Bæklingur illskunnar og reglur fyrir karla

AldurPrýðilegt hefur verið að eldast, alls ekki sjálfgefið að bæta nánast endalaust við árum og vera við fína heilsu, ef frá er talið sársaukafullt hælsæri sem kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum nýlega (bólusetning nr. 2 í júlí?). Það hefur verið dásamlegt að öðlast kjark til að rífa kjaft þegar þarf, segja nei, takk án samviskubits við sölumennina með eldspýturnar, og breytast smám saman í grömpí kerlingu. Ég er samt ekki alveg komin þangað en stefni að því að vera laus við meðvirkni cirka sjötug. Ég er meira að segja búin að lofa að íhuga bónorð um það leyti.

 

Strax um fertugt var orðið hættulegt að veikjast því flest, meira að segja fótbrot, var flokkað sem breytingaskeið þótt um tíu ár væru í það hjá langflestum fertugum ... Ég sá í bók (eftir ungan erlendan rithöfund) að maður sem hitti tæplega fimmtuga mömmu sína eftir nokkurra ára aðskilnað ... að á handarbökum hennar hafi mátt sjá nokkra ellibletti, lifrarbletti ... Sú er bráðþroska, hugsaði ég. Krabbameinsfélagið kallaði mig konu á mínum aldri ... hárgreiðslukonan leitaði að gráum hárum hjá mér til að geta talað um háan aldur okkar. Vinkona mín skrapp reglulega til London til að baða sig í aðdáun karlmanna, eins og ég hef áður sagt frá, hún varð ósýnileg um fertugt hér á landi. Ég var nú samt komin vel yfir fimmtugt þegar bæklingurinn kom í umslagi merktu mér.

 

Á göngugrindÉg sýknaði Halldór fjanda nánast strax af þessari sendingu, enginn getur haft slík sambönd eða býr yfir annarri eins illsku. Þarna mátti sjá auglýstar sérstakar þvaglekavarnir, nætur-táhlífar (svo tærnar snertist ekki á nóttunni!), sérstök pillubox, salernisstuðning, rafhlöðuknúið pillubox sem lætur vita. Þarna var meðalaglasaopnari, grindarbotnsvöðvaþjálfari, göngustafur með ljósi, ísbroddur fyrir göngustafi, sokkaífæra, farsími með stórum tölum, spil með stórum tölum, sethringur, hnépúði, lakastrekkjari, fótahitari, ælupoki (sem kostaði um 2.000 kr.), derhúfa með stækkunargleri, fylgihlutir fyrir göngugrindur og margt fleira. Ég viðurkenni alveg að sokkaífæra hefði komið sér vel þegar ég fékk þursabit um daginn.

 

Ég fékk nokkur einkaskilaboð eftir að ég setti þetta á Facebook, beiðnir um að taka mynd af eins og t.d. pilluboxinu með áminningu og hvernig væri hægt að panta sumt, en ekki fyrir Facebook-vinina sjálfa heldur háaldraða foreldra þeirra eða afa og ömmur. Þannig að þetta gagnaðist einhverjum sem var æði. Þarna var samt ekkert sem ég hefði getað boðið mömmu upp á, nema ég vildi eiga á hættu að öðlast eilífa óvináttu hennar. Hún var vissulega hætt að vinna, naut þess að vera heima og ráða krossgátur, horfa á glæpaþætti, glæpamyndir eða lesa um blóðug morð í glæpabókum. Svona eru víst hjúkrunarfræðingar á eftirlaunum þegar þær fá ekki lengur að sprauta.

 

RóbótarSvo sá ég á fb-síðu nýlega reglur fyrir alvörukarla. Ansi hreint strangar. Líf þeirra er nú enginn dans á rósum, eins og hefur verið bent á undanfarið. Hér eru nokkur dæmi, eða 3 greinar af 31, um hvað þessar elskur mega þola til að geta kallast alvörukarlmenn:

 

1. gr. Undir engum kringumstæðum mega tveir karlmenn deila sömu regnhlíf.

 

14. gr. Þú leyfir vini þínum ekki að klæðast Speedo-sundskýlu. Aldrei. Málið er dautt.

 

27. gr. Stelpa sem svarar spurningunni „Hvað langar þig að fá í jólagjöf?“ með „Ef þú elskar mig, veistu hvað ég vil,“ fær Playstation-tölvu, það er bara þannig.

 

Mér fannst ég hafa, þarna alveg fyrst, öðlast ögn meiri skilning á körlum eftir að hafa lesið þetta. Hinar 28 greinarnar voru ekki birtingarhæfar hér en þessar þrjár fyrir ofan gefa góða mynd. Ég er í raun engu nær og verð örugglega aldrei um þessar dularfullu, dásamlegu verur sem karlar eru.


Bloggfærslur 23. nóvember 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 51
  • Sl. sólarhring: 107
  • Sl. viku: 232
  • Frá upphafi: 1528045

Annað

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 182
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 44

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband