Slæm tískuslys og spennandi kaffileit

Svona peysaTískan getur verið erfið ef á að fylgja henni svo ég ákvað á sínum tíma að kaupa mér það sem mér fyndist fallegt. Gallinn við það er sá að ef maður er nýtinn að auki getur það haft hin hroðalegustu tískuslys í för með sér. Eins og þegar gömul vinkona sagði við mig fyrir mjög mörgum árum: „Gurrí, steinþvegnar gallabuxur þykja ekki sérlega flottar núna.“

 

Athyglisgáfan þegar kemur að tísku er nefnilega ekki góð. Svo sá ég fallega og litríka peysu á sölusíðu á netinu, og hugsaði að mér væri nákvæmlega sama hvort sú peysa væri í tísku eða ekki, hún yrði mín. Sjá mynd.

 

Vegna fyrri mistaka við tilrauunir til ýmis konar kaupa á netinu, meira að segja á íslenskum síðum, ákvað ég að biðja Ellen frænku að panta fyrir mig - mína allra fyrstu flík sem ég kaupi ekki beint í Walmart eða hjá Nínu eða Bjargi. Vonbrigðin urðu mikil þegar ég fékk skilaboð frá Ellen: „Þessi síða sem selur peysuna er alls ekki traust, því miður.“ Hún sendi mér hlekk á aðra síðu sem á að vera algjörlega traust, en þar hafa eintóm vonbrigði mætt mér þegar ég leita að einhverju litríku. Ég enda svo sem alltaf í svörtu sem er allt í lagi en ástæðan er ófáanleiki á flottu litríku - það þarf alltaf að vera eitthvað kerlingalegt sem skemmir, snið, kragi, sídd (ég vil hafa þetta sæmilega sítt) eða eitthvað. Jú, vissulega er ég kerling, að mati sumra óvina minna, og ég kann ekki að prjóna ... heklað gæti ég, en bara teppi og sjöl. Mikið magn heklað af treflum, sjölum og teppum í gegnum tíðina táknar ekki sjálfkrafa að maður sé eitthvað klár í að hekla. Mér finnst mjög leitt að viðurkenna það en ég leiðrétti fólk grimmilega þegar það hrósar  mér fyrir að vera svo góð í að hekla: „Magn er ekki sama og snilld!“ Bara það eyðileggur allt sem sagt er um fólk í ljónsmerkinu, að það sé svo montið og sjálfhælið. Eyðileggur í raun stjörnuspeki eins og hún leggur sig. Drjúg eru morgunverkin.

 

Gardínurnar flottuEinu sinni ætlaði ég að hekla litríkar gardínur (sjá mynd) og í raun gerði þær en skortur á m.a. réttum appelsínugulum lit varð til þess að þær voru ekki nógu æpandi. Eldhúsglugginn var líka of stór til að litlar dúllurnar nytu sín almennilega. Þetta var fyrsta verkefni okkar hjá Hekls Angels, ég fékk frábæra hjálp frá Gunnu og Báru en setti mörkin við að gera hálfa dúllu (sjá sitt hvorum megin), það væri of flókið, heilinn væri orðinn fullur af gagnslausum upplýsingum sem kæmu sér samt vel, eins og hvað Agli Ólafs þætti flottast við konur sbr. færslu gærdagsins). Sennilega myndi ég gera stærri dúllur næst, hafa garnið tvöfalt og redda mér bómullargarni í virkilega skærum og flottum litum. Mögulega yrði ég að horfa fram hjá andúð minni á rauðum lit og fjólubláum saman (sjá mynd) en sennilega get ég það ekki. Þetta yrðu flottar vetrargardínur, hvíti, heklaði hvíti kappinn sem ég gerði í fyrra þá mjög fínn á sumrin.

 

Í öðrum heimiSumir mislesa bloggin mín alvarlega illa, eins og þegar ekkillinn frá Malmö gerði hosur sínar grænar fyrir á Facebook og ég var ekki ánægð með þá viðreynslu, fölsku viðreynslu því þetta var án efa svindlari. Einn fb-vinur minn ráðlagði MÉR að fara frekar á stefnumótasíður til að finna maka. Af hverju datt honum ekki í hug að réttara væri að ekkillinn gerði það?

 

Ég myndi aldrei þora á Tinder eftir hroðalega reynslu mína af Einkamál.is fyrir aldarfjórðungi þegar ég var mönuð til að skrá mig og fjandinn varð laus, munið, 21 árs hermenn af Vellinum vildu fá að prófa „eldri konu“ (38 ára, minnir mig), mistökin sem kostuðu mig sakleysi mitt og æsku.

 

 

Þá er skárra að vera kattakerling. Herinn er nú samt farinn, minnir mig, svo ... æ, eru ekki alltaf einhverjar heræfingar hér við landið? Og við íslenska kvenfólkið það fegursta í heimi? Og hreinasta vatnið, fallegasta landslagið ... munið!

 

Að sjást eða ekkiSpurning hvað Lilja Dögg gerir varðandi her hér á landi þegar hún verður utanríkisráðherra ... eða hvað Guðlaugur Þór gerir sem heilbrigðisráðherra. Hann var súpergóður yfirmaður á Aðalstöðinni í gamla daga, vonandi er hann ekki of spenntur fyrir einkarekstri eða fjölgun smita ... Það eru njósnir mínar á alnetinu sem hafa leitt þetta í ljós sem eitthvað frekar líklegt í ráðherramálum tilvonandi ríkisstjórnar. Leikritið í Borgarnesi er víst bara leikrit og vettvangsferðirnar þangað tengjast einfaldlega fegurð Borgarness, skilst mér, og góða kaffinu í Landnámssetinu og hinu frábæra Geirabakaríi.

 

Nýlega pantaði ég kaffi frá Kaffibrugghúsinu, ég gat það alveg sjálf sem er ekkert annað en kraftaverk. Ekki endalaust hægt að níðast á Ellen frænku. Pöntunin tengist leitinni að hinu fullkomna kaffi sem ég smakkaði hjá Rjúkanda (Vegamótum) á Snæfellsnesi sumarið 2018 og var einmitt frá Kaffibrugghúsinu. Ég vissi ekki hvort það væri Mexíkó- eða Kólumbíukaffi sem var svona gott, en það síðarnefnda hefur aldrei höfðað sérlega mikið til mín, of bragðlítið, nema uppskeran þarna um árið (fyrir aldamót) frá Kaffitári ... Mexíkókaffið sem ég pantaði í sumar var gott en ekki það rétta. Svo nú hlakka ég tryllingslega til að smakka Kólumbíukaffið sem Pósturinn kom með í gærkvöldi, hressi, frábæri ungi maðurinn. Læt vita ef ÞETTA kaffi er það rétta - en sennilega verð ég að trúa konunni sem á KVÖRN kaffibrennslu, að þetta sé eilíf leit. Októberkaffið frá Kvörn var geggjað. Bíð spennt eftir næstu sendingu.


Bloggfærslur 16. nóvember 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 48
  • Sl. sólarhring: 104
  • Sl. viku: 229
  • Frá upphafi: 1528042

Annað

  • Innlit í dag: 42
  • Innlit sl. viku: 180
  • Gestir í dag: 42
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband