Algjört Eurovision-sjokk í útvarpi og óvart bomsumóðgun

Óli Palli og tvær ÁsturBókmenntaþátturinn Þarf alltaf að vera Ásta? gekk svona líka glimrandi vel í dag, og gestirnir; Ásta í bókabúðinni, Ásta í bókasafninu og Ásta í galleríinu, voru frábærar. Skemmtilegar, víðlesnar og fagrar sem foldin. Það sem við gátum talað, eins og um það sem við lásum í æsku og fram á þennan dag. Óli sjálfur var tæknimaðurinn en Óli, gamli nágranni minn, sá um tæknistjórn þáttarins á undan, það urðu miklir fagnaðarfundir af því að hann er fluttur í bæinn. Óli stóð sig óaðfinnanlega í mínum þætti fram að síðasta lagi ... Sundfélag ÍA sér um þetta árlega helgarútvarp sem má segja að „hringi“ inn aðventuna. 

 

Við áttum eitt sameiginlegt, kellurnar, og það var að engin okkar hafði áður lesið jafnlítið af jólabókum en núna fyrir þessi jól en þeim mun meira var um kynningu á bókum sem okkur langaði í og þráðum að lesa og höfðum heyrt um ...

 

Nokkrir Skagamenn eru í jólabókaflóðinu. Einn með ljóðabók, annar þýðandi þykkustu bókar þessarar vertíðar, hún heitir Vítislogar (bókstaflega allt um seinni heimstyrjöldina), vel yfir 800 bls. og svo (ásamt öðrum) þýddi Gulli sem var í mínum bekk allan barnaskólann, stjarneðlisprófessor eða eitthvað álíka, afskaplega safaríka bók sem heitir Framtíð mannkyns, örlög okkar í alheiminum, eftir Kaku. Og auðvitað fjölluðum við líka um glæpasögur, ástarsögur, kökubók og fleira.

 

Ég gleðst yfir því hversu margar bækur eru komnar sem rafbók á Storytel (nenni bara að hlusta þegar ég brýt saman þvott), finn að ég er komin með valkvíða og væri löngu hætt í áskrift ef ekki væri fyrir þetta aukna úrval. Mér finnst ekkert mál að lesa heilu bókaflokkana í gemsanum mínum, bara þægilegt og alveg sérlega næs í strætó. Þetta er eflaust framtíðin svo að á 100 ára afmælinu mínu (eftir áratugi, nb) hlaðast kannski bestu afmælisgjafirnar beint inn á gemsann minn og ég get lesið meðan ég hlusta á hressilega nikkutónlist í bakgrunni og bryð svið.

 

Mynd - efst: Óli, Ásta og Ásta. Ásta var ókomin þegar myndin var tekin.

 

Þessi dagur gat ekki orðið betri, hélt ég, en svo bað ég Óla um að setja annað lokalag á fóninn en ég hafði valið þegar ég skrifaði handritið. Framlag Rússlands í Eurovision árið 2010, eitt af þeim betri í þessari keppni. Ég hélt að allir vissu það. Rokkballaða ... Lost and Forgotten, lag sem var eiginlega sent í keppnina sem hálfgert grínframlag, minnir mig, ástarbull eitthvað en lenti samt frekar ofarlega, ef ég man rétt, og ég fílaði það ekki fyrr en EFTIR keppnina. Vissulega dramalag og þótt ég hafi ógeð á dramatík býr sú tík samt í mér þegar kemur að tilfinningaríkum og tárvotum Rússum sem hafa ætlað að gera at í Eurovision en áttað sig á að þetta var bara samt skrambi gaman. Hefðu mátt vera ögn meiri rólegheit þegar kom að vindvélinni í lokin, það er það eina.

 

Ásta er mikill sérfræðingur í Eurovision, virkilega fróð og ég hafði haldið að hún byggi yfir visku um hvaða lög væru góð og hvaða lög ekki. Óli hélt ég líka að hefði vit á músik en eftir að þau tvö nánast hraunuðu yfir þetta lag, eiginlega gubbuðu og það nánast upp í opið geðið á mér, grunar mig að sumt fólk hafi fengið vinnuna sína vegna útlitsins. Hmmmmm.

 

Læt þetta flotta lag fylgja með og bið ykkur að hækka vel og hlusta á það þangað til ykkur finnst það gott! Ég hafði heyrt Street Spirit (með Radiohead) svona 38 sinnum á MTV áður en ég allt í einu uppgötvaði hversu mikil snilld það væri, sama má segja um Eartquake (Lón, Valdimar) sem ég heyrði oft á Rás 2. 

 

Við heimkomu var ég enn í sjokki þrátt fyrir flott skreytta bollaköku (úr Kallabakaríi) sem elsku Sundfélagið gaf mér í kveðjuskyni, en vel hressandi kaffibolli fékk mig til að fyllast æðruleysi, góður tónlistarsmekkur er auðvitað ekki sjálfgefinn ... Og þeir sem hlusta aftur og aftur og aftur á þetta lag eiga eftir að skilja mig fullkomlega þótt það verði kannski ekki alveg strax, ég get alveg beðið í nokkur ár. Þetta er alla vega eina Eurovision-lagið sem komst á Spotify-listann minn yfir ýmis lög. Og það eru meðmæli! Ég þekki engan sem heldur upp á þetta lag en ég hef heldur ekki spurt alla!

 

Við SillaKlukkutíma eftir heimkomu fékk ég ansi hreint skemmtilega heimsókn frá gamalli vinkonu. Hún mætti með mat með sér, hollan fiskrétt sem hún hafði búið til fyrr í dag og ég þurfti bara að skella í ofn í 20 mín. um sexleytið. Hann bragðaðist ofboðslega vel. Það var chili í sósunni, slurp. Megi aðrir taka Sillu sér til fyrirmyndar í heimsóknum sínum í Himnaríki ... myndi ég segja ef ég væri ekki frekar hógvær.

 

Ég sagði Sillu frá raunum mínum og sjokki fyrr í dag og fékk heilmikla samúð, hún fékk líka áfall þegar ég sagði henni frá konunni í skóbúðinni sem leiddi mig að bomsum þegar ég leitaði að flottum vetrarskóm. „Svona bomsum kannski?“ spurði hún, miklu, miklu yngri en ég, og benti á eigin bomsur sem stóðu við dyrnar. Ég þurfti að segja mjög langa sögu um eitthvað algjörlega ótengt skóm til að hún gleymdi þessu bomsubulli. Risaeðlur, herðatré og Hótel Holt komu við sögu.

 

MYND: Sætar-saman-sjálfa með Sillu. Beethoven í baksýn.

 

Dyrabjallan tók upp á því að bila í dag, skömmu eftir að Silla kom í heimsókn. Það átti að afhenda mér vöru (kerti með jólailmi) sem ég var búin að borga, ferðasjóðssöfnun fyrir skólabarn í næsta húsi, Nýju blokkinni. Það þurfti þrjár tilraunir til að afhenda kertið og tókst fyrir rest með aðstoð Messenger. Mæli með að fólk komi í heimsókn til mín eftir kl. 17 á mánudaginn nema það sé með góðan fiskrétt á sér. Ef heimsóknin er mjög áríðandi og aðkallandi hleyp ég auðvitað stigana ... þetta eru svo sem ekki nema nokkrar hæðir.

 

Nú er að lauma eins og 50 krónum að hirðrafvirkja Himnaríkis. Það gerðist eitthvað þegar bjöllunni (í fyrstu tilraun kertaafhendingar) var hringt (óvart, eða bjölluat) sjónvarpið fraus í smástund og við misstum af öllu um mögulega ráðherra í nýja ríkisstjórn - svo Vignir rafvirki fær skemmtilega ráðgátu til að fást við. Nú heyrist ekkert þegar hringt er. Líf mitt er helst til of æsandi stundum.


Bloggfærslur 27. nóvember 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 53
  • Sl. sólarhring: 109
  • Sl. viku: 234
  • Frá upphafi: 1528047

Annað

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 184
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband