6.11.2021 | 14:27
Breyttar veðurfréttir og misfyndnir Fb-vinir
Margt af því sem hefur gerst undanfarið sannar fyrir mér að ég sé orðin áhrifavaldur sem mark sé takandi á. En gjafirnar hafa samt látið á sér standa og það bítur. Sumir fá snyrtivörur, aðrir úlpur eða bækur. Ég? Ekkert enn. Hef þó ekki gefið upp alla von. Giska á, eins og á hrekkjavökunni, að staðsetning skipti máli. Akranes er alveg í hálftíma akstursfjarlægð frá t.d. Mosó. Kannski covid, en mögulega fávitaskapur að átta sig ekki á styrk mínum.
Það gladdi mig samt að eftir að ég minntist á veðurspár, það að ekki mætti minnast á Reykjavík og nærsveitir þar, til að styggja ekki okkur landsbyggðarfólkið, að heyra svo tvívegis í gær talað um höfuðborgarsvæðið í VEÐURFRÉTTATÍMA! Svona viðurkenning er mjög valdeflandi. Á svarta netinu, undirheimum internetsins, fann ég ég líka lista yfir það sem þarf að gera til að öðlast vinsældir, frægð og gjafir. Ég þyrfti að byggja bloggið upp eins og vörumerki, sýna sífellt af mér myndir, það væri það sem aðdáendur vildu. Veit samt ekki alveg þetta með myndir. Það hefur áður komið fram að myndir bæta yfirleitt á mig 20-25 kílóum og þótt ég sé á margan hátt undirborðskennd og finnist hrukkur alveg töff eru sumir aðdáendur ekki á sama máli. Við jafnöldrurnar, Madonna og ég, viljum auðvitað sýna bestu útgáfuna af sjálfum okkur. Ég get ekki ímyndað mér hvaða aðferð hún notar en mín aðferð er að sýna frekar gamlar myndir - og jafnvel taka upp fastan þátt hér í blogginu - Gurrí og fræga fólkið. Ég hef stundum sýnt myndir úr því risastóra safni mínu en hef sterkt á tilfinningunni að fólk þrái meira. Mér skjátlast sjaldan í þessu. Sjá efri myndina - af mér og Gulla byggi og fleirum frá 1987. Og hér fyrir neðan er svo mynd af mér og Ragnari Jónassyni metsölurithöfundi, frá 1986, Rás 2, Hann í grænni peysu og ég rauðri, jólalegt er það. Man því miður ekki nafnið á vini hans. En við Ragnar erum næstum því á sömu myndinni, eins og sést og það nægir mér.
Fyrir nokkrum árum gekk enn einn leikurinn hjá Facebook til að efla egóið manns og ég stekk stundum á slíka leiki. Bara af því að ég er í ljónsmerkinu, ekki vegna athyglissýki. Í leiknum voru Facebook-vinirnir beðnir um að setja inn YouTube-lag sem þeir tengdu við mann. Fólk er vissulega misfyndið og ég brenndi mig á því. Tveir einstaklingar; fyrrum samstarfsmaður minn og karlkynsskyldmenni mitt settu drengjamet í lúðahætti. Hversu erfitt var að vita eitthvað um, annars vegar samstarfskonu og hins vegar frænku?
Sá fyrrnefndi setti inn lagið Kúkur í lauginni, ágætt lag með Súkkat en sannarlega ekki við hæfi hjá manneskju sem hefur ekki farið í sundlaug síðan 1986 eftir upplifun í sturtuklefanum sem minnti á kvennafangelsismynd bannaða innan 25 ára. Aðeins of margir kvenrassar fyrir tepruna, vildi mamma meina. Hefði það drepið samstarfsmanninn að kynna sér hvort ég færi sund?
Hinn, eða ættinginn, setti inn lagið Banana Phone með ummælunum: Ógeðslega gamalt, ruglað og það er leiðinlegt að hlusta á það. Þetta var ekkert leiðinlegt lag, hann er sjálfur með ömurlegan tónlistarsmekk.
Aðrir voru miklu meira með á nótunum og skelltu inn lögum sem minntu t.d. á kaffi og strætóferðir. Hér eru nokkur dæmi:
-Greyhound bus classic-sjónvarpsauglýsing
-The long and winding road með Bítlunum
-The Story með Brandi Carlile (sameiginlegt uppáhald með Helgu)
-Taylor the latte boy (minnti bæði á boldið og kaffi)
-The Java Jive
-Stabat Mater eftir Pergolesi (Guðrún þekkir mig)
-Cleanin´out my Closet með Eminem (Davíð frændi, ég skipaði honum að hlusta á tónlist Eminem)
-For Heaven´s Sake með Wu-tang Clan (Ellen frænka sem kom með mér á Gravediggaz-tónleika, þá unglingur, hún rifjaði það upp)
-Hvítir mávar (Margrét Fafin, vegna aðdáunar minnar má mávum)
Mér er enn frekar kalt eftir biðröðina á miðvikudaginn (það er vel hlýtt í Himnaríki og ég kappklædd) en ekkert veik. Samt gott að seinna hraðpróf stráksa verði á morgun og komi það neikvætt út verður haldið brjálað lasagne-partí hér á bæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. nóvember 2021
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 44
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1528038
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 176
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 38
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni