14.11.2021 | 21:31
Mögulegir bíómyndamiðilshæfileikar og mögnuð rostalækkun
Helgardjammið er iðulega tekið alla leið þegar færi gefst og við systur horfðum m.a. á spennumynd fyrir svefninn - um forseta Bandaríkjanna sem fer til London ásamt sínum besta lífverði og aðstoðarkonu, og fjölda leyniþjónustumanna. Það sem við vitum en ekki þau (byrjunaratriðið), er að þarna úti á einhver mikilla harma að hefna vegna vestrænnar árásar. Maður sem missti þar flesta sína ættingja í brúðkaupi systur sinnar er frekar fúll yfir því og fyllist hefndarfýsn. Hann er greinilega mikill skipulagssnillingur og sér fyrir ferðir hinna ýmsu leiðtoga (allt karlar) en hefur vissulega aðstoð í innsta hring MI5 ...
Tveimur árum síðar deyr forsætisráðherra Bretlands (eðlilegum dauðdaga, halda allir fyrst) og þjóðhöfðingjar a.m.k. 40 landa mæta í útförina. Lífvörðurinn bandaríski er býsna klár og áttar sig, fyrstur allra, á gildrunni sem þetta er, hættunni sem steðjar að og kemur forsetanum sínum og aðstoðarkonu hans upp í þyrlu með gífurlegum herkjum.
Ég held að aðstoðarkonan deyi, sagði ég eins og sú sem allt veit. Af hverju? spurði Hilda forviða.
Hún gaf lífverðinum loforð um að verða guðmóðir ófædda barnsins hans, þarna rétt áður en þau komu til London, svaraði ég, þar með verður miklu átakanlegra þegar hún deyr. Hilda hnussaði.
Eldflaugaárás var gerð á þyrluna en bara forsetinn og lífvörðurinn lifðu af, þeir meiddust ekkert, hrapið bitnaði þó á útliti þeirra ... þeir voru skítugir og sjúskaðir, bara enn karlmannlegri. Ekki lifði aðstoðarkonan þetta af en lífvörðurinn sat tárvotur hjá henni þar til hún skildi við, þótt þyrlan væri alveg við það að springa og fjöldinn allur af vondum hryðjuverkamönnum á vélhjólum á leiðinni. Já, og forseti Bandaríkjanna var sá eini þjóðarleiðtoganna sem lifði af. Við fengum að sjá aðra þjóðhöfðingja tekna af lífi á fjölbreytilegan hátt, mest með sjálfsmorðssprengjuárásum, of kors.
Sennilega hef ég séð of margar svona myndir, þetta gæti líka verið ákveðin tegund af miðilshæfileikum. Held að ég hafi aldrei séð þessa mynd. Og þegar ég kvartaði yfir þessu við Davíð frænda sem var í Kvikmyndaskólanum um hríð, sagði hann að allar svona myndir hefðu í raun verið eyðilagðar fyrir honum í skólanum. Hann hefði meira gaman af því nú að sjá eitthvað algjörlega óvænt í bíó ...
Þessi mynd, London has Fallen, var alveg spennandi en kannski nokkuð fyrirsjáanleg fyrst ég sá þetta út ... Eins og t.d. í Jurassic Park, ég bara vissi að strákurinn með gleraugun og þybbni maðurinn yrðu étnir af risaeðlum því í Hollywood nýtur útlitsgallað fólk lítillar samúðar og deyr í stórum stíl. Djöfull yrði kjamsað á mér. Þessi aðstoðarkona var vissulega bæði grönn og gleraugnalaus en það vann sennilega ekki með henni að hún var svört. Lífvörðurinn talaði svo í síma við vonda og hefnigjarna fjölskyldulausa manninn sem stóð á bak við þetta, kynnti sig með fullu nafni og var mjög hugrakkur.
Kjáninn þinn, nú fara vondu karlarnir beint til Washington DC og ræna kasóléttri konunni þinni og þú þarft að bjarga henni, eins og þú hafir ekki nóg með forsetann, sagði ég hneyksluð. En sennilega var budgetið búið því óléttu konunni hans stafaði engin ógn af neinu. En ég hef ekki hugmynd um hver varð guðmóðir barnsins.
Davíð skutlaði mér heim í dag - með jólaföt drengsins í skottinu, nýju skóna mína, jólagjöf næstu 10 ára frá mér til mín, nuddtæki fyrir fætur (bjúglosandi) og nokkrar smágjafir. Við hlustuðum á dúndurgóða tónlist á leiðinni eins og vanalega. Hann er hættur með Spotify og farinn að nota YouTube-veituna sem les líkast til hugsanir. Af því að við spiluðum þungarokk með hljómsveit sem Davíð vildi að ég heyrði lag með (TOOL) vorum við spennt að vita hvað YouTube myndi velja ofan í okkur - og þar urðu engin vonbrigði. Pixies, Nirvana og Green Day glöddu og svo kom lag með Wolfmother, hljómsveit sem ég vissi ekkert um. (Sjá mynd af þeim)
Við fórum stór vinahópur frá Íslandi á Hróarskeldu árið 2009, sagði Davíð. Og rákumst á strákana í Wolfmother. Þeir voru spenntir fyrir að bjóða hluta hópsins í eftirpartí ... eða bara stelpunum, sagði hann og hló. Þær vildu ekki fara nema við kæmum líka en þeir vildu okkur ekki og-
Ég var nú einu sinni málkunnug Jóni L. Árnasyni skákmeistara, greip ég fram í fyrir Davíð. Ég veit fátt sorglegra en montna unga menn ... eða frændur sem lesa aldrei bloggið manns en hlusta samt á hlaðvörp sem tekur tímann sinn, en næðu að lesa blogg á örfáum mínútum og eru meira að segja stundum söguhetjur þar.
Í alvöru, Gurrí! Davíð var heillaður. Hvernig kynntist þú honum?
Nú, hann þurfti stundum að bíða eftir að komast til gjaldkerans, hann skrifaði sko um skák í DV, og ég vann á deildinni við hliðina á Herdísi gjaldkera og spjallaði stundum við hann til að létta honum biðina ...
Davíð kom ekki upp orði í nokkrar sekúndur, svo yfirgengilegt þótti honum þetta allt. Af hverju slitnaði samband ykkar Jóns? Því kemur hann ekki í afmælin þín? spurði hann hrærður, löngu búinn að gleyma rokkhljómsveitinni Wolfmother. Ég svaraði: Sko, ég hætti hjá DV 1989, árið sem þú fæddist, og allir vita hvernig fór eftir það ... En þegar ég var gjaldkeri starfsmannafélags DV kom Ómar Ragnarsson einu sinni til mín, ekki Herdísar, til að fá borgað fyrir skemmtiatriði sem hann var með á árshátíð. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þarna. Líka það að ef tölvubyltingin hefði verið nokkrum árum fyrr á ferðinni hefði ég aldrei hitt Jón L. Árnason eða Ómar Ragnarsson og talað við þá augliti til auglitis. Tölvur hafa margt á samviskunni.
Davíð minnist sennilega ekki framar á Wolfmother. Ef hann gerir það á ég fleiri fræga í handraðanum, t.d gamla samstarfsmenn eins og Kristján Má Unnarsson fréttamann, hann var á DV um leið og ég. Mun alltaf ná að toppa, hugsa ég. Það munaði til dæmis bara hársbreidd að ég sæi mjög fræga leikkonu í London 2019, í árshátíðarferð Birtíngs, Steingerður ritstjóri sá hana og gargaði, ég þekki Steingerði, var við hlið hennar en sneri öfugt, en ég nánast sá þessa frægu sem ég man ekki hvað heitir en er mjög fræg. Ahhh, nú man ég, það var Helen Mirren sem gekk fram hjá okkur!
Við Davíð kíktum á Krónuplanið á Akranesi skömmu eftir komu á Skagann, allt dótið komið í Himnaríki - góði frændi neitaði að henda mér út þar, heldur beið á meðan ég stóð í biðröð í korter við bíl sem seldi beint frá býli, alls konar kræsingar frá bændum á Vesturlandi. Allt mjög flott og girnilegt á matarmarkaðnum. Ég keypti skyr, geitakæfu, ost og jarðarberjasultu. Skaginn var ekki á áætlun en mikið var ég glöð þegar það breyttist. Hefði viljað kaupa ís frá Erpsstöðum en frystirinn minn er fullur. Sakna innilega markaðanna sem voru í gamla Landsbankahúsinu. Þar kynntist ég Fasta, berjasafanum dásamlega sem breytti lífi mínum en sem hætt var að framleiða nýlega, því miður. Þetta var fín helgi, búðaráp (ekki leiðinlegt!) með Hildu í gær, bröns í hádeginu, skutl heim og svo markaður. Hvað næst? Kannski snemma í bólið og lesa góða bók, það er fullkominn endir á góðri helgi. Eftir nudd í nýja tækinu. Ekki skamma mig! Þetta er ekki tískutæki SEM ALLIR VERÐA að eignast. Það er loftsteikingarpottarnir (Air Fryer) sem fást í Costco. Held að það verði jólagjöfin í ár hjá mjög mörgum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 14. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 48
- Sl. sólarhring: 104
- Sl. viku: 229
- Frá upphafi: 1528042
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 180
- Gestir í dag: 42
- IP-tölur í dag: 42
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni