19.11.2021 | 12:34
Vesen og vatnsleysi og leiðréttingin sem gleymdist
SMS-ið sem kom kl. 10.29 í morgun var eins og köld vatnsgusa framan í andlitið á mér, nema það vantaði vatnið, bókstaflega. kaldavatnslaust til kl. 16 í dag ... vegna bilunar! Ég hljóp um Himnaríki og tékkaði á öllum (báðum, ekki sturtu) krönum, ekki einu sinni heitt vatn - því við tökum inn kalt og hitum, held ég. Var til nóg vatn á kaffivélinni fyrir einn bolla? Nei, heldur betur ekki. Myndi vatn í vatnsbrunni kattanna duga til fjögur í dag? Nei, alls ekki. Var hægt að kveikja ljósin? Já, sem betur fer var rafmagn. Ekki bara Himnaríki sem syrgir vatn, heldur öll gatan og þær næstu í kring. Jaðarsbraut, Sandabraut, Garðabraut og Skagabraut!
Þar sem ég er kona eigi hjálparvana, datt mér nánast strax í hug að fara út í Krambúð. Þar ræður ríkjum elskan hún Þórhildur almáttugur ... og stóð hún undir nafni? Játs. Hún átti ekki vatn nema kolsýrt en fann tvær tómar 2 l gosflöskur á bak við sem hún fyllti af köldu, dýrmætu vatni og gaf mér. Gangan heim var síðan algjör viðbjóður, þetta var svo þungt, en það hefði verið snjallt að nýta ferðina betur og fara í morgunsturtuna í leiðinni. Bleyta hár að Krambúð - sápa og nudda meðan Þ reddaði málum - skola sápu frá Krambúð. En heim komst ég, rennblautt, sárfætt með mun lengri handleggi en áður eftir burðinn og kettir glaðir (það vantaði í raun ekkert svo mikið hjá þeim, en í dramakastinu kl. 10.30 fannst mér brunnurinn tómur. Vælið í köttunum stafaði af því að þá langaði í blautmat en vatn var nauðsynlegra en dekur við síst af öllu svanga hefðarkettina. Það er ekkert Kristallmeðlímónu-bragð af kaffinu, Þórhildur varaði við því. Skolaði samt vel.
Hvar pissum við? Stráksi kemur heim kl. 13, getur hann haldið í sér til kl. 15 þegar hann fer í klippingu? Hvað með Langasand? Eigum við að taka Danskinn á þetta og sturta bara niður í dagslok? (vatnið svo dýrt þar) En einn kaffibolli til klukkan fjögur verður bara að duga.
Bókakynningin í gær var alveg frábær, makrónur og freyðibúblur til að gleðja. Drengurinn (17) ætlaði að vera fyndinn og spurði hvort væri ekki líka vodka ... hvar ætli hann hafi lært þennan stórfenglega aulahúmor? Evurnar árituðu af miklum móð.
Ég blaðaði í kökubók Evu Laufeyjar og hún er sérlega girnileg, Eva gefur nokkrar uppskriftir í kökublað Vikunnar sem kemur út eftir viku, og þegar ég sá þær og myndirnar vissi ég að ég yrði að eignast bókina, stundum veit maður bara.
Eva Björg skrifar um glæpi, oft tengda Akranesi sem er æði, og ég er komin ögn áleiðis með hana (bls. 39, klára í kvöld), ég sofnaði bara svo afkáralega snemma í gærkvöldi. Bókin heitir Þú sérð mig ekki.
Ægir, pabbi Evu Bjargar, var einn af ljúflingunum sem lagði parketið á Himnaríki, ég þekkti hann ekki með grímuna, eins gott að einhver kallaði á hann. Hann hló bara, móðgaðist ekkert og líkti mér við Jón Gnarr!?! (Viðbót: Gnarr þekkir fólk víst bara af munnsvip)
Í Krambúðinni greip ég með mér Fréttablaðið og viti menn, var ekki Himnaríkis-áhrifavaldurinn af Moggablogginu aðalgellan í jólablaðinu? Og ljúfi blaðamaðurinn sem tók samt ekki mark á breytingarbeiðni minni ... vissulega bara smáræði en blæbrigðamunur sem skipti mig máli.
... ekki beðið neinn að kaupa handa sér ljóta jólakúlu. Það er af því að smekkur fólks er misjafn. Það yrði hræðilegt að sitja kannski uppi með flottar jólakúlur.
Ég bað hann um að fleygja í burtu ÞAÐ ER AF ÞVÍ AÐ ... því ég sagði það aldrei. Ég treysti vinum og vandamönnum vel til að kaupa ljótar jólakúlur handa mér, þetta er upp til hópa smekklaust ... (djók)
Hitt var bara hugleiðing: Smekkur fólks er misjafn. Það yrði hræðilegt að ... osfrv.
Eflaust algjört smáatriði, en hva, jólablaðið hjá Fbl. er hrikalega flott og skemmtilegt.
Meira að segja bjúg-myndin af mér skemmir það ekki ... það væri alveg eftir því ef akkúrat dagurinn í dag til fjögur yrði vatnslosunardagurinn mikli ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 19. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 51
- Sl. sólarhring: 107
- Sl. viku: 232
- Frá upphafi: 1528045
Annað
- Innlit í dag: 44
- Innlit sl. viku: 182
- Gestir í dag: 44
- IP-tölur í dag: 44
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni