5.11.2021 | 17:28
Annar í hrekkjó og þaulsetinn hrollur
Mikill fjöldi smita á Skaganum núna. Vinkona mín mætti með tvo ömmustráka (allir skólar og leikskólar lokaðir) í örstutt kaffispjall áðan, samt aðallega af því að drengirnir höfðu heyrt af glæstri sælgætiskörfu sem hafði ekki klárast úr á hrekkjavökunni, líkast til vegna staðsetningar Himnaríkis, ekki svo mörg börn sem búa í grennd.
Mosi (7)var himinglaður yfir komu strákanna og Krummi (10) mjög spenntur líka. Það var bara Keli (11) sem hélt sig fjarri, hvekktur á svo mörgu eftir illa meðferð á kettlingsárunum - sem Kattholt, tíminn og Himnaríkisbúsetan hafa lagað heilmikið.
- - - - - - - - - - - -
Ég er enn að reyna að ná upp hita eftir hrollinn sem neitar að hverfa eftir biðröðina í kulda og trekki í fyrradag í hreyfingarleysi, skorti á peysu undir úlpu og góðri húfu ... Mér hlýnar undir sturtunni en bara rétt á meðan. Og ég sem er svo hot (heitfeng). Nú sit ég við tölvuna í rúllukragapeysu, þykkri peysu utan yfir, báðar í stíl við hálsmenið, og með kríusjal úr plötulopa tvívafið um hálsinn, með þrefalt lopateppi ofan á hnjánum og ofninn við hlið mér stilltan á rúmlega þrjá. Auk þess skín sólin inn. Mér er samt kalt. Gott ímyndunarafl nær ekki að búa til veikindi svo ég verð að viðurkenna að ég er eiturhress fyrir utan kuldahrollinn. Held að þetta sé ekki aulahrollur yfir meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar en það er samt möguleiki.
Mamma myndi eflaust kalla þetta karlmannsleysi, hún heldur að öll mín vandamál megi rekja til þess. Tengdasonarskortur móður minnar er vissulega mikill og sennilega sár, það eru færri sem koma í heimsókn til hennar, hún fær ekki jafndýrar jóla- og afmælisgjafir en ég hef nú samt reynt án árangurs að borða á við tvo til að fylla upp í skarð ókomna tengdasonarins en það tefur samt fyrir og veldur aðdáendaskorti - af því að karlar vilja bara grannar konur, sbr. heimildaþættina Sex and the City, eða Skortur on Skagen.
Ég bið innilega afsökunar á smekkleysi í klæðaburði. Rauði liturinn í sjalinu er hroðalegur við aðra liti sem eru í svo fínni sjetteringu og hálsmenið eins og punkturinn yfir i-ið. Ég er svo góð í þessu þegar ég vanda mig. Af því að ég heklaði þetta kríusjal gerði ég undantekningu og var satt að segja búin að gleyma þessum ósmekklegheitum þar til ég tók sjálfsmyndina nú um hálffimmleytið. Hárið er ekki sérlega flott heldur en björgunaraðgerð er skipulögð núna á miðvikudaginn, ef covid leyfir. Og ekki sést í hlýja lopateppið sem sómir sér vel ofan á lærunum á mér, og auðvitað alveg í litasétteringu við peysur og hálsmen.
- - - - - - - - - - - - - -
Húsverkahamagangur? gæti einhver sagt og samt meint vel - upp á að mér hlýni nú eitthvað. Jú, sjáum til, það gæti þítt blóðið í mér. Facebook-vinur benti mér á að eldri konur ættu oft erfitt með að halda á sér hita. Hver veit, ég er náttúrlega eldgömul miðað við mér mun yngra fólk en ég hélt að það væri gamalt fólk, jafnvel komið í kör ... en það á kannski bara ágætlega við okkur sem sitjum við tölvuna allan daginn? Ég er samt þakklát fallegu Nönnu hans Fúsa sem trylltist yfir þessu kommenti fyrir mína hönd.
Neðri myndin er dásamleg en það sem mér var þó starsýnt á var rykið á skápnum undir sjónvarpinu - sem ég þurrka vissulega í burtu núna á eftir þegar helgarhúsverkir hefjast, eða á morgun. Ótrúlegt hversu oft þarf að gera þetta, oft og tíðum hættulega leiðinlega starf sem húsverk eru ... (Sjá Sérstæð sakamál, 4. tbl. 1993, Hroðaleg hrekkjavökuhefnd húsmóður á Hringbraut, 3. hluti.)
Mér finnst líka svolítið skammarlegt að það skuli enn vera afgangar, alveg hrúgur af sælgæti í körfunni, það er af sem áður var. Endalaus heilaþvottur tannlækna gæti verið farinn að síast inn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 44
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1528038
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 176
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 38
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni