Ógnandi SMS og besta verk Davíðs

Farið í skólannEins og kom fram í færslu gærdagsins skráði ég sjálfa mig óvart í hraðpróf ásamt drengnum sem hafði verið í návist covid-smitaðrar manneskju. Vinir mínir á Facebook sögðu mér að fara bara ekki neitt í prófið og það afrekaði ég (að gera ekki) með glæsibrag í gær. Mætti frosin inn að beini með drenginn í sýnatöku, sjálf var ég dulbúin með grímu. Í morgun kom ógnandi SMS: „Guðríður. Áminning. Smitgát. Þér er skylt að mæta í hraðpróf.“ 

 

Nú þori ég hvorki að svara í síma né fara til dyra. Legg ekki á mig að fara að ástæðulausu í hraðpróf, fá frí í vinnu, fara gangandi á staðinn ... Ef það er eitthvað sem ég hata meira en að ganga er það að ganga að óþörfu. Ef það er lítil biðröð tæki þetta samt hálftíma. Spjallið á covid.is virðist vera mér lokað eftir að ég reif hálfpartinn kjaft yfir því að sleppa ætti að birta smittölur hvers bæjarfélags fyrir sig, fannst álíka undarlegt að hætta því og að fá ekki t.d. veðurfréttir frá Vesturlandi. Fæ reyndar bara veðurhorfur við Akrafjall, þar er veðurstöðin, en ein helsta ástæðan fyrir því að ég flutti frá Reykjavík var sú að höfuðborgarsvæðið fær ekki veðurspá þótt þar búi langsamlega flestir. Það myndi vissulega ögra okkur landsbyggðartúttum ... það snýst sko ekki ALLT um Reykjavík, borg óttans, segjum við auðvitað reglulega, alveg brjáluð. Veðurfræðingar eru ýmist hræddir við landsbyggðina eða eru þaðan sjálf/ir, held ég, sem útskýrir af hverju aldrei er sagt hreint út: „Það verður gott veður í Reykjavík á morgun.“ Það þarf alltaf að kalla borgina Faxaflóasvæðið, suðvestanlands ... Ég er alveg sátt við að sundurliða ekki veðurfréttir eftir hverfum þótt oft sé annað veður í Asparfelli (þar sem mamma bjó) en á Hringbraut (þar sem ég bjó).  

 

Gurrí og HerkúlesÉg var eitthvað svo þreytt og útkeyrð í gær eftir vosbúðina við Þjóðbraut (í biðröðinni) en skildi það samt varla, ég er hraust og þaulvön biðröðum eftir djamm á yngri árum, fyrir utan Þjóðleikhúskjallarann, Klúbbinn, Gaukinn, Keisarann ... en ég held að ég hafi bara verið svona döpur yfir fólki eins og akureyska manninum í viðtali á RÚV um ketti. Ég missti svolítið trú á mannkynið við það. Og líka döpur yfir þórðargleðinni hjá sumum á feisbúkk - óvænt jafnvel og bera einhverjir fyrir sig ást á fuglum. Mér þykir líka vænt um fugla ... og hunda og kanínur og hesta og kýr og kindur ...

 

Mynd: Við Herkúles frændi. 

 

Dúfur voru drepnar í Reykjavík og víðar, talað um plágu, það var markvisst eitrað fyrir þeim og nú sjást þær ekki, því miður. Það heyrðist ekkert í fuglavinum þá, hvar eru þeir þegar ráðist er gegn mávum og jafnvel byrjað að skjóta þá, kennt í sjónvarpi hvernig á að fæla þá frá Tjörninni svo endurnar fái allt brauðið en ekki glorhungraðir mávar. Fyrir ekki svo mörgum árum ríkti algjört bann við hundahaldi í Reykjavík og ef hundar náðust voru þeir drepnir, eða því hótað. Þetta var ógeðslegt. Minnir að Davíð Oddsson, hundaeigandi þrátt fyrir bann, hafi breytt þessu. Hans besta verk, ef rétt er. VIÐBÓT: Fb-vinur segir það hafa verið Albert Guðmundsson, ekki Davíð. Ef rétt er, afsakið að ég hafi óvart næstum hrósað Davíð. 

 

Vesturbæingar segja allt morandi af köttum OG fuglum þar. Kunningi minn hatar lúpínuna, eins og fleiri, og vill að henni verði eytt, útrýmt - aðrir þakka henni aukna gróðursæld  á landinu. Ég hef margoft sagt að ég vilji að geitungar og aðrar stinguflugur verði gerðar útlægar, myndi alveg vilja lækkun meðalhita hér til að það gangi eftir ... alla vega að býflugnabændur hafi flugur sínar í taumi, ekkert lausaflug, takk.

Allt það sem pirrar okkur þarf ekki endilega að hverfa ... við hljótum að geta aðlagast, eða reynt það. Það er „freki karlinn“ (oft kvenkyns líka) sem vill breyta umhverfinu, engu hjá sér, eins og karlinn sem býr í miðborg Rvíkur og heimtar að opnunartími skemmtistaða verði almennt styttur (í venjulegu ástandi) af því að lætin í bænum valdi honum ónæði.

 

Hér á Skaganum hefur ástandið breyst hratt í dag. Börn komin heim, búið að loka skólum, stofnunum og sumum verslunum (m.a. Kaju). Margir veikir, margir í sóttkví sem lamar ýmsa starfsemi. Vona að allar þessar aðgerðir hafi náð að stoppa frekari útbreiðslu. Áfram Akranes!


Bloggfærslur 4. nóvember 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 44
  • Sl. sólarhring: 100
  • Sl. viku: 225
  • Frá upphafi: 1528038

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 176
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband