30.10.2021 | 15:15
Trúboð í síma og langþráðar tölur í V-kjördæmi
Föstudagsgesturinn kom hálftíma fyrr en hann ætlaði sem var nú bara frábært. Ég reyndi lymskulega að breyta plönum, að draga viðkomandi á Grjótið, var spennt að smakka kaffið þar en við fengum ekki inngöngu. Klæðaburður í lagi samt en ég var hvorki með meik né maskara, hvað þá varalit. Það var einkasamkvæmi, ekki hægt að auglýsa til að skemma ekki það óvænta fyrir afmælisbarninu sem liggur væntanlega á Facebook til að fylgjast með öllum Lokað vegna einkasamkvæmis-tilkynningum og átta sig á að koma eigi henni á óvart, grín, hún vinnur kannski þarna og hefði skilið um leið ... Stuttar vegalengdir hér á Akranesi, svo við fórum bara og borðuðum hjá Flamingo. Annað kvöld mitt í röð en það var allt í lagi.
Ég verð að hrósa Frystihúsinu, ísbúðinni knáu á Akratorgi, fyrir hreint út sagt geggjaðar hrekkjavökuskreytingar, fyrir utan var meira að segja ógnvekjandi morðvettvangur, girtur af með lögregluborða. Við fengum okkur ís og rúntuðum um bæinn. Fólk er farið að skreyta, jólaskreyta, en ekki mikið samt.
- - - - - -
Gestur dagsins í dag ætlar með mér á Grjótið, hún er líka spennt að taka út kaffið. Það er rúmt ár síðan hún kom til mín síðast, þá var allt í rúst vegna framkvæmda. Hún eiginlega trúði mér ekki þegar ég sagði henni að mér mætti afar sjaldan áskorun hér á heimilinu, nema eftir pest og þursabit, það tekur sig nánast til sjálft. Nema ég sé orðin minni draslari en áður, ég er ekki lengur vítamínsnautt dauðyfli eins og mér finnst ég hafa verið lengst af.
Mynd: Miskunnarlaus sólin sýnir hverja misfellu frá síðustu gluggaþrifum ... en flottur köttur samt, og sætur sjór.
Síminn hringdi, heimasími í heimasíma. Þekkti ekki númerið en svaraði samt, auðvitað, dyraat er í tísku núna, ekki símaat.
Já, sæl, ég heiti XXX og hringi frá Vottum Jehóva. Við viljum ekki ganga hús úr húsi vegna kórónuveirufaraldursins, má ég spjalla aðeins við þig?
Nei, takk, ég hef engan áhuga, svaraði ég kurteislega.
Takk innilega fyrir hreinskilnina, sagði ljúf röddin og við kvöddumst nánast með kærleikum. Þetta kostaði nú samt að ég missti af þriðja marki Liverpool ... en sá það í endursýningu, kræst. Og dæmt af. Er með sjónvarpið hljóðlaust og hlusta á Jólaóratóríuna, önnur stemning en jólalög. Eftir að ég hætti að reykja er svo miklu skemmtilegra (fyrir mig, ekki grannana) að syngja hástöfum með hinum ýmsu kórverkum.
Ég hefði ekki kunnað við að svara símasölumanneskju, trúboða, svona fyrir 20 árum, jafnvel ekki 10 árum, en grumpy old women, eins og ég hlýt að mega kalla mig stundum, þegar hentar, nenna engu bulli, kannski áttum við okkur á því að lífið er sennilega rúmlega hálfnað og því að eyða tímanum sem eftir er og líður svo hratt, í að þóknast vegna einhvers sem við höfum ekki áhuga á? Kurteisi er samt sjálfsögð, hreinskilni finnst mér reyndar ofmetin og t.d. ekki sjálfsagt að troða skoðun sinni að í sumu nema vera spurður álits. Mikið ertu í ljótri peysu-dónaskapurinn. Mikið hefurðu fitnað-ruddagangurinn. Þið skiljið.
Hinn frábæri sóttvarnalæknir okkar, Þórólfur, leyfði aftur birtingu talna í gær, ekki bara í V-kjördæmi í heild, heldur í hverjum bæ fyrir sig. Ég segi Þórólfur, veit ekkert hvort hann stjórnar þessu. Við vorum mörg sem vildum fá þetta, sjálfsagt eins og veðurfréttir og annað slíkt.
Ég fann samt fyrir því að einhverjir álitu mig ofsahrædda, hálfsturlaða, jafnvel drykkfellda kerlingu sem verði deginum í að telja covid-smit og næra þannig sótthræðsluna ... Svo er ég bara fréttasjúkur andskoti sem lítur á svona upplýsingagjöf sem sjálfsagða. Ég var farin að efast um að væri sniðugt að gefa sælgæti á morgun, hélt að smitin væru miklu fleiri, það gengu þannig sögur á Skaganum. Svona getur skortur á upplýsingum valdið óþörfum ótta, segi ég nú bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. október 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 41
- Sl. sólarhring: 42
- Sl. viku: 183
- Frá upphafi: 1527978
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 144
- Gestir í dag: 32
- IP-tölur í dag: 31
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni