Sætur sigur og góður leynifundur

eldgos-v3Í gær upp úr kl. 16 sat ég gráti nær við tölvuna af því að ég fann ekki leið til að tengjast Teams-draslinu ... ég breytti leyniorði í tölvunni minni nokkrum sinnum og reyndi aftur en án árangurs. Ég sendi tárvot skilaboð í tölvupósti til fundarhaldara sem sagði: „Ó, ég skal senda þér hlekkinn.“ Ég ýtti svo á hlekkinn og tengdist en allt var hljóð- og myndlaust. Prófaði þá í gegnum símann minn og þá var allt í lagi. Þetta var sætur sigur. Fundurinn hjá Grensu (við erum flest í Mensu og fannst þetta drepfyndið nafn) þurfti í þetta eina sinn að vera með þessu algenga en flókna Teams-sniði, tengist eitthvað rússneskum tölvuþrjótum.

 

Við þurftum að taka afstöðu varðandi ýmis stór mál eins og venjulega. Þess vegna varð ég að geta tengst. Það þurfti að skítamixa eitthvað varðandi kosningaklúðrið og gervieldgosið mitt - það tókst svo vel hjá mér síðast þegar Skýrslan kom út um árið og minnstu munaði að allt yrði vitlaust. Já, það var ég. Ég þarf bara að ákveða stað sem enginn kemst á, ekki einu sinni fuglinn fljúgandi eða dróni, og vefmyndavél RÚV sem svo heppilega vildi til að var á staðnum. Óttast mest að Raggi Th. ljósmyndari verði með vesen. Kannski snjallt að finna ný nöfn ... örnefni? Hafa meint eldgos í Dimmadal í Manndrápsfjöllum í Mykjusveit ... það hlýtur að vera nógu fráhrindandi. Svona eru nú fundirnir mínir skemmtilegir. Og fara mjög leynt. Næsti fundur verður æsispennandi - við ákveðum þá hvort spurning sé að láta í öryggisskyni loka inni fólk sem gefur aldrei stefnuljós. Mín tillaga er að láta sérmerkja bíla þess. Kemur í ljós ...

 

Nú á eftir er ferðinni heitið á bókakynningu í bókabúðinni þar sem tvær Evur, löngu landsþekktar Skagakonur, kynna bækur sínar, báðar (bækurnar) glæpsamlega girnilegar. Önnur er kökubók, hin spennusaga, ég hlakka óstjórnlega til að baka upp úr annarri, svitna yfir hinni, segi ekki hvort hvorri. Munið, alltaf eru nöfnur eða nafnar hér á Skaganum - Í ÖLLU. Bíð spennt eftir efnilegri Skaga-Þórdísi eða jafnvel Skaga-Kolbrúnu til að setjast í ráðherrastjól með Þórdísi Kolbrúnu okkar. 

Yfir og út í bili.


Bloggfærslur 18. nóvember 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 47
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 228
  • Frá upphafi: 1528041

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 179
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband