brjáluð vinna bíði nú þegar í t.d. undanfara jólanna, páskanna, bolludagsins, sumarsins, haustsins, hrekkjavökunnar og þakkargjörðar-þarna. Nema við finnum leiðir til að spara meira. Ég fagna öllum tillögum.
(F=fundarpersóna)
F1: En að ráða útlendinga í miðasöluna í Mjódd, þeir eru svo þakklátir fyrir að fá vinnu og hægt að svína á þeim. Það kunna allir hér á landi ensku svo við þurfum ekki að senda þá á íslenskunámskeið sem er alveg 40 kúlur á mann. Eða hætta með Mjódd bara? Nei, grín, en nógu fjandi dýrt ...
F2: Við gætum líka fækkað skýlum svo fleiri kaupi sér bíl?
F1: Held að það sé ekki séns, þau eru þegar orðin of fá, að mati Heilbrigðiseftirlitsins sem segir kvef-, æ, diffar ekki.
F3: Færum tapað-fundið hingað í Hestháls þangað sem enginn kemst nema fuglinn fljúgandi eða á bíl. Gætum auglýst hlutina sem fólk týndi á uuu ... er ircið hætt? Ahh, nei, ég er með það, á Pinterest, þar sem eru bara handavinnukerlingar og fávitarnir vita varla hvað það er! Við gætum svo selt það dýrmætasta og ferðasjóðurinn verður digur á skömmum tíma. Segjum samt að allt fari í Rauða krossinn eða eitthvað.
Fundarfólk skellir upp úr. Nokkrir klappa saman lófum.
F2: Er þá ekki sama snilldin að senda fregnir af t.d. ófærð, niðurfellingu ferða og breytingum þangað? Nei, annars, það væri ógeðslega fyndið að setja slíkar tilkynningar á Twitter, þar sem hjólapakkið keppist við að segja brandara í einni stuttri setningu. Gísli Marteinn er kannski sá eini sem gæti notfært sér þetta, hann hefur tekið strætó nokkrum sinnum. Við höldum bara annan fund og ákveðum viðbrögð ef hann fer að deila einhverju nytsamlegu þaðan á Facebook hjá sér.
Hlátrasköllin taka sig upp aftur og óma í góða stund en síðan segir fundarstjóri: Fleiri tillögur?
F4: Þarf fólk ekki að geta fengið nótu á kennitölu þarna í Mjóddinni? Ég hef heyrt kvartað yfir því.
F1: Nei, Ferlaugur minn, þetta er þannig fólk að það er óþarfi, svona lúserar vita ekki hvað bókhald er.
Ný hlátursroka, nú í fimm mínútur. Ein konan treður gullfallegum Fendi-trefli sínum upp í sig til að reyna að stöðva hláturinn, en demantsskreytt og loðfóðruð gríman er löngu sprungin af öllu flissfrussinu. Þetta eru skemmtilegustu fundir sem hún veit. Hvernig hún komst í stjórnina er kapítuli út af fyrir sig, en sú ljóta leið var bæði blóði drifin og þyrnum stráð.
Frkvstjóri: Jæja, allt samþykkt, takk fyrir að nenna að mæta, skál! Fáið ykkur endilega meira. Nóg til.
Þetta er það helsta, ég heyrði ekki allt fyrir glasaglamri. Þetta með Pinterest, Twitter og að fá ekki nótu á kennitölu er satt, sennilega allt bara. En ég gef ekki upp hvert fyrirtækið er þótt þið pyntið mig.
-------
Okkur stráksa er boðið út að borða um næstu helgi. Ég var búin að segja frá því að ég byggist við að hann veldi KFC ef hann fengi að ráða, þannig að þetta er í mínum höndum. Mér dettur nákvæmlega ekkert í hug nema Hótel Holt og BSÍ ...
Eitthvað þar á milli hentar vel ... en 15 ára fjarvera mín frá borginni hefur haft þau óvæntu og fúlu áhrif að ég veit ekki lengur hvaða staðir þykja góðir. Er Grillið ekki hætt, og Argentína? Sennilega bið ég vinkonu mína um að velja - og helst stað sem við höfum ekki farið á áður. Eins gott að veðurfræðingar haldi sig á mottunni og spái svokölluðu góðu veðri svo elsku strætó fari á milli. Hviður á Kjalarnesi eru ekki bestu vinkonur mínar þegar ég stefni á að gera eitthvað í bænum. Langtímaspáin norska yr.no segir að það verði fínasta strætóveður. Meira að segja hlýindi og engin hálka sem er það besta. Ég sé stundum eftir því að hafa hætt með veðurfræðingnum áður en við byrjuðum saman.
Myndin hér að ofan er af tveimur þekktum erlendum læknum sem meira að segja ég kannast við, dr. Drake Ramoray og Dr. Derek Shepherd sem hittust þarna í fyrsta sinn. Myndin tengist færslunni óbeint.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2021 | 13:52
Hugguleg hot og sjávarútsýni
Dagurinn byrjaði ótrúlega vel. Það varð ekkert úr snemmsofelsi, gleymdi mér yfir Merkingu sem er ljómandi fín bók, og opnaði augun nánast á sekúndunni 12 á hádegi, sem sagt seinvaknelsi, eða bara útsofelsi. Aðeins fólk með tandurhreina samvisku getur sofið til hádegis, hugsaði ég með mér þrátt fyrir að samviskubit sé inngróið í konur af minni kynslóð. Ó, ég verð að ..., ó, ég hefði átt að ... ó,ó, æææ ... Sönn saga.
Það alveg rignir yfir mig beiðnum um nafnið á jólamyndinni væmnu og sætu sem ég horfði á í gær. A Welcome Home Christmas, heitir hún og var á dagskrá Stöðvar tvö í gær. Myndin á eftir henni var líka jólamynd en stranglega bönnuð innan sextán. Um gjörspilltan ungling, forríkan (eða amma hans er rík) sem sendir leigumorðingja á jólasveininn (Mel Gibson) eftir að hafa fengið kol í skóinn (pakkann) en það er álíka og kartafla í bomsurnar hérlendis ... ég gat ekki hætt að horfa þrátt fyrir allan skort á væmni í þessari mynd. Kona jólasveinsins er leikin af ættleiddu stelpunni í bresku myndinni góðu Secrets and Lies. Þetta er sennilega það mesta og lengsta sem ég hef horft á sjónvarp í talsvert langan tíma. Þegar ég gat horft á eldgos í beinni, nánast afvandist ég sjónvarpi en aðallega kannski línulegri dagskrá, það er svo gott að ráða því sjálf hvenær er horft á eitthvað girnilegt - hættan er þó að það verði jafnvel aldrei. Finnst fleirum en mér fúlt þegar rás 11 á sjónvarpinu mínu, sem er íþróttarás RÚV, er notuð til að sýna íþróttaleiki? Ekki ...? Kannski ég ætti bara að fá mér útvarp með fjarstýringu.
Facebook var að rifja upp bók sem ég las fyrir 11 árum (vinnutengt), fólk ætti endilega að gefa henni tækifæri. Hún heitir Biðukollur út um allt. Aðalsöguhetjan er hjartahrein dauðvona kona sem sækir mikla visku til sorphreinsunarmanns, í fimm mínútur á hverjum miðvikudegi, en hann kennir henni að berja fólk með orðum. Hann er líka eini karlinn í sögunni sem ekki er þroska-heftur, eins og höfundur orðar það. Og auðvitað fór þessi bók mín á nytjamarkað í Reykjavík í fyrra, hún var reyndar ekki of gömul fyrir Búkollu en ég hafði engan tíma til að flokka í: gamalt sem nytjamarkaðir í öllum heiminum taka við og í nýlegt sem Búkolla tekur aðeins við. Þetta átti ekki að hljóma svona beiskt.
Óska eftir að komast í kynni við fjölskylduföður á Vesturlandi sem nýlega hefur komist yfir mikla peninga. Ættleiðing, hjónaband eða villt ástarsamband kemur til greina. Búseta í Borgarnesi engin fyrirstaða (gleymum ekki leið 57). Upplýsingar sendist blogginu í umslagi merktu Hugguleg hot kattaskvísa og sjávarútsýni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2021 | 22:30
Óvænt jólavæmni ogkærkomin grímuskylda
Drengurinn er enn og aftur í helgargistingu - tíminn líður ótrúlega hratt - vikurnar fljúga. Dagskrá helgarinnar hjá mér, fyrir utan brennivín og karlmenn? (djók) Að klára að brjóta saman þvott, lesa og vinna svolítið, milljónirnir fara ekki af sjálfu sér á reikningana í Sviss. Ég er samt að fyllast af einhverri væmni, jólavæmni, sæt jólaauglýsing hjá Icelandair, líka frá BYKO ... nú horfi ég t.d. á voða kjút jólamynd á Stöð 2, (hjartnæm, segir auglýsingin) til að hlusta á meðan ég blogga. Snemmsofelsi í kortunum og strax í fyrramálið gerist eitthvað spennandi. Ekki allir vita nefnilega að dyrabjallan er komin í lag. Nú vita það allir. Hjartans elsku rafvirkinn kom í gær.
Það eru að minnsta kosti tvær bækur í þessari jólavertíð sem banna manni að vera aumingi (væminn), og ég hlusta alltaf á skipanir bóka en það er samt erfitt núna. Byrjunaratriðið í myndinni pirraði mig, sýnir þegar kona opnar dyr að kæli og hurðin opnast að veggnum, ætti að opnast frá hægri til vinstri, eins og á ísskápnum mínum, eftir að hirðsmiðir höfðu svissað. Þetta eru stóru málin í mínu lífi. Hvernig hurðir snúa. Það skiptir öllu máli.
Síminn hringdi fyrr í dag, Guðrún af Kópavogi boðaði sig í heimsókn á Skagann um hálffimmm. Við ákváðum að djammma ærlega og fórum í Einarsbúð sem er sennilega jafnflott búð og Kaupfélag V-Hún. og þá er mikið sagt.
Myndin er af Ernu í Einarsbúð, Ellý og Halldóru - tekin fljótlega eftir að ég flutti á Skagann.
En hálkan úti ... hún er hræðileg, við lögðum lævíslega eins nálægt Einarsbúð og við gátum og löbbuðum mjög asnalega hvar sem hálkublett var ekki hægt að forðast. Að þessu leytinu til er sturlað gott að grímuskylda skuli vera í gildi. Ég var búin að segja Guðrúnu að sætustu karlarnir á Skaganum kæmu í Einarsbúð ... það þyrfti ekki annað en að hinkra aðeins við mjólkurkælinn. Við héngum þar í góðan hálftíma en það var fátt um fína drætti, þannig að hún heldur ábyggilega að ég hafi ekki verið að segja satt. Föstudagar fyrir jól, sennilega allir almennilegir karlar að baka og þrífa. Við fengum okkur bara tilfinningaríkan og góðan mat hjá Flamingo sem lét okkur gleyma öllum sorgum.
Jólamyndin er um afar rosalega góða unga konu - nánast hver stund dagsins fer í góðgerðastörf, allir elska hana, hún tekur meira að sér starf við pakkaúthlutun til fátækra barna þótt hún hafi ekki tíma. Hún hjálpar til í súpueldhúsi daglega og er ráðgjafi hjá hernum, eina launaða starfið, og hjálpar uppgjafahermönnum við aðlögun og takast á við líf eftir her. Hún reynir að fá jólafrí fyrir her-hjón sem eiga litla dóttur, skjólstæðing góðu konunnar. Þrjóski hermaðurinn sem hún átti að aðstoða til að aðlagast er allur að koma til. Þiggur að fara með henni á kaffihús að fá heitt súkkulaði og mamma hennar sem á staðinn sér stjörnur og meira að segja litla stelpan með foreldrana í hernum, reynir að koma góðu konunni og hermanninum erfiða saman ... Eru ekki alþingisumræður einhvers staðar, var búið að ræða fjárlögin í þaula? Djók, hún er fullkomin! Held að sú góða ætli að reyna að fá herinn til að senda sjeffertíkina til hermannsins, hann saknar hennar, sem ég skil svo vel og myndin orðin helmingi betri fyrir bragðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2021 | 11:04
Vondar jólamyndir og afleiðingar örvunar
Jólamyndir eru svolítið það sem getur mögulega togað mig að sjónvarpinu á þessum árstíma og nýlega rakst ég á lista yfir verstu jólamyndir allra tíma - þar eru tvær sem ég hélt að væru frekar kjút en nú veit ég betur. Listar eru eitthvað sem ég hef mjög gaman af því að skoða ...
1. Santa with Muscles. Bara nafnið ... en hún fjallar um grimman og vondan milljarðamæring sem missir minnið og heldur að hann sé jólasveinninn.
2. Star Wars Holiday Special. Meira að segja George Lucas þolir hana ekki.
3. Home Alone 3. Verið að kreista allra síðustu peningadropana úr hugmyndinni en þó má sjá Scarlet Johannson á yngri árum þarna.
4. A Christmas Story 2
5. Jingle All the Way 2
6. The Christmas Candle.
7. A Christmas Carol, Disney-grafíkin
8. Deck the Halls. Gaurinn sem Danny Devito leikur og stefnir að því að jólaljósin hans sjáist úr geimnum-myndin.
9. A Madea Christmas (Tyler Perry). Væmin vella.
10. Christmas with the Kranks.
11. The Santa Clause 3. Fyrri myndir fínar, ekki þessi
12. The Family Stone. Gerist vissulega um jólin en skortir allan jólahlýleika, stórleikararnir breyta engu.
13. Jack Frost.
14. Four Christmas. Skortir alla jólagleði, sjálfhvert par sem lýgur því hver það ver jólunum, skortir líka alla ást á milli aðalleikaranna
15. Fred Claus.
Þetta er ekki listinn minn, heldur eitthvað sem ég fann á alnetinu mikla. Ég er yfirleitt þakklát fyrir jólamyndir og þá í svo miklu jólaskapi að það þarf eitthvað verulega slæmt til að ég standi upp og fari að þrífa ísskápinn eða eitthvað. Svo hef ég ekki séð nema hluta af þessum.
Mig verkjaði ögn í handlegginn í morgun eftir bólusetninguna í gær og tók verkjatöflu áðan. Að öðru leyti eiturhress (fliss). Reif mig á fætur eldsnemma (8.30) og tók smávegis törn í Himnaríki. Nú malla handklæði og tuskur í þvottavélinni, hér eru fullar körfur af hreinum þvotti sem þarf að brjóta saman - enn einu sinni ... hvenær hættir þetta? og ég bíð bara eftir rafvirkjanum sem sagðist hafa gleymt mér á vinnutíma. Svo grunar mig að hann hafi engst sundur og saman af samviskubiti heima hjá sér á kvöldin og það hefur án efa haft slæm áhrif á heimilislíf hans og skemmt alla aðventustemningu. Ég hugsa það. Þetta dyrabjölluleysi hefur líka haft verulega slæm áhrif á líf mitt, mögulega haft í för með sér óafturkræfar breytingar.
1. Óvæntir gestir hætta alfarið að koma (sem er ekki slæmt, ég gæti verið í sturtu, með elskhuga hjá mér (sjúr), verið að drasla til/taka til, verið með þursabit og svo framvegis)
2. Gjafir sem mögulega hafa byrjað að berast mér sem áhrifavaldi voru endursendar sem eru sterk skilaboð til gjafmildra fyrirtækja.
3. Og, eins og mamma segir, dyrabjöllubilunin getur stöðvað hinn fræknasta riddara á bláu Toyotunni ...
Æ, Toyota er ættarbíllinn og ég held að tilvonandi aðdáandi minn gæti átt erfitt uppdráttar ef hann ekur um á annarri tegund. Benz sleppur, að sjálfsögðu. Umræður við jólaborðið gætu orðið þvingaðar.
Já, svo þú ert á xxx. Hmmm, er ekki knastásinn eitthvað skakkur og skældur í þeim?
Heyrist ekki svo mikið í viftureiminni í þessum?
Bíddu, er ekki hiti og nudd í bakið?
Hilda myndi alla vega gera honum lífið leitt. Stundum í veislum minnir bílaplanið fyrir framan hús hennar á planið fyrir framan Toyota-umboðið. Svo er gert grín að mér fyrir að vera spennt fyrir svokölluðu vondu veðri, jarðskjálftum, eldgosum, tölum og sumum svokölluðum vondum jólamyndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2021 | 17:07
Vel sprautað, ögrandi áskorun og textarugl í lögum
Örvunarsprauta kl. 11 í morgun og sérlega mjúkhent kona hélt um sprautuna. Stráksi var líka heppinn með sína sprautukonu og nú vonum við að litlar sem engar aukaverkanir geri vart við sig. Sprautari sprautu nr. 2 (í sumar) hitti á taug, grunar mig, því ég fann svo mikið til á meðan og var að auki lengi illt í stungustað, tilkynnti verkinn ekki sem aukaverkun því þetta var bara illa sprautað. Nú bað ég elskulegu konuna um að sprauta ögn austar í handlegginn og það gerði sennilega gæfumuninn.
Myndin sýnir heppni mína með sprautustað á Skaganum (rauða íþróttahúsið handan við ógæfumölina). Í hálkunni sem nú er víða hefði verið erfitt að skakklappast annað, og ég hefði sennilega ákveðið að þetta væri allt ein stór tilraun og risastórt samsæri, til að þurfa ekki að fara. Hálka eða leti hefði ekki mætt sama skilningi. Það var þó áskorun að komast yfir göngustíginn neðst á myndinni, næst Himnaríki. Þarna sést í Akrafjall, Esjuna, Nýju blokkina og meint kristalsljósakróna í eldhúsinu speglast fagurlega á glugganum, þetta er ekki guð, sjá hana/hann neðar í blogginu.
Ég var rétt nýkomin heim og drengurinn farinn í skólann næstsíðasta daginn fyrir jólafrí, þegar mamma hringdi. Henni gengur vel að tileinka sér bloggtækni, betur en mér, og hafði fundið sérlegan vinsældalista bloggsins. Ég nötra af spenningi.
Mamma: Draumur þinn er að komast á topp fimm á blogginu, er það ekki? Þú hefur sagt það sjálf!
Ég: Jú, það væri svo geggjað. Ég er orðin það gömul að ég á ekki marga drauma eftir sem ekki hafa ræst.
Mamma: Hættu að tala um aldur, þetta er ég!
Ég: Æ, afsakaðu.
Mamma: Ég hef tekið eftir því að þú hefur aldrei náð svo ofarlega, ert allaf í kringum tíunda sæti sem ég er mjög ósátt við. Ég skoðaði þetta fólk fyrir ofan þig. Þetta eru auðvitað Páll þarna og Ómar Ragnarsson. Já, Trausti veðurfræðingur líka. Ekki reyna að keppa við þá ... það yrði bara svekkelsi, held ég, ég er meira að hugsa um hitt fólkið, nóboddíana þarna ófrægu, hvort þú eigir að prófa að breyta áherslum þínum svolítið til að líkjast þeim og gefa þeim langt nef þegar þú sest í fjórða eða fimmta.
Ég: Vá, mamma, það hljómar æðislega vel. Um hvað blogga þau?
Mamma: Rannsóknir og tilraunabólusetningar, samsæri líka og eitthvað. Verður fólk ekki að heyra hina hliðina? Geturðu ekki bara búið eitthvað til? Þú ert nú svo klár, hefur þessa skemmtilegu greind úr móðurættinni.
Ég: Æ, mamma, það myndi enginn trúa mér. Það er gaman að eðlufólkinu og Elvis enn á lífi-sögum, hvað með þá sem sakna þess að lesa um daglegt líf mitt, yndisþokka og ævintýri, já, rafvirkinn kemur loks á morgun, og bold-
Mamma (kuldalegri): Þú ert nú sem betur fer nánast hætt að bolda. Hvernig fólkið þar hélt fram hjá hvert öðru og jafnvel sjálfu sér líka, og fór að deita börn sín þegar það uppgötvaðist að þau væru ekki blóðskyld þeim ... oj bara.
Ég: Mamma þó. Ekki segja deita. En ég skal hugsa málið.
Alltaf hressandi að heyra í mömmmu sem er svo hvetjandi, hún hætti t.d. að tala við fjölda fólks þegar ég tapaði naumlega í 12 ára bekk fyrir Rósu sem fékk íslenskubikarinn, munaði 1/50 á okkur, sagði Rögnvaldur kennari ... það var samt að hluta til mér að kenna en mamma hlustar ekki á það. Það var ekki hægt að fá tíu í lestri, bara 9,9, og svo var ég ekki nógu dugleg að læra ljóð utanbókar sem kostaði að ég fékk ekki þennan bikar sem Mía systir fékk þremur árum áður og enn áður Kalli Sighvats og Jonni Sighvats. Mamma var með systkinablæti varðandi þennan bikar.
Þessi bitri ósigur vegna leti við ljóðalærdóm varð til þess að ég hlusta aldrei á texta, kann enga texta, vil ekki kunna texta - og hef jafnvel haldið í ógáti upp á hræðilega dónaleg rapplög: motherfxxx, bixxx, fxxxx, nixxxxx, og alls konar hrylling. Þegar fólk er beðið um að segja frá því hvað það hefur misskilið í t.d. dægurlagatextum man ég bara eftir: titrandi tær úr þjóðsöngnum, sem mamma heyrði stelpu syngja nítján hundruð fjörutíu og eitthvað. Okkur var nær að velja sálm sem spannar að auki svo margar áttundir að aðeins kór með bassa, tenór, alt og sópran getur sungið það, ekki einu sinni saman! Ég hef reyndar staðið á ýmsum pöllum, m.a. í Finnlandi, Austurríki, Ítalíu og Þýskalandi, og sungið (með 80 öðrum, Áttatíu á palli) þjóðsönginn, alveg að springa úr þjóðarstolti og ættjarðarást - en þetta er samt sálmur og það er samt erfitt að syngja hann. Reyndar söng ég alltaf í Bjarnastaðabeljunum: ... kemur um miðasta spil (miðaftansbil) og ég held að við höfum öll systkinin gert það. Gleymdi alveg að spyrja mömmu hvort hún hefði kannski flissað í laumi eða misskilið líka.
En hér fyrir neðan er fínasta músik, ég fann þessa dýrð á YouTube og hef hlustað á í allan dag. Mamma söng með Kór Akraneskirkju og kórinn (undir stjórn Hauks Guðlaugssonar) tók þetta verk þegar ég var sennilega átta ára og elti mömmu á kóræfingar. Guðrún Tómasdóttir sópran og Sigurveig Hjaltested alt voru einsöngvarar. Kórinn söng nokkra kafla, sennilega þessa sem þær syngja saman hér. Áttundi kaflinn var og er enn í uppáhaldi hjá mér (23.43) ... Ég á nákvæmlega þennan flutning á geisladiski. Magnaðar söngkonur, Mirella Freni og Teresa Berganza. Í bíómyndinni Amadeus heyrðist eðlilega bara tónlist eftir Mozart - NEMA síðasti kaflinn úr þessu verki, amen-ið, og ... sungið af kór. Segið svo að það sé ekki fróðlegt að lesa þetta blogg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2021 | 18:19
Bleikt og bannað og draumur um Hótel Hollt
Stráksi smitaðist af magapest um helgina, veiktist í gær og er heima í dag, orðinn ágætlega frískur en mér pínku flökurt. Þetta átti að verða stór og mikill dagur hjá mér á morgun, örvun og tannsi, en ég frestaði bara tannlækninum og stramma mig af. Þegar ég tók hættu-að-reykja-lyfin, var mér stanslaust flökurt, mig dreymdi hroðalega drauma og var orkulaus þær sjö vikur sem ég tók lyfin - svo ég kvíði ekki aukaverkunum af örvunarskammtinum.
Fór í gegnum AZ-bóló án vesens fyrr á árinu en fæ núna Fæser. Finnst að fyrirsagnir hér væru réttari svona: Tugþúsundir finna ekki fyrir neinu eftir bólusetningu ... en áður en við stráksi fórum í Karíbahafið 2018 vorum við bólusett við mörgum smitsjúkdómum í einu. Ég fann ekki fyrir neinu, hann varð hálflasinn daginn eftir en við sluppum við öll Karíbasmit. Myndin hér að ofan tengist textanum ekki beint, mér fannst hún bara fyndin.
Það sem hefur bjargað okkur drengnum er bleika kvikindið, Pepto Bismol, saklaus magamixtúra sem má ekki kaupa hér á landi, af því bara. Hún bjargaði líka þeim sem var veikur í Reykjavík um helgina. Ég gaf nefnilega nokkrum einstaklingum bleika flösku í bland í poka-jólagjöf fyrir tveimur árum, reyndar fengu einhverjir alveg óvart sérstaka niðurgangsútgáfu af því en það virkar samt alveg á ógleði og uppköst.
Er verið að hugsa um sérhagsmuni einhverra sem græða minna ef þetta verður leyft? Þetta er selt í öllum matvörubúðum í USA og þykir jafnsjálfsagt að eiga og íbúfen í íslenskum baðskápum. Hefði haldið að það fengist í Costco en þung hönd forsjárhyggjunnar leyfir ekki einu sinni gott tannhvíttunartannkrem. Til hvers að hafa sjálfstæðisflokk við völd hér í áratugi, flokk sem segist standa fyrir frelsi einstaklingsins en samt er okkur ekki treyst til að kaupa magamixtúru sem slær víst meira að segja á ofát sem gæti verið ríkafólkssjálfstæðiskvilli sko (ég var að lesa á flöskuna). Erum við almenningur kannski bara einhver skilgreindur hópur, múgur, öreigar, hinir sem þarf að hafa vit fyrir - og frelsi einstaklingsins felist þá í að bjóða upp á aðrar lausnir en PB í apótekinu sínu? Bara á meðan ég skrifa þetta dettur mér eitt hræðilegt í hug, að þetta sé bara grímulaust kvenhatur eftir allt saman. Bleikur litur ... þetta nánast segir sig sjálft.
Mér hefur alla tíð verið frekar illa við breytingar og hef til dæmis unnið mín störf (ég er Íslendingur, ég vinn nokkur störf) í nokkur friðsæl og góð ár hér við tölvuna heima. Nú á að fara að skipta um kerfi í einni vinnunni minni og það skelfir mig meira en orð fá lýst. Ég íhugaði að sjálfsögðu að segja upp en svo mundi ég eftir hetjudáðum mínum í fyrra, þegar hirðsmiðirnir gjörbreyttu Himnaríki - hafði það einhvern hrylling í för með sér? Nei. Upplifðir þú ömurlegheit, frú Guðríður, þegar hægri umferð komst á í maí 1968, það voru stórbreytingar? Vissulega ekki, en ég var bara barn þá. Upplifðir þú skelfingu og viðbjóð þegar skipt var um grís í merkinu hjá Bónus? Nei, ég sá engan mun. Hættu þá þessu væli, breytingar geta verið alveg ágætar, sumar, stundum.
En í gær uppfærði borðtölvan sig án míns samþykkis og nú er nánast allt svart sem áður var hvítt (hræðilega ömurlegt) og ég íhugaði alveg að hætta bara alfarið í tölvunni, þetta er algjör viðbjóður svona og Davíð frændi svarar ekki örvæntingarfullu SMS-inu frá mér, meira að segja myndskreyttu. Kannski er hann bara enn að hlæja. Ég myndi örugglega lifa ágætu tölvulausu lífi, gæti horft út um gluggann á síbreytilegt hafið og dundað mér við að telja ljósin á höfuðborgarsvæðinu og skrásetja það á pappír. Drekka kaffi og lesa. Það gæti vantað fólk við að taka til á Langasandi, raka yfir sandinn með hrífu eftir Mótokross-mótin.
Skaganesti hætti sem sjoppa á meðan ég bjó í Reykjavík. Lengi var þar eitthvað sem heitir Kvikk og fínasta þjónusta þar ef eitthvað vantaði, nú er það hætt og eitthvað sem heitir Sbarro kemur í staðinn. Ég gúglaði það og líst ljómandi vel á. Af hverju fáum við ekki KFC? spurði drengurinn. Í gær hringdi vinkona sem er búin að bjóða okkur út að borða skömmu fyrir jól. Leyfðu drengnum að velja staðinn, sagði hún, væri það ekki sniðugt? Nú, nú langar þig á KFC? spurði ég ofsaspennt (djók).
Draumastaðurinn minn er staður sem gæti heitið Hótel Hollt. Með flottri þjónustu og geggjuðum HOLLum mat án þess að allt sé mengað með hnetum eða döðlum, rúsínum eða möndlum, hvað þá kúrennum. Það má örugglega láta staðinn heita þetta þótt það minni óneitanlega á lúxusstaðinn dýrlega, Hótel Holt í Þingholtunum. Ég veit það því ég fór nefnilega með Hildu systur á einkaleyfastofu fyrir mörgum árum:
Hilda: Góðan dag. Ég ætla að fá einkaleyfi á nafnið Ævintýraland, takk, það er starfsemi fyrir börn.
Einkaleyfastofa: Já, það kostar marga peninga.
Hilda borgar marga peninga.
Einkaleyfastofa: Nú ertu komin með einkaleyfi.
Nokkru síðar, síminn hringir á stofnun í Reykjavík:
Einkaleyfastofa: Einkaleyfastofan, góðan dag.
Hilda: Það var verið að opna stað í Kringlunni með sama nafni og sumarbúðirnar, starfsemi fyrir börn, ég hélt ég hefði borgað fyrir einkaleyfi.
Einkaleyfastofa: Þetta er ekki alveg algjörlega sama starfsemin svo Kringlan má þetta alveg.
Hilda fékk ekki endurgreitt þannig að ef Hótel Hollt sérhæfir sig í hollustu, verður jafnvel með gistipláss á efri hæðum og til öryggis heilhveitigardínur fyrir gluggum, er það bara alls ekki sama starfsemin. LAUGAvegur, LAUGARvegur ...
Í allan dag hef ég verið með sjónvarpið á, horft með öðru á arineld (meira kannski vitað af honum) og hlustað á jólalög, meira að segja afplánað eitt með Mariuh Carey. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst. Mig langar mun meira að horfa á eldgos á Reykjanesskaga í sjónvarpinu mínu (upptökur þess vegna) en vil hafa Rás 2 í rauntíma, ekki alþingis-varpið - er Alþingi ekki annars með sérrás í sjónvarpinu? Af hverju er hún þá líka nr. 11 í sjónvarpinu mínu? Ég mun þó horfa af athygli á þingmenn þegar farið verður að fjalla um skaðsemi forsjárhyggju í garð lýðsins og fagna þegar bæði Pepto Bismol og flensulyf verða leyfð hér á landi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2021 | 23:54
Ljótustu jólapakkar landsins og allt um blóðflokka
Þegar við Hilda vorum í Costco á dögunum benti hún á þykkan bunka af brúnum höldupokum (þeir eru mjög umhverfisvænir á litinn og úr bréfi vitanlega) og nánast skipaði mér að kaupa þá ... fyrir jólagjafirnar. Held að hún sé komin með ógeð á því að opna dagblaðsinnpakkaðar gjafirnar frá mér, verða svört á fingrum og jafnvel festast í einhverri spennandi frétt í hálftíma og tefja þar með aðfangadagskvöld fyrir hinum. Auðvitað treysti ég litlu systur og í gær pakkaði ég inn nokkrum gjöfum. Í brúna höldupoka.
Það var ekki mikil gleði í því, ekki hægt að velja fréttir eða auglýsingar fyrir pakka hvers og eins, og svo þurfti tvo poka utan um of stóru gjafirnar. Fyrst fór gjöfin hennar Míu systur í einn poka, svo kom annar poki sem ég steypti yfir svo ekkert sæist í sjálfa flottu gjöfina, svo ætlaði ég að líma en límbandið var búið. Eina límandi dæmið sem var inni í skáp frammi var teipið sem ég notaði til að líma aftur svalahurðina í fárviðrum áður en Diddi hirðsmiður Himnaríkis gerði við hana. Ég átti þó pakkabönd og setti utan um í staðinn og náði að festa merkimiða ... og tveir ljótustu jólapakkar sem ég hef á ævinni séð urðu til. Hinir tveir mun skárri, enda gjafirnar minni um sig. Þetta verða samt jól hinna vistvænu en mjög svo ljótu pakka frá mér. Ekki það að ég haldi að fólk hafi hrifist af stórfenglegri innpökkun minni í dagblöð ... en þetta var svo fljótlegt, búið að klippa pappírinn fyrir mig ... en klippidæmið hefur alltaf vaxið mér svo í augum, dagblöðin björguðu öllu og mér fór að finnast gaman að pakka inn.
Á myndinni hér fyrir neðan reynir Krummi árangurslaust að bjarga málum.
Ég hef reynt að ítreka við ástvini mína ... ekkert blautt í jólagjöf, takk, eins og gjafabréf í Skæla-gún. Einkasundlaug á svalirnar frekar. Mamma gaf mér eitt sinn gjafakort í Kringluna þegar ég átti enn eitt stórafmælið í ágúst 2008. Húrra, ég kaupi mér myndavél, hugsaði ég, enga rándýra, bara svona til heimanota. Mér fannst ansi tómlegt í Kringlunni þarna í sept. þegar ég kom askvaðandi með kortið, margar búðir hættar og sú eina í Kringlunni sem seldi myndavélar reyndist vera Hagkaup á efri hæðinni. Ég fékk síðustu ódýru vélina og sú var bleik og reyndist ljómandi vel þar til gemsinn minn fór að taka betri og skýrari myndir með enn minna veseni. Þetta var á sama tíma og afbrýðisamir Danir reyndu að tala niður fjármálasnillingana okkar sem keyptu kannski Harrods annan daginn og Walmart hinn. Og ég var svo hreykin af þeim.
Ég skammaðist mín seinna fyrir að hafa keypt mér flatskjá þegar gamla tækið klikkaði. Sem ég staðgreiddi fyrir mismuninn á verði íbúðar sem ég seldi og Himnaríkis, ég fór í stærra en fékk borgað á milli. Þarna erum við aftur komin að tölum, að númerum, hvað þau skipta miklu máli. Póstnúmer til dæmis. Úr 107 í 300. Ég hefði sennilega fengið íbúðina mína metna hærra ef hún hefði verið í 101 en lengjan Hringbrautarmegin var í 107, afgangurinn af húsinu mínu (gamla verkó) var í 101. Ef ég framdi afbrot fyrir framan húsið mitt í 107 nægði að ég hlypi inn, niður í kjallara og út í garðinn, í 101, og þá var ekki hægt að sækja mig til saka.
Tölur eru allt. Ég spurði eitt sinn talnaspeking sem kom í útvarpsviðtal til mín hvað þýddi t.d. að búa í 107. 1 plús 7 eru 8 og átta er mikil peningatala, veit ég. Og er ekki forríkt lið þarna í Högum og Melum? Þú segir nokkuð, sagði talnaspekingurinn sallarólegur. Ég hef grun um að þessir spekingar hafi aldrei pælt í þessu. En ... ég sá í erlendu blaði að heimilið manns geti verið í sérstöku stjörnumerki. Af því að ég flutti hingað í Himnaríki þann 10. febrúar (2006) þýðir það að heimilið er í vatnsberamerkinu. En talnaspeki húsnúmera fann ég og mitt númer er 5 (4+1) sem þýðir hugmyndir, rómantík, listir og menning. Góð tala fyrir rithöfunda, kennara, ferðalanga, íþróttafólk ... Smellpassar, fyrir utan helvítis rómantíkina. Skal leita að þessu og birta hér innan tíðar. Myndin fyrir ofan er úr Himnaríki, þegar ég kláraði að undirbúa jólin með aðstoð þjónustufólksins.
Í nokkur ár sá ég reglulega bresk blöð sem voru full af alls konar speki. Eins og um blóðflokkana ... þetta tengist alls ekki kenningum um að borða eftir blóðflokknum sínum, þetta er bara samkvæmisleikur, ekkert sem á að taka trúanlegt, bara skemmta sér! (Ég er A og þetta passar ótrúlega vel við mig ...)
O-blóðflokkur: Þessar týpur eru mannblendnar, félagslyndar, áhyggjulausar, örlátar og sjálfstæðar. Sveigjanlegt fólk, getur verið léttúðugt, einnig klaufskt. Oft upphafsfólk að einhverju en lýkur ekki alltaf við það sem það byrjar á. O-fólk er forvitið, skapandi og vinsælt, vill vera miðpunktur athyglinnar og er fullt sjálfstrausts. Fæddur leiðtogi og getur stundum verið hrokafullt og þrjóskt. O á best við fólk í O og AB. (Mamma er O, pabbi var AB)
A-blóðflokkur: Yfirvegað rólegheitafólk, alvörugefnir fullkomnunarsinnar sem ekki alltaf er auðvelt að gera til hæfis. Listfengt fólk, getur verið feimið, er samviskusamt en einnig viðkvæmt. Traust fólk, stundum hrokafullt áhuggjufullt, bælir niður tilfinningar, er fullkomnunarsinnar, greint, þolinmótt og þrjóskt. Á best við fólk í A og AB.
B-blóðflokkur: Verður að setja sér markmið, ákveðnir persónuleikar. Þegar viðkomandi hefst handa við eitthvað hættir hann ekki fyrr en verkinu er lokið og það á fullkominn hátt. Einstaklingsmiðað fólk sem finnur sér eigin leið í lífinu. B-fólk er forvitið og glaðlynt, á það til að vera sérviturt, yfirborðskennt, óáreiðanlegt og eigingjarnt. Vill komast auðveldlega í gegnum lífið og tekur skynsemina fram yfir tilfinningar. B á best við fólk í B og AB.
AB-blóðflokkur: Klofnustu persónuleikarnir. Ýmist opið eða feimið fólk, eða öruggt og óframfærið. En svo ábyrgðarfullt að það getur valdið því sjálfu vandræðum. Óhætt að treysta þessu hjálpsama fólki sem einnig er hugulsamt, varkárt, duglegt, kröfuhart, tilfinninganæmt, listrænt, dularfullt, óútreiknanlegt og oftast í góðu jafnværi. Passar við fólk í öllum blóðflokkum.
P.s. Minni á að Blóðbankann vantar alltaf blóð - bæði úr bólusettum og óbólusettum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2021 | 17:40
Dagur hinna tíu handklæða
Veðrið hefur verið ósköp skítsæmilegt hér við sjóinn, þannig séð, gluggar orðnir tandurhreinir fyrir jólin, eins og þetta hafi verið sérstaklega pantað, en við höfum svo sem ekki prófað að fara út, þetta er bara samkvæmt sérlegri gluggarannsókn. Aðalfjörið hefur víst verið undir Hafnarfjalli og svo var líka hvasst á Kjalarnesi, flott hjá strætó að fara ekki. Að vísu er austurhlið Himnaríkis viðkvæmari í svona blautu veðri og ég þarf einhvern veginn að loka betur eldhúsglugga og litlusvalahurð til að lárétt regnið (8 mm) frussist ekki inn. Nætur hinna þúsund handklæða eru löngu liðnar hér, hélt ég, en þetta er svo sem ekkert venjulegt veður. Eiginlega svolítið dagur hinna tíu handklæða, eldhúspappírs og dagblaða.
Þegar myndin var tekin, lék allt í lyndi í eldhúsglugganum, enda veður í rólegri kantinum, nú snemma í haust. Þarna sannast mál mitt að karlar kjósi alltaf að koma tveir og tveir saman í Himnaríki; löggur, vottar, sendlar, smiðir, rafvirkjar, organistar, garðyrkjumenn o.fl. Ég endurnýti þessa mynd því ég á erfitt með að setja inn nýjar myndir, kannski er Moggablogg að refsa mér - eða ég hef farið yfir mörk í notkun mynda?
Það að ég skuli voða lítinn mun sjá á svíninu sem er í vörumerki Bónus, gæti þýtt að ég eigi lítið erindi í rannsóknarlögregluna sem mér finnst virðast spennandi starf en krefst án efa góðrar eftirtektar. Sumir eru að missa sig, nötra og skjálfa af hryllingi þegar þeir sjá nýja svínið, ég sé engan mun, þetta er bara teiknað svín, bara vörumerki ... sem ekki grafískur hönnuður æsi ég mig ekkert yfir einu eða neinu svona, frekar yfir skiltum sem grafískir hönnuðir hafa sett upp og ekki hirt um að láta lesa yfir ... þannig að hástafir eru kannski í hverju orði. Það er ekki flott, það er rangt. Það pirrar mig en ekki alveg alla.
Ef ég verð einhvern tímann uppgötvuð sem Snapchat-áhrifavaldur, og aðdáendur mínir verði fleiri en 30 (þarf bara að muna að snappa oftar og ekki bara af kisunum) ætla ég ekki að breyta mér ... heldur halda áfram að vera svona æðisleg eins og ég verð ef ég breyti snappinu mínu aðeins. Hef séð nokkra uppgötvast í gegnum t.d. Íslendingar í útlöndum, fólk fer að fylgja þeim - eftir þessa þrjá leyfilegu daga á þeim miðli - og fer að krefjast þess að fólkið tali meira og sjáist oftar - og þar með er skaðinn skeður. Allt í einu fer hressa fólkið að sitja fyrir framan símann sinn og tala í óratíma um ekkert, segja skoðun sína á öllu, bara til að geðjast aðdáendum sínum og sjást meira - og skemmtilegheitin hverfa. Fyrir kisuaðdáendur er ég gurrih - en ég get ekki sagt að ég sé mjög virk eða sérlega skemmtileg en kettirnir bæta það upp.
Ég ætla að gera eitt sem ég geri aldrei, ætla að leggja mig, þetta veður sem mér finnst ekkert athugavert við, gerir mig svo syfjaða. Samt svaf ég næstum til hádegis. Ég þrái að leggjast ofan á rúmteppið og loka augunum í klukkutíma áður en ég fer að elda ofan í okkur stráksa. Nú skil ég betur þegar fólk talar um kósíheit undir teppi í vissu veðri ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2021 | 23:50
Sushi-svik, seleb í Costco og Mozart á miðnætti
Sérlega hentugt að hafa komist í bæinn í morgun og í Costco áður en óveðrið skellur á í fyrramálið. Meira að segja búið að aflýsa strætóferðum milli Reykjavíkur og Akraness. Það var hægt að kaupa alls konar vistir; rafhlöður, álpoka, áttavita, stuttbuxur, trasistor-útvarp, regnhlíf og landakort en ég geri nú samt ráð fyrir að Himnaríki standi af sér veðrið. Veðurfræðingur í gær talaði um leiðindaveður, það eru fordómar. Þetta er spennandi veður. Þegar maður er inni og gluggar lokaðir.
Myndin hefði getað verið tekið í Costco í dag, nema þetta eru karlmenn. Ég var ekki leðurklædd og sú sem ég dáist að og fylgi á Instagram ekki í stuttbuxum. Að öðru leyti allt rétt.
Það er alltaf gaman að fara í Costco. Þar voru nokkrir sem ég þekkti, eins og Guðrún E. í leit að ákveðnu þvottaefni og fann ekki, ekki ég heldur þegar ég skannaði búðina. Hún þarf að koma á Skagann og við fara í Einarsbúð. Svo mætti ég nokkrum sinnum pari sem mér fannst kunnuglegt - en við Jón Gnarr eigum það sameiginlegt að vera ekki alveg nógu góð að þekkja ef nef- og munnsvip vantar. Í þriðja eða fjórða gangi hittumst við í þriðja eða fjórða sinn og þá vatt konan sér að mér og spurði: Fyrirgefðu, hvað heitir þú?
Gurrí ... en þú?
Hún kynnti sig, dró niður grímuna og ég missti mig af spenningi, þetta var eitt af aðalseleb-unum mínum (áhrifavöldum, fræga fólkinu) á Instagram og snappinu ... sem ég hef fylgst með í nokkur ár í gegnum súrt og sætt, frá búsetu þeirra á Spáni til Kópavogs í dag og komin með tvö ofsasæt börn ... enn með tvo hunda og hún þekkti MIG?!?
Bíddu, hún er svo ung, getur varla hafa verið fædd þegar ég var útvarpsstjarna barnanna 1986, hugsaði ég með sjálfri mér, hún á kannski eldra systkini sem tók alla þættina upp á teip og ... en gleðin og ofsamontið stóð stutt:
Við erum Facebook-vinkonur, sagði hún glaðlega og ég varð að hrósa henni virkilega fyrir að hafa þekkt mig af nokkurra ára gamalli mynd af mér farðaðri - og með grímu þarna, og þar fyrir utan bætir MichelinMan-úlpan mín á mig 20-30 kílóum.
Ég lenti líka í svipuðu með Evu Ruzu fyrir þremur árum eða svo, hún er mjög fyndin og skemmtileg á Instagram sem ég vissi ekki þá. Hún var að skemmta einhvers staðar þar sem ég var og kvaðst kannast svo voðalega við mig. Frægð mín stóð þó ekki lengi. Þegar við Hjörtur Howser vorum saman með morgunþátt á Aðalstöðinni á síðustu öld fengum við okkur stundum hádegismat saman og matsölustaður ættar hennar, Svarta kaffið, varð oft fyrir valinu, flott súpa og stundum chili con carne í brauði - og hún var að vinna þarna stundum. Ég áttaði mig á því þegar ég fór að fylgja henni á Instagram. Já, við áhrifavaldar ...
Mér líður samt svolítið eins og ég sé eltihrellir. Hitti báðar Systur og maka-systurnar á einum og sama deginum nýlega, Kristu reyndar viljandi (með hennar samþykki, að sjálfsögðu), Kötlu óvænt, og nú þetta! Kannski standa áhrifavaldar svona svakalega saman og ég farin að öðlast viðurkenningu án þess að hafa áttað mig á því. Sem veit á rándýrar gjafir sem fara að berast mér. Sem er samt hræðilegt því dyrabjallan er enn biluð. Ekki bara ástamálin sem fara í rúst, sumir rafvirkjar hafa helst til of mikið á samviskunni.
Einhver sem hefur lesið sálfræði gæti ímyndað sér að kaup mín á sítrónusandkökunni í Costco hafi stafað af vonbrigðum mínum þegar ég komst loksins í Krónuna í gær til að kaupa geggjað sushi sem verður hér eftir alla föstudaga í boði, rétt upp úr hádegi, og þegar ég mætti um fimm, hálfsex, var allt búið. Ákaflega sárt að þurfa að horfa upp á óvænta græðgi Skagamanna sem hafa hingað til ekki sýnt þá hlið á sér. Ég hafði boðið Ingu í mat, í sushi og þurfti að redda þessu einhvern veginn. Ég fann krukku með Chili con Carne, einhverju voða hollu og góðu (frá Happi?) sauð hrísgrjón og bar þetta á borð. Inga starði á mig. Er ég orðin eitthvað rugluð? spurði hún. Í stað þess að gaslýsa hana og segja að ég hefði aldrei minnst á sushi, sagði ég henni að ég væri léleg í því að bera fram heiti á erlendum matvælum. Ég bæri iðulega fram orðið pasta sem lax og jú, það hefði oft valdið sárum misskilningi og vonbrigðum, sérstaklega þegar kæmi að matarboðum. Inga gleypti þetta og líka dásamlega chili con carne-ið sem dugði okkur þremur og rúmlega það. Virkilega þægilegur og fljótlegur matur sem ég sagðist hafa eldað frá grunni. Í ástum, matseld og stríði er víst allt leyfilegt.
Jæja, Mozart á miðnætti á RÚV - ætla ekki að missa af því. Fregnir af veðri koma strax á morgun, kannski eldgosi líka, það er allt í gangi núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 195
- Sl. sólarhring: 244
- Sl. viku: 376
- Frá upphafi: 1528189
Annað
- Innlit í dag: 160
- Innlit sl. viku: 298
- Gestir í dag: 158
- IP-tölur í dag: 154
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni