24.11.2021 | 20:20
Safaríkur kalkúni og safaríkt kannski ekki-hneyksli
Veitingastaðurinn Grjótið, sá nýjasti hér á Akranesi, býður upp á sérdeilis skemmtilega nýjung nú um helgina. Eða Þakkargjörðarmáltíð fim., fös. og lau. - til að borða á staðnum eða taka heim. Mína fyrstu slíka máltíð fékk ég árið 1991 í Árbæ fyrir klíkuskap (heppilegur kærasti) og síðan aftur 2016 í Conway, WA, USA, og hef allar götur síðan þráð að lenda í félagsskap fólks sem hefur áhuga á slíkum boðum og heldur þau ... en engan fundið. Sumir vilja bara þorrablót, bolludag og slíkt sem er líka ágætt. LÍKA.
Eftir seinna hraðprófið á dögunum, þegar Skaginn var undirlagður af covid (bataknús til Grunarfjarðar sem glímir við þennan fjanda núna), hélt ég lítið kökupartí í frábærum félagsskap. Sú sem skutlaði mér og sú sem við hittum á leið í hraðpróf mættu og snæddu tertur og brauðmeti með okkur stráksa. Nú verður leikurinn endurtekinn, með enn meiri fínheitum, safaríkum kalkúna, vonandi, og meðlæti, meira að segja verður graskersbaka í eftirrétt. Ég spurði, eins og hver annar hnetuhatari, hvort væru hnetur einhverju (t.d. fyllingunni) en fékk að vita að svo væri ekki, það fylgdu hnetur með Waldorf-salatinu, fólk gæti sett þær út í, ef það vildi.
Í morgunsturtunni hugleiddi ég þetta svolítið. Væri ekki snjallt að stofna klúbb, bara við þrjár? Svo fór ég að hugsa um Hekls Angels og Dúlluklúbbinn (heklklúbbar) sem ég hef vanrækt hroðalega vegna tímaskorts ... Önnur vinkonan var búsett í einu af Norðurlöndunum í nokkur ár, hin bjó á Bretlandseyjum og þetta gæti gert umræðurnar ansi hreint áhugaverðar. Heimaalinn kálfur og það allt. Ég er sæmilega sigld, eftir siglinguna um Karíbahaf jólin 2018, ég var búsett í London í 51 viku árið sem Freddy Mercury gerði allt vitlaust með Bohemian Rapsody, og rest svo sem bara heimsóknir til Elfu í Ameríkunni.
Hvað um svona yfirstéttalegan snobbklúbb (ég bý í 170 Akranes) með fínu nafni? Við gætum borðað enskar skonsur með hleyptum rjóma og sultu, drukkið dýrindiskaffi með og sagt svo spennandi leyndarmál að það munaði minnstu að við þyrftum að drepa hver aðra til að ekkert spyrðist út. Setningar á borð við: Algjör óþekktarangi, þessi ráðherra ... eða Sagði Guðni þetta virkilega? Kumra svo svolítið, alls ekki hlæja.
Í fyrsta sinn á ævinni sit ég á safaríkri kjaftasögu og ég verð eiginlega að hafa heilan klúbb í kringum hana en ég nenni ekki að baka enskar skonsur. Annað ... engin okkar er sérlega mikið fyrir kjaftasögur sem er galli og slær eiginlega snobbklúbbinn af áður en hægt er að stofna hann. Kannski verður þetta bara árlegur viðburður, þakkargjörðarmatur um þetta leyti og við höldum áfram að tala um alþjóðastjórnmál, endurvinnslu og verndun svæðislýsinga smárása í hálfleiðurum (ég kem því alltaf að).
Ef einhver kýs (dirfist) að spyrja mig út í þetta safaríka hneyksli (eða ekki-hneyksli) verða spurningar undir öllum kringumstæðum að hefjast á: Er þetta kannski sagan um xxxx sem gerði xxx með xxx og svo xxx? Það heitir að spyrja upplýsandi spurninga og ég mun hafa fleira að segja í boðinu nema allir hitti á það rétta. Tillögur að öðrum umræðuefnum eru líka vel þegnar. Og að nafni á snobbklúbbinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 52
- Sl. sólarhring: 108
- Sl. viku: 233
- Frá upphafi: 1528046
Annað
- Innlit í dag: 45
- Innlit sl. viku: 183
- Gestir í dag: 45
- IP-tölur í dag: 45
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni