5.6.2021 | 15:32
Stefnumót - undirbúningur hafinn
Undirbúningur fyrir stefnumótið við veðurfræðinginn þann tíunda er í fullum gangi. Þótt hann talaði um að hann hrifist af mjúkum línum ákvað ég samt að herða þær svolítið og tálgaði af mér nokkur kíló í vikunni. Eins og allir vita er það mjög auðvelt. Bara borða minna og hreyfa sig. Ég fór í fótsnyrtingu (til öryggis, veit ekki hvort verður hæð eða lægð yfir Grænlandi þann tíunda) og svo verður allsherjar yfirhalning á því sýnilega auðvitað, eins og á hári og andliti, og fer fram þann áttunda. Verslunin Nína sá um verulega glæstan klæðnað en átti ekki til g-streng. Svo ég varð að fara í bæinn.
Fór í vinsæla búð við Síðumúla, afgreiðslumaðurinn var mjög indæll. Horfði reyndar þegjandi á mig í nokkra stund eftir að ég bar upp erindið og sagði svo: G-streng? Farðu niður á Grensásveg, í búð sem heitir Rín, þar færðu strengi.
Mig vantar nú bara einn, sagði ég og flissaði feimnislega. Mig langaði að segja eitthvað lúnkið um harðsperrur (strengi) en datt ekkert í hug.
Einmitt, sagði hann góðlátlega og við kvöddumst með kærleikum.
Og ég fór í Rín og bar upp erindi mitt, stillti mig samt um að segja að ég væri sko að fara á stefnumót, það fyrsta í átján mánuði. Jú, jú, til voru g-strengir í miklu úrvali, maðurinn benti á hillu í suðvesturenda búðarinnar og hélt svo áfram að spila á píanó sem var staðsett þarna, búð með stíl. Mér leist einna best á pakkann með flotta nafninu: Chrome Steel Flat Wound on a Full Steel Core G-653 og var frá fyrirtæki sem heitir La Bella. Mér fannst eins og nafnið gæfi mikil fyrirheit um mjög spennandi kvöld ... og nótt. Svo kostaði hann bara 2.089 kr. sem var ekki verra.
Nú þarf ég að gera játningu. Ég hef aldrei átt g-streng, hefur fundist það óþarfi í lífi sem snýst mest um kaffi, bækur, ketti og slíkt. Ég ákvað að máta í gær, það er nefnilega fátt verra en að hafa ekki tímann fyrir sér. Fara í eitthvað grunlaus um að það sé annaðhvort of lítið eða of stórt! Ég gleymdi alveg að spyrja afgreiðslumanninn um stærðir, fannst þegar ég skoðaði að þessi vara væri one size-dæmi.
Það urðu reyndar ákveðin vonbrigði að opna pakkann, strengurinn var svolítið eins og stífur vír sem ég þurfti að vefja utan um mig en samt var þetta ekki jafnóþægilegt og mætti halda því strengurinn var það stífur og meðfærilegur að hann snertir hvergi húðina nema rétt í mittinu. Ég gat alveg stjórnað því. Það flögraði að mér að fara aftur í Rín og kaupa meira, þetta gæti orðið áhugaverð flík ögn ofar ... orðið barb-wire skaust upp í hugann - en ég hélt aftur af mér. Nægur tími til stefnu ef stefnumótið gengi vel, aldrei að opna fjársjóðskistuna upp á gátt á fyrsta deiti. Það tók frekar langan tíma að komast úr járn-brókinni eins og ég fór að kalla þetta með sjálfri mér. En satt að segja skil ég ekki alveg vinsældir g-strengja, hvað þá ástæðu þess að þetta þykir kynþokkafullur klæðnaður. Ég hef lesið um þetta og veit að augu þeirra sem njóta standa jafnvel á stilkum. En ég veit ekki hvað mér á að finnast, ætla samt að vera í þessu.
Núna um helgina mun ég íhuga að safna þvagi til að geta þvegið hárið upp úr því á miðvikudaginn (níunda) og þannig tryggja gljáandi fallegt hár (ég las um það í Dalalífi) en morguninn eftir með venjulegu sjampói auðvitað. Æ, líklega of langt gengið til að koma vel út.
Svo væri ekki galið að rifja upp gamlar og góðar pikköpplínur, karlar hafa engan einkarétt á þeim:
Ég á rauðvín heima og get boðið þér í glas þar, eða viltu kannski bara peninginn?
Dastu af himnum ofan, þú ert svo sætur!
Viltu koma heim með mér og skoða frímerkið mitt?
Hvað er svona sætur gaur eins og þú að gera á stað eins og þessum?
Ég kann ekki fleiri línur - mér finnst þær æðislegar og mjög fyndnar nema kannski sú fyrsta sem ég breytti svolítið og aðlagaði að blindu stefnumóti, en þær hafa aldrei virkað, engin þeirra. Þessa síðastnefndu notaði ég á Dubliner í kringum 1997 en gaurinn, þessi gamli skólabróðir minn eða eitthvað, ég átti að þekkja hann, og sagði þetta til að brjóta ísinn - varð alveg brjálaður og rauk í burtu. Enn í dag einn af stóru leyndardómum lífs míns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2021 | 11:31
Hæ, blokkarar
Að vakna svona aftur og aftur fyrir níu á hverjum morgni finnst mér grunsamlegt, vægast sagt, sennilega bólusetningunni að kenna eða einhverju þaðan af verra. Eða meiri birtu? Ég er líka farin að fá nýjar og ferskar hugmyndir - eins og húsakaupin í Reykjavík en tími samt ekki að selja himnaríki. Að flytja í svona stórt getur samt þýtt vesen. Mér skilst að það sé mikill hörgull á ráðsmönnum (butlerum) hérlendis sem setur í raun allt í uppnám. Hver á að tilkynna gestakomur? Svo þarf ég að ákveða hvar búseta mín Reykjavíkurmegin hafsins verður, í stóra húsinu (2) eða garðhýsinu (1) ... Þetta er fínasta hverfi. Ég myndi segja að ég byggi í 170 Akranes, við sjóinn, en ef ég léti rífa nokkur hús við Laufásveginn sæi ég næstum sjó ... eða beint niður að Reykjavíkurtjörn. Það verður alla vega haldin afmælisveisla í ár. Á Laufásvegi eða í himnaríki.
- - - - - - - - -
Við Inga fengum okkur arabískan mat á Flamingo í gær og hittum þar myndarmann sem við könnuðumst nú vel við og sagði: Hæ, blokkarar! Við Inga litum forviða hvor á aðra, við höfðum aldrei blokkerað þennan myndarlega mann á Facebook og hefðum aldrei gert. Ekki sagði hann bloggarar því Inga bloggar ekki. Ég var samt glöð og hreykin í 1/100000 úr sekúndu yfir því að hann hefði kannski lesið bloggið mitt en svo mundi ég að það eru bara þeir sem ég býð í afmælið mitt eða ég borga á annan hátt sem lesa það. Eftir um það bil sekúndu (við erum engir bjánar) áttuðum við okkur á því hvað hann meinti. Við ólumst öll upp um tíma í sama húsi á Skaganum, Nýju blokkinni sem stendur við Höfðabraut og töldumst vera frumbyggjar þar. MYNDIN er tekin úr Gömlu blokkinni minni, og það sést bara rétt í endann á Nýju blokkinni lengst til hægri. Ekki eru mörg ár síðan við hittumst í frumbyggjaveislu sem blásið var til, svona Pálínuboði þar sem allir komu með eitthvað, spjölluðu saman og spurði frétta um hvernig síðustu áratugir hefðu verið ... ótrúlega skemmtilegur hittingur. Hann Steini í Dúmbó bjó í þessari blokk, ekki lengi samt, en hann var fyrsta stóra ástin í lífi mínu, ég var sex ára með þessar heitu tilfinningar í margar, margar vikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2021 | 14:11
Regn eða kannski bara sól
Þegar möguleiki er á því að þetta verði eins konar matarblogg, stundum allavega, verða nú að koma matartengdir brandarar, ekki satt? Eins og: Hafið þið heyrt um selinn sem borðar bara sinnep? Selinn Dijon?
Já, það var bara skyrdolla 2 í kvöldmat í gær (aldrei of illa farið með góða konu) en í morgun- og hádegisverð í dag; tvö egg, beikon og steiktir rauðir tómatar. Ég verð södd langt fram eftir degi. Og almáttugur hvað ég er orðin góð í kaffinu. Sitt af hverju rifjast upp síðan ég var smakkdómari á árum áður í kaffibarþjónakeppnum, eins og að pressa hvorki of laust né of fast í greipina með kaffinu því vatnið má hvorki renna of hratt né of hægt í gegnum kaffið ... Ég hef sterkt á tilfinningunni að fólk komi í stríðum straumum til mín í kaffisopa í sumar, stríðum kaffistraumum ...
Sko, ef ég held áfram að búa hérna á Skaganum. Ágætis húsnæði við Laufásveg er nú auglýst til sölu, í það stærsta kannski og í fasteignaauglýsingunni sést ekkert eldhús, bara fullt af sölum, herbergjum, ranghölum og klósettum. Haldið að væri gaman að halda upp á afmælið sitt þarna? Sennilega voru þarna ýmsar spennandi græjur sem ég þekki frá fyrri árum mínum hjá leyniþjónustunni en eflaust búið að plokka megnið úr veggjum. Það er helst garðurinn (sjá mynd 1) sem ég er spennt fyrir, ekki fyrir mig, alls ekki, oj bara, heldur kettina, hvort hann sé nógu öruggur og heldur þeim innan svæðis. Svo þyrfti ég að velja hvort ég búi í salarkynnum stóra hússins eða sérhúsi í garðinum. Fínt hverfi, stutt að fara til Löllu, líka í sollinn og djammið en nógu langt frá samt til að fá svefnfrið um helgar, tel ég nokkuð víst.
- - - -
Nú hef ég séð að bólóhatarar (andstæðingar bólusetninga, stytting) eru farnir að skammast í bólusettu vinafólki sem gleðst opinberlega yfir því að geta um frjálst höfuð strokið. Ég er reyndar frekar fúl yfir því að hafa fengið AstraZeneca (sama dag og Þórólfur og Bubbi Morthens) en bara vegna þess að seinni sprautan er ekki fyrr en í lok júlí - og ferðalagið okkar Hildu norður er fyrir þann tíma. Ég get t.d. ekki farið í sleik fyrir norðan sem eru vonbrigði - þetta verður sennilega tíðindalítil systraferð í stað veiðiferðarinnar sem ég var búin að skipuleggja. Ég var í þann mund að komast að því hvar sætustu karlarnir (55-65 ára) halda sig á Norðurlandi, afþakkaði þó Siglufjörð ... Sem minnir mig á að mamma er farin að kalla mig maddömu Guðríði. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það, reyni að segja henni að hætta en hún flissar bara.
Já, og ég fann loksins pottþétta aðferð til að kalla fram rigningu (sjá mynd 2). Enginn vandræðalegur dans lengur eða að rogast með þvott út á snúru - sem er því miður hætt að virka. Ég hefði átt að fatta þetta fyrir löngu, krakkar voru hundskammaðir fyrir þetta í sveitinni ... Veðurfræðingurinn minn verður óður (ást við fyrstu sýn?) þann tíunda á stefnumótinu okkar þegar ég sýni honum þetta. Ég áttaði mig fyrst á því hvað ég hef gott lag á veðri þegar ég ferðaðist með strætisvagni á milli Akraness og Reykjavíkur í tíu ár (2006-2016) - fór alla virka daga nema þriðjudaga. Það var sérlega oft ófært á þriðjudögum um Kjalarnes á þessum árum, þannig að ... Bið samfarþega mína afsökunar, þótt seint sé.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2021 | 21:03
Stríð fyrir athygli
Einn diskur súrmjólk með kornfleksi, einn banani og ein lítil skyrdós í dag - ég sem ætlaði að fremja miklar kúnstir í eldhúsinu á meðan stráksi væri í sumarbúðunum. Hann vill hafa hlutina svolítið í föstum skorðum ... ekkert tilraunaeldhús. Ég gleymi seint svipnum á honum þegar ég eldaði rabarbaragraut upp á gamla mátann. Ég veit ekki hvort mér þyki þetta gott en má ég fá meira? Sem minnir mig á, nú þarf ég að redda mér rabarbara í pínulitla frystinn fyrir veturinn.
Svo er ég í hálfgerðri sorg núna, döpur vegna áframhaldandi kattafjandskapar sumra hér á landi. Einhverjir fjölmiðlar njóta þess að skella inn stóryrtum fyrirsögnum kattahatara í þeirri von að kattavinir stökkvi á vagninn og allt verði vitlaust (klikk, klikk, klikk) en ég upplifi frekar dapurleika núna hjá kattavinum. Þetta er enn ein aðförin og sennilega ekki sú síðasta. Á eftir manni af Norðurlandi hafa fleiri tjáð sig (allavega einn) og fengið misgeðug komment frá þeim sem eru lítið/ekkert fyrir ketti, mest körlum. Þetta minnir mig á það þegar Trump komst til valda í USA og í kjölfarið skriðu alls konar ódámar úr holum sínum og fengu allt í einu mjög háværa rödd undir verndarvæng forsetans. Mér þykir vænt um fugla og gef þeim oft, sérstaklega yfir vetrartímann, en er samt ekki til í að banna bíla sem eru það sem drepur einna mest af fuglum, heyrði ég einhvers staðar, eða banna hús sem þeir fljúga á og drepast í stórum stíl ... og svo framvegis. Mér finnst eðlilegt að kattaeigendur haldi köttum sínum inni á þessum árstíma eða setji á þá bjöllur og trúðahálskraga, allt til að bjarga ungunum. Held að flestir kattavinir séu þessu sammála - svo ég skil ekki stríðið.
Þegar ég bjó í London 1976 var mikið um hunda og ketti í hverfinu mínu (Acton Town) og ég varð aldrei vör við nokkurn sem agnúaðist út í þessi dýr, frekar hið gagnstæða - á meðan hér á landi kunnum við ekki enn að búa í borgum og bæjum. Dýr eiga bara heima í sveit, fullyrða sumir enn í dag. Þegar ég flutti í bæinn 1971 var hundahald stranglega bannað og hundum hiklaust lógað ef fólk dirfðist að halda þá í felum. Að hugsa sér ...
Þegar ég reyndi að fá smáskilning hjá mömmu (sem er lítið fyrir ketti og hunda, samt ágæt) og klagaði mann að norðan fyrir henni sagði hún: Iss, hann er bara skotinn í þér. Ég frussaði af hneykslan en nú er ég farin að efast. Var ekki heilt stríð háð vegna einhverrar Helenu í gamla daga? Og kannski var heilt stríð sett af stað til að ná athygli minni, ef mamma hefur rétt fyrir sér. Það skyldi þó ekki vera? Það yrði nú flott í ævisöguna.
Ókei, ég er orðin máttlaus af hungri og nánast geðvond sem gerist nú ekki oft. Sennilega fæ ég mér skyr aftur og banana en matseðillinn á morgun verður eitthvað meira djúsí ... ef ég finn bókina góðu sem inniheldur gamla (ekki samt eldgamla) matseðla frá Bessastöðum meðal annars, úr veislum sem íslenska þjóðin bauð þjóðhöfðingjum annarra landa í. Vona að Einarsbúð eigi til gullflögur, fasanaegg, djúpsteikt lóuhreiður og annað spennandi sem hlýtur að finnast í uppskriftunum ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.6.2021 | 14:02
Engin samkeppni ...
Ég hef haft Storytel um hríð, örugglega í meira en ár en bara hlustað á eina og hálfa bók, þessa einu heilu með Hildu systur, í bílnum á leiðinni norður í fríið okkar í fyrra en hún er mikill aðdáandi Storytel. Eitt sinn gaf hún mér gott ráð, eiginlega brilljant húsráð. Eins og svo margir hata ég virkilega að ganga frá þvottinum. Ekkert mál að setja í þvottavél og þurrkara, jafnvel að brjóta saman en að klára dæmið, setja hreinan og ilmandi þvottinn í skápa og skúffur tekur stundum tímann sinn.
Í morgun fór ég að ráðum hennar, og á meðan ég braut saman föt úr þremur körfum og gekk frá las Hinrik Ólafsson fyrir mig fyrstu kaflana úr Dauðahliðinu eftir Lee Child. Og á meðan Jack Reacher slóst við sjö mótorhjólagaura, flokkaði ég svörtu sokkana mína, mörg, mörg pör sem nú eru ofan í skúffu (bara þrír stakir). Og Reacher fór á puttanum, fyrst með hressri konu og síðan mjólkurbílstjóra yfir nótt sem hann þurfti að halda vakandi á keyrslu á meðan ég braut saman rúmfötin sem ég þvoði í gær. Nú eru allar körfur tómar, hálf handklæðavél óþvegin og fötin sem ég klæddist í gær eru það eina - stefni samt á að halda áfram að hlusta eftir vinnu í dag og rosalega er Hinrik góður lesari, engin leikræn þjáning sem skemmir víst svo mikið, segir hlustarinn hún systir mín.
- - - - - -
Í gærkvöldi fékk ég óvænt símtal. Ekkert lát á ævintýrum í Himnaríki.
Halló. Er þetta Guðríður? Sæl, ég er xxx veðurfræðingur.
Jú, sæll, það er hún, alltaf kölluð Gurrí samt.
Við erum hérna nokkrir veðurfræðingar afar ósáttir við eina bloggfærslu þína frá því fyrir helgi, við nebblega sofum hjá mun oftar en bara þegar það er lægð yfir Grænlandi! Ég er reyndar sjálfur ógiftur svo ...
Ókei, sagði ég greindarlega.
Þessi skrif þín gerðu enga stormandi lukku hjá okkur, hélt hann áfram. Hann var orðinn svo kuldalegur að gemsinn minn hrímaði. Getur verið að þessi ósanna kjaftasaga sé frá óvinum okkar, jarðskjálftafræðingum?
Ja, sko ...
Mér datt það í hug. Það kæmi okkur alls ekki á óvart, þeir nebblega eru einskis nýtir sjálfir í bólinu nema jörð skjálfi hressilega og eins og þú manst, Guðríður, hefur jörð skolfið í undanfara gossins á Reykjanesskaga, ekki rétt? Og hvað gerðist? Nú, annar hver jarðskjálftafræðingur, eða skjálfari, eins og við köllum þau, á von á barni sem sannar mál mitt, þeir dagar (fimmtudagar) þegar við veðurfræðingar hittum skjálfara á sameiginlegum fundum kallast bolludagar og ekki í gríni. Við grínumst ekki með svona hluti. Ég man síðast eftir þessu fólki (jarðskjálftafræðingum) með bauga niður á herðar, subbulegt glott á morgnana, óléttu eða tala um óléttu, um aldamótin síðustu, eftir miðjan júní, og svo aftur 2008, bætti hann við. Hann var orðinn talsvert hlýlegri eftir að hafa fengið góða útrás og eintóm samsinnandi og róandi aha frá mér. Við kvöddumst með hlýju loforði um stefnumót fljótlega, fyrst þetta með vissar lægðir yfir vissu landi var leiðrétt, fannst mér asnalegt að neita. Hann var farinn að kalla mig Gurrí og allt. Ég veit alla vega núna af hverju veðrið hefur verið svona slæmt síðan fyrir helgi en ég á von á því að það verði gott í kringum tíunda júní, þá verður stefnumótið okkar.
Það stendur sennilega blaðamaður fyrir aftan nafn mitt í símaskránni, ja.is, ekki sérlega spennandi, en mig langar svo ofboðslega til að breyta því eftir að ég sá ákveðið starfsheiti í frétt í gær. Kristilegur megrunarráðgjafi! Fréttin var svo sem ekki gleðileg, en starfsheitið er það. Kannski gaman að skipta um starfsheiti til að skemmta sjálfri mér, vinum mínum og skrattanum? Eða væri sniðugt að söðla alveg um og skipta um starf? Nú hafa algjörlega nýir möguleikar opnast fyrir mér.
Held að samkeppnin á þessu sviði sé nákvæmlega engin á Íslandi (og fækkað eitthvað í USA). Ég myndi raka inn peningum. Það er minnsta mál að finna góð megrunarráð, jafnvel búa til einhver sjálf (t.d. sambland af sítrónu- og Landspítalakúrnum, sambland af ketó- og vegan?) og lesið svo meðfram ráðunum eitthvað djúsí og matartengt úr Biblíunni - en kristilegt mataræði þarf ekki að vera meinlætalegt, alls ekki ef fólk gengur nógu mikið eins og það gerði fyrir 2000 árum, ég myndi ráðleggja það þótt ég hati göngur sjálf. Ég gæti gefið út spennandi matreiðslubækur; Fæða frelsarans, Frelsarinn var engin feitabolla, Mergjuð og mjó eins og María, Fjörutíu dagar, fjörutíu nætur ... Fasta-pasta ... Ég gæti síðan haldið námskeið vítt og breitt um landið, jafnvel víða um heim ef ég æfi mig meira í enskunni. Veit einhver hvar maður sækir um breytingu á starfsheiti?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni