24.9.2025 | 00:15
Kattamál, ekki-lakkrís og ný matarkista ...
Bráðskemmtilegur kaffihússhittingur nýlega með skemmtilegu fólki og ýmislegt fyndið um alls konar látið fjúka. Nú hefði verið gott að skrifa enn lífsreynslusögurnar í Vikuna ... gamansögurnar fannst mér alltaf skemmtilegast að fá. Ég var svo óþolandi, t.d. ef einhver sagði mér eitthvað þá spurði ég hvort ég mætti nota söguna, myndi breyta nöfnum og ýmsu svo ekki þekktist - og það var yfirleitt ekkert mál.
Einu sinni var hringt frá miklu ríkisbákni, Ríkisskattstjóra, minnir mig, út af einni djúsí lífsreynslusögu. Sú sem hringdi hafði haldið að þær væru allar tilbúningur en ákvað samt að prófa, en ég gat, eftir eitt símtal við þann sem sagði mér söguna (og hélt ranglega að ekki yrði hlustað á hann ef hann léti yfirvöld vita af vissum glæp, hélt reyndar að hér væri um siðlaust en löglegt dæmi að ræða), fékk ég samþykki og gat sagt ríkisbatteríinu frekari deili á vonda karlinum í sögunni. Mig grunar að þau hafi vitað allt um hann þótt ekkert væri látið uppi, fannst alla vega að þetta hefði ekki komið á óvart.
En alla vega, ein örstutt kaffihússhittingssagan er um voða fínan og flottan karl úr Garðabænum sem gegndi fínu og flottu embætti. Hann var að kveðja húsráðendur eftir sérlega glæsilegt matarboð með flottasta fólkinu í bænum og þegar hann var klæða sig í fína fokdýra frakkann sinn í anddyrinu rak hann augun í glæsilega marmara- eða kristalsskál fulla af lakkrís. Hann tók nokkra bita og skellti upp í sig og áttaði sig þá á því að þetta var ekki lakkrís, heldur sérlegar plasthlífar (svartar) til að setja undir hælinn á hælaháum skóm til að hlífa parketinu ... Konan hans hefur víst ekki getað hætt að hlæja.
Ótrúlegir læknadagar framundan ... þótt allir hér séu heilbrigðir (eftir bestu vitneskju) en skv. rafrænu dagbókinni minni í gemsanum verður mikið um að vera. Á morgun fer einn íbúinn hér í efra til tannlæknis. Næsta dag fer ég til heimilislæknis, í tíma sem ég pantaði snemma í júlí og fékk í lok sept.. Þarf víst vottorð um andlegt og líkamlegt heilbrigði til að fá að blogga hér, skilst mér - eða fá að búa í þessu dýrlega fjölbýlishúsi - eða fá að kenna í besta skóla í heimi ... eða fá leyfi til að fóstra barn. Síðar sama morgun fá kettirnir mínir dýralækni heim (Comfort Vet, enskur dýralæknir og litháískur dýralæknir), lúxus sem kattardýr mín hafa ekki fengið í áratugi, eða síðan Dagfinnur á Skólavörðustíg bauð upp á slíkt þegar ég átti Fjólu og Támínu og bjó á Hringbraut. Þeir Krummi og Mosi eru alheilbrigðir, held ég, en mér finnst öryggi í því að láta tékka á þeim. Krummi (14) var 4 mánaða síðast þegar hann fór til dýralæknis og sennilega fór Mosi (11) síðast 2016 eða 2017. Hann flutti til mín þegar Einar dó í byrjun árs 2018. Þeir eru mjög heilbrigðir innikettir, en fyrst þessi þjónusta er í boði finnst mér sjálfsagt að nota hana, láta kíkja á þá árlega - oftar ef eitthvað virðist ama að.
Mynd: Krummi og Mosi á Akranesárunum, 3. janúar 2022, þarna nákvæmlega fjögur ár síðan Mosi flutti til mín. (Hætt með heimasímann.)
Ég fór í Hagkaup í Skeifunni eftir kennslu í kvöld, til að kaupa eitthvað mjúkt undir tönn - vegna yfirvofandi tanntöku eins íbúans hér, skyr, hollustudrykki, bananabrauð ... mér datt svo sem ekkert mikið fleira í hug en drengurinn er alsæll með innkaupin (alla vega súkkulaðiskyrið). Verslunarstjórinn lá í körfu sinni við innganginn og leyfði mér náðarsamlegast að klappa sér, af því að ég blikkaði hann, eða lygndi aftur augunum framan í hann. Það er kattamál sem merkir: Ást og friður, félagi! Fékk blikk á móti en ekkert hjartnæmt annað, enda mest klappaði köttur landsins þótt víðar væri leitað.
Ég prófaði hér heima annað kattamál sem ég hafði séð á Instagram, og á að líkja eftir kalli læðu á kettlingana sína. Mehhh ehhhh ... og hafa ehhh-ið í hærri tóntegund, eins og me-ið í C og ehh-ið upp í F eða G, jafnvel hærra. Mínir kettir eru mögulega of gamlir því þeir horfa bara forviða á mig þegar ég reyni þetta á meðan kettirnir í myndbandinu koma hlaupandi. Möguleiki samt að sá sem setti Istagram-myndbandið inn hafi vanið sína ketti á að hlýða þessu kalli og gefið þeim rækjur og rjóma fyrir.
Ég er farin að venjast því að búa ekki alein með köttunum. Ýmsir kostir fylgja, m.a. sá að það er alltaf heitur og hollur kvöldmatur og ég passa mig rosavel að kaupa ekki sælgæti enda alltaf nógu södd af mat til að þurfa ekki eitthvað fljótlegt til að ná upp blóðsykri í hvelli ... Það er eins og bölvun fylgi sælgæti sem ég kaupi ... "til að eiga með kaffinu ef skyldu nú koma gestir ..." ég klára það nánast alltaf í hvelli, alein!
Galli? Eina tónlistin sem ég kvelst bæði andlega og líkamlega yfir, sálartónlist, er farin að heyrast hér nokkuð reglulega en af því að elskan hún Laufey okkar heyrist líka, slaknar á taugum mínum inn á milli. Ég kvarta alls ekki, reyni bara að muna að lífið er ekki dans á rósum. Muna, muna! En má, samkvæmt lögum, kalla hvaða væl sem er tónlist?
Nemendur mínir lærðu m.a. orðið hlusta í kvöld ... og gátu skilið sem aukabónus hvað var að hlusta á músík. Þau vita nú að ég er rokkhundur og það er einn nemandinn líka, ég gladdist mjög yfir Nirvana- og Pink Floyd-áhuga hans, Eminem, Wu Tang Clan og Pixies en hinir nemendur mínir hafa misst allt álit á mér (og honum). Ég sem ætlaði að segja þeim allt um Skálmöld!
Ég hef minnst á það áður hér, eða á dásamlega fólkið í næsta húsi við mig á Akranesi sem fannst ég svo mjó (eina fólkið í öllum heiminum) og var því alltaf að færa mér mat (elsku dásamlegu Fatima og Hassan). Það voru ekki bara góðar hitaeiningar, heldur hlýjaði þetta ekkert smávegis um hjartaræturnar. Þetta hús hér í 104 Kleppur (ohh, hvað ég vildi að mamma væri enn að vinna á Kleppi og gæti skroppið í kaffi til mín) er að breytast í allsherjar matarkistu, held ég. Um hádegisbil í dag mætti ein dásemdin með hálft nýbakað súrdeigsbrauð, verulega gott! Um miðjan dag mætti svo önnur elska með dall fullan af gómsætum steiktum fiski og kartöflum. Það mættu víst frekar fáir í mat þar sem hún er að vinna og matráðskonan grátbað starfsfólkið í eldhúsinu að taka með sér mat til að sporna við matarsóun (mávarnir eru líka farnir til Afríku). Þessi dásemd nr. 2 ætlaði að taka fisk fyrir sig og manninn sinn en tárvot matráðs sagði: taktu meira, taktu meira ... sem þýddi að þetta heimili hér hefur verið pakksatt í allan dag og kvöld og svo í hádeginu á morgun! Væri meira en til í að vera í fæði þarna, svo vel smakkaðist fiskurinn - en það er víst sjaldnast afgangur í boði. Algjör heppni fyrir mig hvað mættu fáir í mat í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2025 | 23:57
Eldfjörugt samkvæmislíf og nokkrir Norrisar
Afmælisboð í Kópavogi í dag, 13 ára gutti sem varð forríkur eftir daginn, tókst að safna fyrir því sem hann langaði í, elsku krúttið. Ég gaf honum líka pening en þar sem ég geng ekki með seðla á mér varð ég að koma við í hraðbanka. Ég prófaði heima að gúgla hraðbanki Hamraborg og áttaði mig allt í einu á því að algórythminn myndi hnippa harkalega í lögregluna, jafnvel sérsveitina, svo ég hljóp út í hvelli. Það upphófst æðisgenginn flótti en þótt ég þyrfti að bíða í átta mínútur eftir tólfunni var eins og lögreglan sæi mig ekki ... við strætófarþegar erum svo sem allir eins. Klakklaust komst ég í Kópavog, takk, leið 12 og leið 4, og tókst að komast yfir fé úr hraðbanka í grennd við Katalínu. Fyrst gekk ég í kringum allt Landsbankahúsið í Hamraborg án þess að sjá nokkur merki þess að þar væri hraðbanki, en hann er samt þarna, heyrði ég nokkru síðar. Skaust svo inn í dýrðarinnar afmælisveislu (án þess að löggan næði mér) með brauðtertum, kjúklingaspjótum, marens og súkkulaðitertu.
Ókunnur maður nánast tók mig á löpp í afmælinu - ég er alla vega enn rjóð og undirleit. Þar sem ég bý í 104 Reykjavík, eins og hann, sagði hann að ég væri Þróttari. Ég veit ekki hvað það er, en það hljómar eins og dágott hrós. Svo þegar hann talaði um að við hlekkjuðum okkur saman, leiddu hugrenningartengsl mín mig beint að trúlofunarhringjum. Ansi langt gengið eftir 20 mínútna kynni ... en lífið er svo sem of stutt til að þiggja ekki alla rómantík sem býðst.
Ég minntist á þetta (eftir að nýi "unnustinn" var farinn) við tilvonandi mág minn, eða bróður mannsins sem segir mig þróttara, og vill svo skemmtilega til að er tengdasonur litlu systur, hvað væri gaman að fá svona bónorð í fyrsta sinn sem við hittumst. Aðdáandi minn er að vísu áratugum yngri en ég og víst hamingjusamlega giftur og á krakka og allt, en ástin spyr ekki um aldur. Tengdasonur systur minnar (TSM, héðan í frá) vildi meina að bróðirinn hefði átt við að við myndum hlekkja okkur saman við jarðýtu EF svo hroðalega færi að Sundabraut kæmi upp á hlaðinu hjá okkur, eða við Holtaveg sem myndi sannarlega ekki þola alla þá umferð sem kæmi, hvað þá Laugardalur vors og blóma. Mér fannst TSM ansi snöggur að finna upp svo ótrúlega sögu, bara til að þurfa ekki að verða mágur minn, það getur varla verið að svo mikilli umferð verði beint í svo stórt en þröngt íbúðahverfi ... og það getur heldur varla verið svo hræðilegt að verða mágur minn!
Ég varð þess mikla heiðurs og gleði aðnjótandi nýlega að vera boðið að vera viðstödd þegar Nanna, vinkona til áratuga, fékk Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Það var einstaklega gaman að koma í Höfða, ég hafði aldrei komið þangað þótt ég hafi nánast verið með annan fótinn á Bessastöðum (tvisvar). Líka gaman að heilsa upp á borgarstjóra og þakka henni kærlega fyrir strætó ... eða tíðari ferðir núna nýlega.
Mikið hlakka ég til að lesa bókina hennar Nönnu, bæði glæpasöguna fyrir fullorðna og verðlaunabarnabókina. Nanna er skemmtilegur og góður penni og henni algjörlega að þakka að ég fékk 8 í dönsku í landsprófi á Króknum.
Þann sjötta þessa mánaðar stökk ég upp í strætó, leið 12 sem ber mig í flesta miðpunkta lífs míns, Mjódd á meðan ég bjó á Akranesi, og í hina áttina niður í miðborg Reykjavíkur. Að þessu sinni hélt ég sem leið lá niður á Lækjartorg til að mótmæla þjóðarmorði á Austurvelli. Ég er ekki sérlega pólitísk (held ég sé bara í Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum núna) en er gjörsamlega ofboðið yfir sinnuleysi heimsins. Mikið sem framtíðin á eftir að dæma okkur - eins og við dæmdum nasista fyrir viðbjóðslega meðferð þeirra á gyðingum og aðgerðaleysi heimsins. Aldrei aftur ... sögðum við.
Á mótmælunum hitti ég dásamlega konu og stóð við hlið hennar allan tímann (áður en ég þurfti að fara í barnaafmæli í Grafarvogi eftir klukkutíma, vissulega fjörugra samkvæmislíf eftir að ég flutti í bæinn.
Þetta var sjálf Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur með meiru, sem hefði sómt sér vel sem forseti Íslands þarna 1996. Þegar ég var au pair í London á síðustu öld, hjá elskunni henni Katrínu Fjeldsted lækni og fjölskyldu hennar, kom Guðrún í heimsókn þangað, er frænka Katrínar, og mér hefur líkað sérlega vel við hana alla tíð síðan.
Hitti líka konu sem vann með mér hjá Húsnæðisstofnun ríkisins 1995-1998, og hún minnti mig á að ég hefði verið í dýrlingatölu hjá börnum hennar ... fyrir að hafa tekið X-Files upp fyrir þau á þessum tíma, ég var áskrifandi að Stöð 2 en ekki hún. Ég hafði hitt þessa konu áður, í Hagkaup Skeifunni, og verið alveg brjáluð út í sjálfa mig fyrir að muna svona vel eftir henni en samt EKKI nafn hennar (ekki í fyrsta sinn). Ég mundi meira að segja hvar hún fór að vinna eftir að hún hætti hjá Húsó. Hún hefur fundið þetta á sér núna því hún kynnti sig með nafni. Nú mun ég aldrei gleyma nafni Katrínar.
Ég og nöfn nefnilega, til er andlitsblinda, ég er ábyggilega með nafnablindu og hef verið mjög lengi ... það er svo erfitt í kennslunni ef nemendur mínir gleyma að skella heimatilbúna nafnspjaldinu á borðið fyrir framan sig. Mun þó aldrei gleyma því þegar Jesús og Kristina settust hlið við hlið í tíma hjá mér ... mér fannst það mjög krúttlegt. Frá fyrsta degi man ég þó frá hvaða landi nemendur mínir eru og get t.d. sagt: Hvernig segir þú TAKK á víetnömsku, spænsku, arabísku, persnesku, úkraínsku, litháísku, tví, úrdú, osfrv ...? Ég læri heilan helling sjálf við kennsluna, þarf samt að skrifa það niður svo það festist. Nú eru nemendur mínir færri en síðast en þá var metfjöldi, svo ég hugsa að ég verði búin að læra nöfnin í næstu viku.
Ég kenndi þeim AU í gær, og held að það sé erfiðasti stafurinn að muna. Þau þekkja Bónus, Krónuna ... og HagkAUp sem ég nota alltaf sem AU-dæmi, sundlaug er líka gott. En hvernig berum við Bauhaus fram? Báhás ... svo ég skil þau vel, svo algengt að au sé borið fram sem á. Þau neyðast til að afplána meira AU á þriðjudaginn - ég skal festa þetta í minni þeirra.
Þegar ég fór síðast í klippingu á Hárhornið við Hlemm, núna á þriðjudaginn, tók ég eftir miða á speglinum hjá hirðklipparanum mínum. Þar stóð:
Klippingin hjá mér kostar 1000 kr. meira ef þú sest í stólinn nýbúin/n að reykja og angandi eins og öskubakki!
Ég þorði varla að segja Ingva að ég hefði reykt árum saman og hætt fyrir bara rúmum fimm árum. Jesssss!
Ótrúlegt hvernig ein setning getur breytt lífi manns. Það var viðtal við lækni í sjónvarpinu, að tala um að covid legðist á lungun sem væri verra fyrir reykingafólk ... svo sagði hann örlagasetninguna: Það er aldrei of seint að hætta að reykja. Og ég var hætt nokkrum vikum seinna, eftir að hafa fengið furðulegt og rándýrt lyf frá lækni ... lyf sem orsakaði miklar draumfarir ... og sífellt meiri ógleði. Mælt var með að taka lyfið inn í þrjá mánuði en ég þoldi bara sex vikur. Um það bil tveimur árum seinna var ég að hugsa um að falla ... og fékk smók hjá vini. Lyfið virkaði enn, þetta var nú meiri viðbjóðurinn. Lungun öskruðu af hryllingi og ég lét af þessu rugli. Endanlega vonandi.
Önnur örlagasetning var reyndar titill á bók. Ég var voða skotin í manni og óviss um tilfinningar hans til mín, reyndi að finna allar heimsins afsakanir fyrir "feimni" hans í minn garð. Svo rak ég augun í heiti bókarinnar Hann er ekki nógu skotinn í þér! og fékk hugljómun. Ég hafði ekki tekið þennan möguleika með í reikninginn og hann reyndist vera sá rétti. Mikil frelsun.
Nokkrir Chuck Norrisar:
-Ef þú nærð að stafa Chuck Norris í Skrafli vinnur þú, um alla framtíð.
-Þegar guð sagði: Verði ljós sagði Chuck Norris: Segðu gjörðu svo vel!
-Almanak Chuck Norris fer beinustu leið frá 31. mars til 2. apríl því enginn platar Chuck Norris.
-Chuck Norris getur haft báða fætur á jörðinni um leið og hann sparkar í rassinn á einhverjum.
-Myrkrið óttast Chuck Norris.
-Chuck Norris getur spilað á fiðlu með píanói.
-Chuck Norris getur búið til snjókarl úr rigningu.
-Chuck Norris getur reimað skóna sína með fótunum.
-Chuck Norris er ástæðan fyrir því að Valli feldur sig.
-Chuck Norris kryddar nautasteik með piparúða.
-Chuck Norris getur klappað með annarri hendinni.
-Freddy Krueger fær martraðir um Chuck Norris.
-Jólasveinninn var til í alvörunni þangað til hann gleymdi að gefa Chuck Norris í skóinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.10.): 14
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 216
- Frá upphafi: 1534284
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 169
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni