Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Vann hjá útgáfufyrirtækinu Birtíngi (frá mars 2000 til ágúst 2022) við blaðamennsku og síðustu árin prófarkalestur. Flutti á æskustöðvarnar, Akranes, árið 2006, fór á milli vinnu og heimilis með strætó næstu tíu ár en síðustu árin hef ég unnið heiman frá mér og einnig verið leiðbeinandi hjá Símenntun Vesturlands, kennt útlendingum íslensku sem er afar gefandi og skemmtilegt. Yndilsegur fóstursonur bjó hjá mér frá mars 2017 til apríl 2024.


Meðal áhugamála má nefna lestur, tónlist, myndlist, hekl, vefmyndavélar og ... flott brim. Útsýnið úr risíbúðinni minni, himnaríki, er einstakt, eða óhindrað sjávarútsýni - ekki nógu oft brim.  


Ég er eðalblanda af Þingeyingi (Flatey á Skjálfanda) og Skagfirðingi (Hróarsdalur, Hegranesi) með smávegis dassi af góðum genum af Suðurlandi (Rangárvellir). 


Ég byrjaði að blogga á Moggabloggi í lok janúar 2007, tók 13 ára pásu frá bloggskrifum, en hef nú bloggað frá því snemma árs 2021.


Sonur minn Einar fæddist 1980 og lést af slysförum í janúar 2018. 


Ég bý með þremur miklum eðalköttum; Kela, 14 ára, Krumma, 13 ára, og Mosa, 10 ára. (Yfirfarið í ágúst 2024)  

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 32
  • Sl. sólarhring: 227
  • Sl. viku: 724
  • Frá upphafi: 1505731

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 585
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband