21.11.2021 | 23:14
Nýtt fólk til að móðga ...
Við stráksi vöknuðum fyrir allar aldir og tókum 10.15-vagninn í bæinn. Rétt orðið bjart en ég las ljúfa ástarsögu alla leið í bæinn. Nú eru þrjár í takinu: Spennubókin Þú sérð mig ekki, Arnaldur Indriðason deyr (ótrúlega fyndin og hræðileg) og Jól á eyjahótelinu. Þeirri síðastnefndu byrjaði ég á í morgun því hún fer best í tösku, hinar eru á náttborðinu og bíða spenntar eftir að ég hunskist snemma til bóls. Allar ljómandi fínar, gjörólíkar. Bara fimm dagar eftir til að lesa - svo er það þátturinn fyrir Útvarp Akranes. Ég hitti Erlu Hlyns í dag en hún var að senda frá sér 11.000 volt, bók sem hefur verið í sköpun í nokkur ár, þroskasaga Guðmundar Felix frá unga aldri og þar til nú í haust. Vá, hvað mér líst vel á hana.
Vér systur hófum samveruna með því að skreppa til Hafnarfjarðar, kíkja á stórkostlegheitin hjá Kristu ketó, eins og hún er oft kölluð, en hún tók efri hæðina ofan af húsi sínu í haust og er að verða búin að byggja nýja og glæsilega útsýnishæð í staðinn, mjög gaman að fylgjast með þeim hjónum á Instagram. Katla systir hennar rekur Systur og maka, flotta búð í Síðumúla eða Ármúla og er líka skrambi skemmtileg á Insta. Sá sem hefur kannski komið mest á óvart á Instagram er Friðrik Ómar söngvari. Hélt að þetta væri hress ungur maður sem syngi vel ... onei, hann er það en líka virkilega fyndinn og skemmtilegur. Þekki hann því miður ekki neitt. Þarf að koma mér upp nýjum vinum eftir að hafa móðgað alla sem ég þekki í Fréttablaðinu í fyrradag - og alveg spurning. Það er til fullt af góðu og skemmtilegu nýju fólki til að móðga, hugsa ég.
Svo fórum við í Pallett-kaffihús, aftur og nýbúnar. Aftur gott kaffi, aftur enskar skonsur nema nú var stráksi með í för og át frá mér helminginn OG sitt kruðerí líka (súkkulaðiköku). Hann er að stækka, ekki ég (ekki lengur, vona ég). Mér fannst ég ekki geta rifið kjaft við eigandann, þennan ljúfling, fyrir að loka kl. 16 (opið þri-sun) af því að ég bý ekki í Hafnarfirði, en benti honum á þann ólifnað sem skapast þegar fólk getur ekki lengur hist á kaffihúsi eftir vinnu, neyðist til að fara á bar.
Þá var það apótek í Smáranum, C-vítamín fyrir okkur stráksa, kvef og flensur víða í kringum okkur, og hælsærisplástur fyrir mig. Ég hef gengið allt of mikið upp á síðkastið, strigaskórnir frá des. 2018, eru farnir að meiða mig og engu um að kenna nema auknu labbi.
Ég veit að ef Hilda hefði verið með í för, í stað þess að hanga í símanum úti í bíl, hefði ég hvíslað kurteislega og spurt eftir lyfinu þarna sem byrjar á I ... svo gott við ormum og covid, ef ég laumaði nú að þér 50 krónum ... Ég verð nánast frávita af bræði þegar ég hugsa til þess hvað Hilda æsir mig upp í mér vitleysuna, eitthvað sem ég myndi annars aldrei segja eða gera.
Aðalerindið í bæinn var samt ekki kæruleysi á borð við kaffihúsaferð og apótekshangs. Jólaskyldan kallaði:
Við pökkuðum inn jólagjöfum til afkomenda mömmu ... frá mömmu, fyrir mömmu. Af hverju skrifar þú Til: Gurríar UDM? spurði Hilda, ávallt athugul. Ertu búin að bæta við millinafni?
Nei, mig langaði bara að sjá sumt svart á hvítu, svaraði ég og reyndi að breyta um umræðuefni. Maður leikur samt ekki á Hildu eða sleppur við að svara henni.
Hvað þýðir UDM? sagði hún ákveðin. Áminnt um sannsögli!
Myndir þú trúa mér ef ég segði að það þýddi undirborðsleg, dulúðug og meinlaus?
Nei, alls ekki, þú ert ekki vön að hrósa sjálfri þér á svona hógværan hátt. Svo emjaði hún úr hlátri, hæðnishlátri. Ég var neydd til að segja sannleikann:
Ókei, ókei!!! Til Gurríar, uppáhaldsdóttur minnar, svaraði ég ögn pirruð. Ég þoli ekki þegar hún gerir mér þetta.
Hrmpf, sagði Hilda, og með sinni ofvöxnu réttlætiskennd bætti hún við UDM á fleiri merkimiða; hjá sjálfri sér og fleiri börnum móður okkar, sennilega USM hjá einhverjum karlkynsbörnum hennar. Rosalega þroskað.
Á aðfangadagskvöld - áður en ég opna pakkann minn frá mömmu og rek upp gleði- og undrunaröskur, ætla ég að bæta við fyrir aftan UDM: ÍÖH (í öllum heiminum)! Hvað gera sumir þá?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 46
- Sl. sólarhring: 102
- Sl. viku: 227
- Frá upphafi: 1528040
Annað
- Innlit í dag: 40
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 40
- IP-tölur í dag: 40
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni