20.11.2021 | 13:17
Frændur eru frænkum verstir
Orðatiltækið Frændur eru frænkum verstir er svo sem ekki til en samt upplifði ég nákvæmlega það árum saman þegar annars ágætur frændi minn, nú hamingjusamlega fluttur úr landi, enn oft kallaður Fjandi, gerði líf mitt stöku sinnum að hálfgerðu hlæjandi helvíti ... sem er heldur betur til. Við kynntumst þegar ég var 38 ára og hann 13 árum yngri.
Ég man því miður ekki hvað hann sagði á taílenska veitingastaðnum sem var rekinn hér á Akranesi um tíma, á meðan við biðum eftir matnum, en ég gat aldrei farið þangað aftur. Hló samt að þessu þar til ég áttaði mig á því. Akranes er nógu lítill staður til að slíkt geti gerst, þótt stór sé.
Fjandi hefur alltaf verið sérlega greiðvikinn og þegar ég bað hann um að kenna mér að gera orðaleit fyrir Vikunna í Excel, svo ég gæti séð um það vikulega, fór hann að gera þetta fyrir okkur, eldsnöggur og bara greiði - og orðaleitin varð strax afar vinsæl. Ég fann fimmtán orð og sendi honum, hann faldi fjórtán þeirra inni í textanum (til að gera þetta erfiðara) og setti stundum (alltaf) önnur orð sem átti ekki að leita að og finna en fundust nú samt, eins og sést neðst á myndinni sem svo birtist á Flick my life-síðunni fyrir nokkrum árum. Ég beið bara eftir lögreglunni stundum, það kom alla vega eitt óþægilegt símtal frá opinberu embætti ...
Eitt sinn skutlaði hann mömmu heim, þau höfðu hist í fyrsta sinn þennan dag (u.þ.b. 1996) heima hjá mér á Hringbrautinni, og það má fylgja með að hann er ekki sérlega hrifinn af Breiðholti, einhverra hluta vegna. Þú býrð væntanlega í Breiðholti, ekki satt? sagði hann í tilraun til að vera fyndinn. Ó, jú, ég er í Asparfelli, heldur betur, sagði mamma glaðlega enda verulega ánægð með fallegu útsýnisíbúðina sína á sjöundu hæð. Við ókum af stað og þegar við vorum komin upp í Breiðholt og keyrðum Vesturbergið í átt að Asparfelli sagði fjandi með leiðsögumannsrödd: Hér til hægri fer nú fram sjoppurán ... og á vinstri hönd má sjá að verið er að ráðast á gamla konu. Ég grenjaði úr hlátri en hlátur mömmu varð sífellt þvingaðri, þessi frændi dóttur hennar var kannski ekki eins indæll og hún hafði haldið. Svo sagði hann rétt við bæjardyrnar: Er þér sama þótt ég fleygi þér út á ferð? Ég vil ekki að hjólkoppunum verði stolið! Þá var mömmu allri lokið. Hún þakkaði samt fyrir farið, hún er kurteis, en tók fjanda ekki í sátt fyrr en tæpum tuttugu árum seinna. Maður dissar ekki Breiðholt, aldrei! Ekki einu sinni í gríni. (Ég hef án efa sagt frá þessu áður hér, þetta er lengri útgáfan - og þetta er líka skrifað eftir minni).
Ég reyndi sjálf stundum að nota þetta síðasta og sagði kannski kurteislega við bílstjórana mína á leið 57 þegar þeir hægðu ferðina áður en ég hoppaði út við Vesturlandsveginn: Þú mátt alveg henda mér út á ferð, ég skil alveg að þú viljir ekki að hjólkoppunum verði stolið, þetta er svo hræðilegt hverfi,(ég var að fara í Höfðabakka). Hvaða vitleysa, tautuðu flestir þeirra, eins og þeir færu að fleygja farþegar út á ferð ...
Þessi frændi fékk hina Trump-jólakúluna sem ég keypti (sjá Fréttablaðið í gær) þannig að hann er kannski sá eini eftir af vinum mínum, ættingjum og kunningjum, sem allir eru brjálaðir út í mig eftir viðtalið í Fréttablaðinu í gær, um að ég myndi aldrei treysta þeim til að kaupa nógu ljóta jólakúlu handa mér. Ég notaði daginn í gær og morguninn og hádegið í dag, til að benda fólki á að blaðamaðurinn hefði misskilið mig og ég hefði reynt að leiðrétta þetta í bloggi gærdagsins, en allir segja: Of lítið, of seint, farðu til fjandans. Þannig að ég þarf mögulega að verja jólunum í Frakklandi.
Dagurinn í dag fer í vinnu en ég verð með fótbolta á kantinum, verulega stór dagur í dag, Chelsea núna, á eftir Man. Utd. og svo Liverpool gegn Arsenal. Ef einhver slysast í heimsókn fær hann verulega gott kaffi en verður að sætta sig við að hlusta á fótboltalýsingu og mig hlaupa til að sjá endurtekningu á marki. Ég á mjög skilningsríka vini ... eða nei, ekki lengur ... alveg rétt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 20. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 47
- Sl. sólarhring: 103
- Sl. viku: 228
- Frá upphafi: 1528041
Annað
- Innlit í dag: 41
- Innlit sl. viku: 179
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni