22.11.2021 | 18:47
Þarf alltaf að vera Ásta ...
Þá er dagskráin hjá Útvarpi Akranes, 95.0, komin út, ótrúlega þétt og skemmtileg ... minn þáttur (um bækur) verður kl. 13.30 á laugardaginn. Ég fæ þrjár frábærar konur í spjall um bækur. Þátturinn heitir Þarf alltaf að vera Ásta? Og svarið er já. Ástur eru afar mikilvægar í bókaheiminum á Akranesi, eins og mun koma í ljós í þættinum, alveg jafnmikilvægar og Evur eru í bókaútgáfu hér og Ólar eru sem tæknimenn ÚA. Ásta hin fyrsta í bókasafninu leiddi mig ljúflega yfir í ástarsögurnar þegar ég var búin með barnadeildina í æsku. Hún var svo frábær, fann alltaf eitthvað gott að lesa fyrir okkur lestrarsjúku krakkana.
Það var frekar algengt að sjá í svokölluðum minningabókum hjá Skagastelpum, 10 til 11 ára, að uppáhaldsbækur þeirra (okkar) bæru ástríðuþrungna titla, Ást og örlög, Ástir og meinleg örlög eða jafnvel Hjónaband í hættu - ég móðgaðist virkilega mikið út í mömmu þegar hún flissaði yfir minningabókinni minni. Ég var svo stutt frá því að verða fullorðin þarna, eignaðist minn fyrsta varalit 11 ára, ljósfjólubláan sem lét tennurnar virka gular, og mátti svo ekki nota hann.
Vissulega ábyrgðarhluti að setja ekki viðvaranir á sumar bækur. Fyrstu eiginmenn mínir ollu ekki beint vonbrigðum en þeir komu ekki fram við mig eins og prinsarnir og lávarðarnir í bókum Barböru Cartland komu fram við fagrar og eftirsóttar konur. Sá fyrsti var vörubílstjóri sem var nú í fínu lagi, byrjaði ekki Elvis einmitt sem vörubílstjóri? En minn reyndist ekki sérlega músikalskur svo þá var það bara næsti.
Fyrstu vinnustaðir mínir á fullorðinsárum voru verulega óspennandi eftir að hafa lesið bæði Beverly Gray-bækurnar og allt sem til var á íslensku eftir Agöthu Christie. Að fara í sveit var ekkert líkt Ráðskonunni á Grund, bara púl og vissulega stöku dansleikir (án aðalsmanna þó). Og svo framvegis.
Svo er sagt að það sé erfitt að alast upp nú til dags. Ég hlæ með ekka og mótmæli, bendi á sem dæmi sérlega erfiða bernsku mína og unglingsár þar sem sumar bækur, málshættir og orðatiltæki blekktu mann til að sætta sig við hvað sem var. Til dæmis sársaukafull blankheit, eða að fá mjög litla vasapeninga, ég fékk lengi 10 kr. á viku þegar ís með dýfu kostaði 12 kr. Hugsið ykkur grimmdina. Samt þrælaði ég alveg heima stundum, ryksugaði, þurrkaði nýuppvaskað leirtau og hellti upp á Kaaber-kaffi fyrir mömmu.
Nú til dags má segja að samfélagsmiðlar hafi mótandi áhrif á fólk en á mínum ungdómsárum voru það helst málshættirnir. Hilda systir heldur því enn fram að morgunstund gefi gull í mund, samt er hún ágæt, eiginlega bara mjög fín. Nú þegar reynsla mín til áratuga hefur sýnt hversu gott er að sofa út. Dýrmætt að fá nægan svefn, það lengir lífið að sofa sína 8-10 tíma, það er sannað!
Engin er eik án kvista hélt mér t.d. í heljargreipum allt of lengi. Hvað þýddi þetta? Að ég yrði að giftast manni þótt hann hefði ótal kvisti, jafnvel BÆÐI sötraði og smjattaði, af því að hinn fullkomni maður væri ekki til? Vá, hvað ég sætti mig við marga kvisti í fyrstu hjónaböndum mínum. Svo bara komst ég að því með árunum að til eru virkilega margir nánast fullkomnir menn.
Við höfum oft hlegið að þessu, ég og minn fyrsti sem var nú ágætlega fullkominn, valinn eftir útliti vissulega en reyndist fínn að innan að auki. Hann tekur undir þetta sem ég segi en hann var ögn fyrri til að finna hina alfullkomnu konu en ég hef ekki enn fundið minn alfullkomna gaur. Mín leit er ekkert brjálæðislega áköf núorðið. Ég verð róleg til sjötugs.
Tvennt er kyn að manni hverjum, er t.d. málsháttur sem ruglaði mig lengi og hefði sennilega fengið mig fyrir rest til að efast um kynhneigð mína ef ég væri ekki svona vitlaus í karlmenn. (Mamma, þetta er djók).
Næstneðsta myndin sýnir vandræðin sem geta komið upp í annars sæmilega hamingjuríkum hjónaböndum. Þegar lagið Space Man kom út rétt fyrir aldamót varð ég svo hrifin af söngvaranum að ég hætti með þáverandi kærasta löngu áður en kom í ljós að sæti söngvarinn (sem geimvera í bláu pilsi, ekki sem viðskiptafræðingurinn) var eiginlega ekkert fyrir konur. Neðsta myndin er af honum (í viðlaginu, sem geimvera). Kíkið endilega á þetta löngu gleymda næntís-lag á YouTube, hljómsveitin heitir Babylon Zoo og lagið var svokallað one hit wonder, eða eina lag BZ sem sló í gegn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 47
- Sl. sólarhring: 103
- Sl. viku: 228
- Frá upphafi: 1528041
Annað
- Innlit í dag: 41
- Innlit sl. viku: 179
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni